Þriðjudagur 28. nóvember 2006 / 07:04 / Það sem ég vil ekki segja ykkur..

Veit nú ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna í kvöld. Ég gæti svosem sagt ykkur frá því að við fórum að versla í dag... en það er bara gömul tugga þannig að ég fer nú ekki að telja upp alla boli, jakkana, úlpurnar, peysurnar og jólagjafirnar sem við fjárfestum í. Enda finnst ykkur ekkert gaman að heyra um það.
Svo gæti ég líka sagt ykkur frá því að á morgun förum við að vinna fyrir Ásu. Þið eruð nú búin að heyra okkur segja það svo oft að það nennir enginn að lesa neitt um það.
Kannski finnst einhverjum áhugavert að heyra að hérna er okkur alveg skítkalt á kvöldin/næturnar og um daginn sofnaði Þorsteinn í fötunum og ég þurfti að slást við hann til að ná honum úr sokkunum. Það kemur ykkur svosem ekkert við, enda er ykkur hlýtt í vel kyntum húsum á Íslandi.
Ég þarf nú varla að minnast á það að í dag eru bara 21 dagur í að við komum heim. Þið eruð nú örugglega ÖLL að telja niður þannig að fyrir ykkur eru þetta nú bara gamlar fréttir.
Við söknum Gunna alveg svakalega, enda vita nú flestir að hann fór heim fyrir viku síðan. Gaman að því, ekkert merkilegt samt sem áður.
Já það er sko margt sem ég gæti sagt ykkur... en nenni því bara ekki.
Góða nótt :)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

Inga Rut P.:

rosalega hljómaði þetta eitthvað sorglegt.. hehe

en fáðu nú nennuna og skrifuðu eitthvað geðveikt krassandi!!
hlýtur að hafa séð einhverja sæta stráka eða eitthvað..
til að gleðja mitt litla hjarta ;) hehe...
getur bara sagt Þorsteini að þú sért að horfa fyrir mig ;)
kíktu eftir því fyrir mig og kipptonum meððér heim..

minn er að flýja land hehe ;)

28.11.06 10:12


Gams:

Ég var að hugsa um að kommenta á þetta en ég nennti því ekki...

28.11.06 12:25


Sigrún j:

Vá spáðu í því. Bara 21dagur :) Þetta styttist ekkert smá hratt!

28.11.06 17:14


Adda:

Hæ, heyrðu...ekki geturu sett heimilisfangið hjá henni Maríu okkar á síðuna, svo ég geti farið að versla pakka handa henni ;)

28.11.06 17:37


Aníka óþolinmóða:

Jamm sæta mín!! þetta styttist allt saman elskan.. og ég get ekki beðið eftir ykkur..

en ég verð að vinna þegar þið komið norður (ekki nema þið komið eftir kl. 18, þá get ég komið og tekið á móti ykkur! hlakka ógó til!!

En hvernig fór með fötin? ertu kannski ekki búin að tékka á þessu.. ég er svo spennt að ég er að farast!! HHH finnst þetta ekkert spennandi.. hehe, enda karlmaður! :D

nóg af bulli.. ef þér leiðist þá var ég að setja inn einhverjar nýjar myndir á bloggið mitt :D Dagur í kúrekastígvélunum mínum og svona! ógó fyndið! :D

en verðum í bandi sætust!

28.11.06 22:19


baddy sys:

jagshemash!
já það styttist óðum í heimferð. ég ætla að skreppa suður og ná í söndru þegar hún kemur, henni finnst nefnilega ekkert skemmtilegt að fljúga, síðan ætlum við að gera piparkökuhúsið en við getum nú alveg beðið með það þar til þið komin þeim, gerum það bara 20. eða eitthvað;) verið nú ekki að versla einhverja vitleysu þarna, það er nóg til af henni þarna í us-and-a.

chenqe!

30.11.06 12:00


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín