Mánudagur 06. nóvember 2006 / 06:07 / Happy-home!
Best að byrja þessa færslu á því að segja ykkur hversu æðislega vel okkur líður.
Við erum búin að kveðja Morgunroða-family-una og komin á besta stað í heimi! (Utan við Eyjarfjörðinn, að sjálfsögðu!)
Í dag fórum við með Ásu niður í Pismo að skoða vinnuna sem framundan er. Þetta er nú mest allt bara létt málingavinna og smá garðvinna, en fínn aukapeningur :) Gott líka að geta hjálpað Ásu.
Það er svo MIKLU betra að vera hérna að þið trúið því ekki. Hérna virkilega gerir fólk eitthvað með okkur - sýnir okkur eitthvað, spjallar og við skemmtum okkur alltaf vel. Eins og ég hef sagt ykkur áður, þá eiga Dóra og Eric bát sem við fórum með að Lake Lopez í dag. Þar fengu strákarnir að kenna á því í Vipernum (slangan sem er dregin á eftir bátnum) og það var algjör snilld. Ég reyndar fór ekkert í vatnið því það var alveg ógeðslega kalt. Strákarnir voru bara í blautbúningum.
Í kvöld var svo eldaður góður matur (eins og alltaf, Dóra er gríðarlega góður kokkur) og svo ís í eftirmat -- Eric ólst nefninlega upp á heimili þar sem var ALLTAF eftirmatur þannig að hér er alltaf eftirmatur...Mjög gott fyrir vigtina eða þannig..
Núna liggur Þorsteinn sofandi við hliðiná mér, og Gunni á dýnu til fóta! Hehe. Þetta er ekkert smá magnað ;)
Við byrjum svo að vinna í fyrramálið fyrir hana Ásu. Það verður fínt.
Meiri fréttir fáiði svo þegar Þorsteinn og Gunni blogga! (Ef það gerist þá einhverntíman)
og svo verð ég að reyna að koma inn myndum frá deginum í dag.. og ferðalaginu okkar hingað.. við fyrsta tækifæri.
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur.
/ Álit
gott að vita að þig eruð komin á betri stað:) vonandi skemmtið þið ykkur vel þarna. héðan er allt med det samme!! ciao!
06.11.06 13:24
Æði.. ég er viss um að þau "hin" eru strax byrjuð að sakna ykkar alveg grííðarlega... (gott á þau.. múhaha), njótið lífsins bara eins og þið getið, það er gaman að vinna við svona hluti þegar maður veit að þeir eru vel metnir :)
06.11.06 14:16
Helga Har.:
Ég veit að það fer vel um ykkur þarna.
Hvernig verður það með Gunna þegar þið komið heim, þarf hann ekki að eiga dýni inni hjá ykkur eða pláss til fóta :)
06.11.06 15:00
gott að heyra að þið eruð öll léttari... í lund
Fólkið þarna bara eins gott og við hérna á vikinni, og það er frábært.
kveðja til G og hann má alveg semja gleðiljóð og setja á bloggið. Það er t.d. stutt þar til hann kemur aftur heim, góð ástæða og svo er lífið bara gott a.ö.l. kv, hh
06.11.06 18:48
Freyja:
Big Mama so proud!! Nú sannast hið fornkveðna, hver er sinnar gæfu smiður. Miklu betra að gera eitthvað í málunum frekar en að sætta sig við hlutina og kvarta og kveina þar til sálin er tóm. Megið þið eiga góða daga þarna ytra. Kveðja úr logninu eftir storminn ;)
06.11.06 22:23
hkj:
hæhæ elskan, gott hvað ykkur líður vel, ég bíð spennt eftir að fá fleiri bréf með þú veist!!! vonandi gengur þetta allt upp!!! miss u bige time, ég er hérna í hjúk. tíma alveg að fara á limingunum alveg að sofna!!!! Hlakka til að sjá ykkur eftir 41dag.
Kv.Helga letibrók
07.11.06 10:08
hkj:
hey var að sjá að Sandra er búin að eiga lítill strák, hlakka til að sjá myndir!! sendum mér ef hún sendir þér einhverjar
07.11.06 10:14
hey skvís..í sambandi við sephora...
þá er "allt" mjöööög vítt orð og ég bara veit ekki hvar ég á að byrja...kannski þú komir með smá upplýs um það sem þig vantar og ég skal skoða þetta betur. ef þú veist ekki hvar þú átt að byrja þá geturu farið í flokkana uppi á sephora síðunni og varlið eftir þeim.
07.11.06 16:41



