Þriðjudagur 29. ágúst 2006 / 04:44 / No more Miss Lazy!
Nú er það bara að duga eða drepast. Ég keypti mér kort í ræktina hérna í dag. Það er nú eins gott að maður nýti nú þetta kort en láti ekki peninginn fara í súginn! :S
Þorsteinn hafði engann áhuga á því að fara í ræktina en hinsvegar sagði Tracey, sem er sú sem á víst að fylgjast með mér í ræktinni, að einhver Scott þarna spilaði með fótbolta liði hérna í Simi og ég fæ nr hjá honum á morgun og þá getur Mr. Morgenroth hringt í hann (hann þekkir hann víst eitthvað smá) og athugað hvort að Steini fái nú ekki að sýna þessum könum hvernig á að spila fótbolta og jafnvel að hann komist í liðið! Það væri snilld :D
Tracey þarna í ræktinni var ekkert smá fín. Á morgun er fyrsti "tíminn minn" þarna, eða þá á ég að hitta hana og hún tekur mig smá viðtal og eitthvað þannig og sýnir mér tækin. Svo er ég bara on my own og geri mitt besta! :)
Nú þarf maður sko pep-up eftir laaangt hlé! Koma svo fólk, kommenta um hvað ég sé æðisleg og dugleg og allt það! :D
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
Lísbet:
Þú ert æði sæði..
En hvað þarf maður að gera til að fá meil frá þér?
29.08.06 10:56
U GO GIRL ...PEPP PEPP PEPP....ég er að reyna að feta í þín fótspor og fara að hreyfa mig, ég og karen ætluðum í útigöngutúra 2x í viku en erum að bíða eftir að kuldaboli takir sér hlé!! það eru komnir hvítir toppar í fjöllin hérna.:s
30.08.06 08:20
hæbb gells, það er aldrei dauður tími hjá þér, enda eitt af skemmtilegustu bloggunum til að kíkka á um þessar mundir. alltaf eitthvað nýtt komið inn.
en varðandi ræktina þá veit ég alveg að þú hefur staðfestu og dugnað til að nota þetta kort, þú sýndir það sýðasta haust og alveg fram á vorið hvað þú ert öflug og dugleg, svo hefur maður nú lesið það líka í færslunum þínum að dugnaðurinn bókstafleg drýpur af þér.. einhvernvegin held ég að fjölskyldan eigi eftir að taka ykkur sem gísla og ekki hleypa ykkur heim aftur á klakann, þvi þá fer allt til fjandans hjá þeim... (tiltektarlega séð) hehe segi svona ;)
kær kveðja úr góða veðrinu í kópó
sandra
30.08.06 11:57
þú ert æðisleg og dugleg og bara freakin HOT ;) kv. Guðný feita :p
30.08.06 19:09



