Mánudagur 25. september 2006 / 21:28 / Frábær helgi!!
Þessi helgi sem nú er liðin var ein besta helgi sem við höfum átt frá því að við komum hingað!! Þetta var ekkert smá æðisleg helgi.
Hún byrjaði semsagt þannig að við stukkum á lappir á föstudags morgninum, kláruðum allt sem við þurftum að gera hérna heima, hentum töskunum uppí trukkinn og brunuðum af stað til Pasadena þar sem ég átti tíma hjá augnlækni klukkan 12:00 svo ég gæti nú fengið mér linsur.
Hér kemur svo augnlæknasagan:
---
Við mætum á svæðið rétt fyrir 12 og ég skrái mig inn og við setjum svo. Eftir smá bið (svona 10mín) þá er nafnið mitt kallað. Jújú, ég fer inní eitthvað herbergi með japönskum dúdda sem mælir eitthvað á mér augun og segir mér svo að fá mér sæti, læknirinn kalli á mig! Þetta var semsagt ekki læknirinn heldur bara einhver strákur sem gerir nokkur test. Jæja, ég tylli mér aftur hjá Þorsteini og bíð í smá stund þegar doksinn kallar á mig. Ég fer með henni eitthvert annað og hún gerir allskonar sjóntest, skoðar á mér augun og bakvið augun (jább, ég er með 3 ör á hægri auga og 1 á vinstri auga.. ekki gott! en reeeeddast) Svo segir hún mér að fá mér aftur sæti og bíða eftir að linsu konan komi. Ég sest niður og eftir svona korter kemur linsukonan (rússnesk) og horfir á mig setja linsurnar í augun á mér (það nægir ekki bara að segja að maður sé búinn að nota linsur í 3 ár, heldur verða þau að sjá mann setja þær í..) Svo kemur að annari bið, þar sem augnlæknirinn þarf að sjá mig með linsurnar í augunum svo ég geti nú farið heim!! Loksins eftir 1 og hálfan tíma hjá augnlækninum er mér sleppt út... en þarf samt að mæta aftur í þessari viku til að fá staðfestingu á að linsurnar passi mér!!! HALLÓ! Þetta var mesta vesen sem ég hef nokkurntímann átt í. Kostaði líka 7000kr!!
But well.. þá veit ég allavega að augun á mér eru við "hesta" heilsu þrátt fyrir að vera smá örótt.
Núna get ég líka pantað mér linsur á netinu (það er mun ódýrara heldur en að kaupa þær í búð) því ég er komin með recept frá bandarískum lækni! jibbí!
----
Áfram með æðislegu helgarsöguna okkar.
---
Eftir þessa skemmtilegu augnlæknisheimsókn keyrðum við af stað til Lake San Antonio. Þar sem Pasadena er í klst fjarlægð frá Simi - í akkurat hina áttina frá Lake San Antonio, þá bættist klst við keyrsluna okkar. Úff..
Við fórum af stað um hálf 2 og vorum mætt rúmlega 6 á "tjaldstæðið".
Þar biðu Dóra og Eric ásamt Míu og Kees (borið fram "Keis") sem eru mamma og pabbi Erics. Auðvitað voru Emma og Thor (uppáhöldin okkar) þarna líka.
Eric og Dóra komu með tjald handa okkur, en þau sváfu í húsbílnum sem Mía og Kees eiga.
Tjaldstæðið okkar var semsagt alveg uppvið vatnið, á sandinum. Eric og Dóra voru með bátinn sinn og við fórum 1 sinni út á bátinn á föstudeginum. Svo grilluðum við steikur og Bratwursts (pylsur) og höfðum það kósí með varðeld og allar græjur. Emma vildi svo endilega sofa í tjaldinu með okkur Þorsteini þannig að við kúrðum með Emmu á milli okkar á föstudagskvöldið. Laugardagurinn var svo tekinn snemma (eiginlega bara útaf því að Emma vakti okkur klukkan 6.. en jæja!) með pönnsum í morgunmat. Namminamm ;)
Lynn og Mark, vinafólk Dóru og Erics, komu svo uppúr hádegi á laugardeginum. Þau eru alveg ótrúlega hress og skemmtileg. Við fórum svona 5 sinnum útá bátinn á laugardeginum og það var alltaf jafn gaman. Þess á milli lá maður í sólbaði, lék sér í vatninu eða fór í tennis við krakkana. Eric og Mark prófuðu báðir að fara á sjóskíði og var það mjög gaman að fylgjast með þeim ;) Við Þorsteinn vorum ekki alveg að treysta okkur í það ;) Við hinsvegar fórum nokkuð margar ferðir í Viperinn (tuðrann) og það var alveg GEEEEEGGJAÐ. Þorsteinn fór einu sinni með Mark og Mark FLAUG útúr tuðrunni á fleygiferð, en Þorsteinn ætlaði sko ekki að detta útí vatnið og hélt sér sem fastast.
Við erum bæði með hálfgerða strengi eftir þetta. Sérstaklega í brosvöðvunum þar sem maður brosir allann hringinn meðan maður þeysist út og suður á þessu tæki. Maður rígheldur sér svo í að maður er með alla vöðva líkamans spennta. Þetta er alveg geggjað!
Laugardagskvöldið var afskaplega kósí. Heimagerðir hamborgarar, varðeldur og skátasöngvar.. neehh reyndar ekki skátasöngvar, bara mikið spjall ;)
Á sunnudeginum var áframhaldandi stuð og fjör. Vaknað snemma, morgunmatur, út á vatnið (Ég var alla helgina í bikiníinu mínum - og JÁBB.. Hanna er komin með smá FAR!! Vúhú!) heim, borðað hádegismat, leikið sér í vatninu, pakkað saman og keyrt heim.
Við stoppuðum hjá Dóru og Eric og stukkum í sturtu (það var mjög ljúft) og svo eldaði Dóra rosalega gott pasta handa okkur svo við yrðum nú ekki svöng á leiðinni heim :) Við keyrðum svo heim í einum grænum og vorum komin heim klukkan 9 í gærkvöldi.
Úff ég á eftir að lifa lengi á þessari helgi. Hún var alveg hreint ÆÐISLEG! Dóra og Eric eru svo frábært. Við erum svo ánægð að þekkja þau og getum ekki beðið eftir að þau komi til Íslands næsta sumar. Þá ætlum við að reyna að launa þeim gestrisnina, bjóða þeim í góðan mat (íslenskt lambalæri?) og í einhverjar skemmtilegar gönguferðir og svona (þau eru algjörir göngugarpar)
Ég er búin að setja inn myndir frá helginni hingað inn. Svo setjum við líka inn einhver myndbönd á youtube.com síðuna okkar. Set þau annað hvort inná mína síðu eða þá Þorsteins ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
Anna Birna:
Já þetta hefur verið frábær helgi hjá ykkur. Svo heldur fjörið áfram með Gunna, þeir frændur eiga sennilega eftir að leika á alls oddi, ef ég þekki þá rétt. Haldiði áfram að skemmta ykkur svona vel, kveðja úr þokunni og kuldanum (",) Ambagara syss
26.09.06 07:48
mamma:
Já þið verðið sko að gera eithvað fyrir Dóru og Eric
þegar þau koma, það er ekki nóg að pabbi þinn gefi þeim fisk :)
26.09.06 13:24
hljómar ekki illa.. frábært að þið skemmtið ykkur svona vel :D
er að fara að skoða myndirnar :D
heyrumst :D
27.09.06 19:29
Mail á leiðinni... miss you
27.09.06 20:59
Adda:
Hæ elskan, ákvað að kíkka á þig. Það er svo rólegt hjá mér í bankanum:) vá, það munar ekkert um brasið hjá augnlækninum, og allra þjóða "kvikindi" að kíkja á augun þín...ég beið bara eftir að það kæmi einhver pólverji eða grænlendingur....
allavega,hafiði það gott:*
28.09.06 14:32
Snilldar helgi ....
Gaman að lesa alltaf hvað er gaman hjá ykkur ..
Hanna svo verðum við að hittast þegar þú kemur til baka ... ég kynntist þér náttla ekkert fyrr en þú varst bara að fara út ...
Haldið áfram að skemmt ykkur ógisslega vel ...
28.09.06 21:05



