Þriðjudagur 31. október 2006 / 20:24 / Sjóðheitar fréttir!!

Blogg 30 okt 2006


Jæja, hérna koma góðu fréttirnar. Í morgun hringdi ég í Morgunroðann og sagði honum að við værum ekki sátt við 175 dollara á viku.. að við vildum meiri pening. Hann var ekki sammála og þar með tókum við þá ákvörðun að fara til SLO (San Luis Obispo) og vinna fyrir Ásu mömmu hennar Dóru í einhvern tíma, ferðast, leika við krakkana og njóta lífsins það sem eftir er af dvöl okkar hérna. Jább. Við ætlum að yfirgefa Simi Valley fyrir fullt og allt núna um helgina!!
Ohh við erum öll svo innilega ánægð með þessa ákvörðun. Robert vill fá mikla vinnu, og ekki borga rassgat og það einfaldlega virkar ekki þannig. Ég vildi bara óska að við gætum tekið konuna hans með okkur í handfarangur.. það væri draumur. Mér finnst ömurlegt að skilja hana eina eftir hjá þessum grasasna.
En jæja,.. hún er fullorðin og getur tekið sínar eigin ákvarðanir.
Gunnar Örn stefnir á heimferð 21nóvember (sem er btw afmælisdagurinn hans!) og kannski skellum við okkur bara heim með honum... það er aldrei að vita! Ég veit allavega að Þorsteinn er kominn með heimþrá ;)
Ég væri hinsvegar alveg til í að klára dvölina okkar hérna, eða fara aðeins fyrr heim.. eins og í byrjun des eða 10 des eða eitthvað. En það er seinni tíma ákvörðun. Núna í augnablikinu ætlum við að (reyna) klára vikuna okkar hérna, pakka saman og taka lest til SLO. Dóra og Eric bíða spennt eftir komu okkar - en ég reyndar er nokkuð viss um að Thor og Emma eru spenntari :)
Good bye Simi Valley ---- Hello San Luis Obispo! :D
Nýjar myndir hérna


Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur.

/ Álit

Damma:

Til hamingju með ákvörðunina! skemmtið ykkur vel og fallega! :D kveðjur úr -6 stiga frosti.

31.10.06 23:19


Helga Kr.:

Flott hjá ykkur - um að gera að nota tímann vel sem þið eigið eftir...það er að segja í Ameríkunni..:)!!
Hlakka til að fá ykkur heim, full af fróðleik um landið í vestri.
Kysstu Gunnsa frá mér og Þorstein líka :)
kv, hkh

31.10.06 23:43


freyja:

Flott hjá ykkur, maður á að gera það sem er manni fyrir bestu, ég vil auðvitað alveg fá ykkur fyrr heim ;)

Góðar stundir kæra fólk, kveðjur úr frostinu og fögru mánaskini!!

31.10.06 23:50


Sigrún J:

Frábært! Oh ánægð fyrir ykkar hönd!
Og mundu, þetta er sko ekki uppgjöf, þetta er einfaldlega bara það að sætta sig ekki við hvað sem er. Og það sýnir bara styrk að taka þessa ákvörðun og yfirgefa frekjuvarginn!

Hafið það gott og skemmtið ykkur vel. Það er lítið hjarta hérna sem bíður svo spennt eftir pabba sínum!

01.11.06 00:56


dagný:

hjartanlega sammála - flott hjá ykkur. Auðvitað á maður að nota tímann eins og maður getur og vill sjálfur, ekki þóknast einhverjum öðrum! :)

Sjáumst um jólin :)
Dagný, Danni og Óli - líka í snjó og kulda í Danmörku

01.11.06 09:08


baddy sys:

heyr heyr...hlakka til að fá ykkur heim hvenær sem það verður (fyrir jól;)) já og góða ferð til SLO!!

01.11.06 13:55


Helga Har.:

Gott hjá ykkur ekki láta valta yfir sig. ( sem væri nú líka ólíkt þér.) Hlökkum bara til að fá ykkur heim og það fyrr en senna. Kveðja til Ásu og co koss og knús á línuna, mamma

01.11.06 16:52


Kristín Hrönn:

TIl hamingju með ákvörðunina, maður á alls ekki að láta valta yfir sig eins og þessi þöngulhaus virðist hafa ætlað að gera við ykkur. Um að gera að standa á sínu!

01.11.06 20:04


Aníka:

Geggjað!! til hamingju!! :D

Hlakka ógó til að fá ykkur heim!! knúsknús!

01.11.06 21:02


Sunna:

Frábær ákvörðun hjá ykkur! Maður á ekki að sætta sig við hvað sem er! Ohh hvað ég hlakka til að fá ykkur heim;) Þið megið alveg koma aðeins fyrr heim...:P En það er auðvitað alfarið ykkar ákvörðun og ég kem ekki nálægt því!

01.11.06 21:50


Karen:

flott hjá ykkur...það er líka svo mikill léttir þegar búið er að taka ákvörðun...þið verðið líka bara reynslunni ríkari fyrir vikið að prufa eitthað nýtt :).......Gaman af því

02.11.06 18:56


Karen:

já og munið það líka að ef það verður gaman hjá ykkur á hinum staðnum ekki þá láta heimþránna plata ykkur....því þó að þið komið heim þá verður allt eins og var eftir nokkra daga......hugsið vel um það....ég veit að það er frábær tilhugsun að koma heim og hitta alla eftir svona langan tíma .....en ef það er bara svona la la úti hjá ykkur þá er um að gera að koma bara heim.............en ekki láta heimþránna plata ykkur ..........kveðja Karen

02.11.06 19:04


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín