Laugardagur 04. nóvember 2006 / 02:44 / Farin!

Vildi bara láta vita að við erum núna á leiðinni "heim" í Boníta og erum að fara að pakka niður öllu okkar hafurtaski. Á morgun förum við svo til Thousand Oaks að ná í bílaleigubíl, komum aftur og hlöðum bílinn af dótinu okkar, kveðjum fjölskyldu og nágranna og brunum svo sem leið liggur beint til San Luis Obispo - eða "heim" :D
Ég veit ekki alveg hvernig net-ástandið er hjá Dóru, en ég ætla að kippa því í liðinn fljótlega því ég þarf víst að geta lært.. hef nú ekki gert mikið af því undanfarið en ætla að bæta úr því hjá Dóru.
Blogga um leið og ég get ;)
Kveðja frá the three amigos sem eru alsælir þessa stundina :D


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

freyja:

Ég er með ykkur í huga að pakka niður. Gangi ykkur rosa vel og komið ykkur vel hjá Dóru og có!!Stundum bara er grasið grænna hinu megin.

Hlakka til að hitta ykkur rétt fyrir jólin.... er ekki jóla-spil? Trvial eða teikni eða partý eða eitthvað annað spil?

Betri tíð með blóm í haga!!

04.11.06 16:28


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín