Fimmtudagur 28. september 2006 / 23:16 / Fartölva!!
Ég var að fjárfesta í nýrri fartövlu. Þvílík gleði! Þegar ég áttaði mig á því að hér er hægt að kaupa frábærar fartölvur, meira en helmingi ódýrara en heima á Íslandi þá hreinlega gat ég ekki sofið án þess að fjárfesta í einni. Ég keypti mér semsagt Sony FE770G Core 2 Duo T5600 1.83ghz, 1gb Ram, Camera, 120gb SATA HD, 15.4" LCD fyrir þá sem hafa áhuga á að vita.
Fyrir þá sem vita ekkert um tölvur þá keypti ég semsagt silfraða og hvíta fartölvu sem er extra þunn og létt ;)
Það verður svo gaman að geta LOKSINS lært (er í fjarnámi) útí við sundlaugina (ekki samt oní sundlauginni,.. ónei ónei) þar sem það er enþá 30+ hérna yfir daginn. Núna getum við Þorsteinn líka tölvunördast almennilega þar sem hann hangir í borðtölvunni og ég í fartölvunni. Jibbý! :D
En ástæðan fyrir að ég keypti tölvuna var samt fyrir háskólann næsta haust.
Ég ætla að fara alveg extra vel með þessa tölvu og passa hana SVO vel!
Ég vil enga græna línu yfir skjáinn eftir nokkra daga!! :) Hehehe
----
Annars er Gunninn mættur á svæðið. Hann vaknaði klukkan 9 í morgun.. við Þorsteinn fórum á fætur hálf 11 ;)
Hann er alveg að drepast úr hita greyjið.. við erum samt dugleg að segja honum að það hafi nú verið miklu heitara þegar við komum hingað! (40+ en ekki 30+)
Við erum búin að gefa honum fullt af hamborgurum (en eigum eftir að fara á Fatburger) og líka stærstu pizzasneið í heimi! Ætli við förum ekki með kallinn á "The Habit" sem er uppáhalds "veitingar-skyndibita" staðurinn okkar Þorsteinn. Þar fær Þorsteinn sér alltaf (undantekningarlaust) kjúklingasamloku, og ég fæ mér BBQ Chicken Salad sem er alveg óóóótrúlega gott.
Í kvöld á svo að vera "frænda-tími" þar sem Þorsteinn og Gunni ætla í Bío (held ég) og ég ætla að sitja heima með sárt ennið. Nei nei, bara grín. Ég þarf að læra alveg heilann helling :( Er komin 3 vikum á eftir áætlun í fjarnáminu og ætlaði að reyna að klára þessar 3 vikur á einu bretti. Kemur í ljós hvernig það gengur.
Hollywood var tekin með trompi, og svo er það bara Six Flags um helgina!
---
Breytingarnar á húsinu hefjast svo á mánudaginn næsta. Það verður sko fjör!
Hugsanlegt er að krakkarnir verði hjá Lindu mömmu sinni á meðan á breytingunum stendur, og þá verð ég að vinna "fyrir" Lindu. Þ.e.a.s. fer þangað á morgnana, skutla krökkunum í skólann, sæki þau seinnipartinn og sé um að koma TJ á fótboltaæfingar + heimanám með þeim. Það er eiginlega ómögulegt að hafa þau hérna þar sem eldhúsið mun allt fara út, allar flísar af neðri hæðinni, teppin af efri hæðinni + brjóta niður fullt af veggjum!! Ekki séns að þau geti lært t.d.
---
Af mér er það hinsvegar að frétta að ég er búin að missa 2% í líkamsfitu.. bara svona 200% eftir! (nehh djók!) og mér gengur alveg ágætlega að mæta í ræktina. Missi svona einn og einn dag úr, en er samt mjög samviskusöm. Matarræðið gæti alveg verið betra, en ég panta mér t.d. alltaf salat í staðinn fyrir franskar... og kjúkling en ekki hamborgara!
Eins gott að mér finnst grænmeti rosalega gott, og flestir vita að ég elska kjúkling! :D
Svo er líka freeekar erfitt að halda sig frá namminu þar sem mamma (og fleiri) voru svo góðir að senda okkur fullt af nammi. Ég reyni að láta Þorsteinn um þetta, en stelst samt alltaf annað slagið til að fá mér smá! :) Eignaðist reyndar nokkra vini í ræktinni þegar ég fór með poka af BOMBUM í ræktina og gaf þeim. Þeim fannst þær ekkert smá góðar :)
---
Ég keypti mér geggjaða skó í gær. Þeir eru ekkert SMÁ flottir.. verð eiginlega að taka mynd af þeim og setja hingað inn. Ykkur finnst þeir örugglega viðbjóðslegir, en ég er alveg að fíla þá!
Fílaði þá líka enþá meira þar sem þeir kostuðu ekki nema 14dollara eða um 1000kr! :)
Ég er alveg staðráðin í því að kaupa alveg ógeðslega mikið af skóm hérna. Þeir eru svo ódýrir! Svo eru líka til endalaust margar "gerðir" af skóm. Ég á svo erfitt með að finna mér skó heima á Íslandi. En hérna er það ekkert mál.
Svo er maður samt svo nískur. Sá t.d. Puma-strigaskó á tilboði í gær, 30dollara. Ég bara: "Piff.. ég fer nú ekki að eyða 30 dollurum í strigaskó!"
Svo þegar ég var komin úr búðinni.. þá fór ég að reikna.."10dollara, eru 700 kr. Þá eru 20 dollarar 1400kr... og 30 dollara.... 2100 KRÓNUR!!! HVAÐ VAR ÉG AÐ PÆLA??!!"
Langaði helst að snúa við og hrifsa þá úr hillunni.... Þorsteinn hélt aftur af mér ;)
---
Jæja. Verð að fara að gera eitthvað á heimilinu. Var að enda við að tala við múttu (alltaf jafn gott og gaman að heyra í þér mamma mín) því auðvitað þurfti hún að gefa mér grænt ljós á fartölvukaupin (Ég á enþá erfitt með að taka "stórar" fjármálaákvarðanir án þess að tala við "yfirvaldið" hehe)
Þorsteinn og Gunni eru búnir að þrífa trukkinn að innan, þannig að það er komið að mér að þrífa baðherbergin!
---
Bara eitt að lokum:
Kyssið og knúsið hvert annað frá mér.
Þessi færsla er skráð í flokknum heimilið. Þar eru 25 færslur.
/ Álit
mamma:
Mikið er ég fegin að Þorsteinn fór með þér út. hann bjargar alveg Vísakortinu frá bruna. Heheheh.
29.09.06 12:53
já skil þig með "yfirvaldið" ég fékk t.d ekki grænt ljós á ipodinn og nú á ég engan ipod!!
en fyrst puma skórnir þarna eru svona ódýrir þá vantar mig alveg nýja puma skó...tékka kannski á týpunum á netinu og fæ tig til að tékka á þessu;)
29.09.06 13:27
Freyja:
Í hvaða fjarnámi ertu mín kæra? Ég var svo nísk/blönk/heimsk að klikka á fjarnámi í haust.... verð að drífa í því um áramót, finnst ég staðna .....
Gaman að heyra að ykkur gangi og líði svona vel í útlöndunum. Hafið það gott ljúfurnar. :)
29.09.06 15:31
ég er búin að finna mér alveg geeheðveika skó sem ég er að hugsa um að panta og senda til ykkar...má ég það??
29.09.06 16:00
Snilld.. ég var einmitt að pæla hvort ég mætti aðeins díla við ykkur... ég ræði betur við þig þegar ég hitti á þig á Skype! :D
En til hamingju með nýju skvísutölvuna.. hún á örugglega eftir að stytta þér stundirnar :D hehe.. og gangi þér vel að vinna upp í skólanum.. ekki það skemmtilegasta að vinna upp svona þegar maður er búin að missa úr..
Verðum í bandi skvísa :D
29.09.06 22:53
Óli Helgi:
Til hamingju með tölvuna. Hún lítur mjög vel út, mjög öflug og kemur ábyggilega að góðum notum í náminu.
Óli Helgi.
30.09.06 08:24
Ellý frænka:
Halló kæra frænka í Kaliforníu!
Ég las yfir nýjustu færslununa þína og sé að það er greinilega gaman hjá ykkur :) Ég er sammála þessu með skóna, það er skóbúð hérna rétt hjá mér og ég er búin að draga alla gestina mína þangað, þau eru dolfallin yfir verðinu. Og núna gengur allt, já allt liðið mitt á skóm frá þeim. Við keyptum flotta brúna sandala á Sigmar á 15 evrur (1300 kjeell), svo keyptum við þrjá skó á krakkana á 25 evrur, mjög ljúft :)
Ég vildi að það væri aðeins styttra á milli okkar fyrst við búum jú báðar í útlöndum, þá gætum við hist og keypt okkur skó saman hehe.
Við biðjum að heilsa ykkur, kveðja frá Barcelona.
01.10.06 21:50
Lína:
það er rétt!
heyrðu, sæta.. nennirðu að senda mér email, eða skilja eftir upplýsingar á msninu mínu um hvað ég skulda þér og reikningsnúmer til að borga það? :)
02.10.06 21:33



