Þriðjudagur 08. ágúst 2006 / 07:20 / Myndir myndir myndir!

Við erum komin heim gott fólk!
Já vikan í San Luis Obispo var alveg rosalega fljót að líða. Við skemmtum okkur alveg konunglega - time flies when having fun! :D Klukkan hérna er nú samt að nálgast hálf eitt að nóttu og Þorsteinn er sofnaður í rúmminu.. sem á eftir að búa um! Þetta er búinn að vera langur dagur í dag.. fótboltaæfing hjá TJ klukkan 9 og svo leiklistarnámskeið hjá þeim báðum klukkan 13:00 og við að keyra þeim útum allt ;) Ekki slæmt að vera 13ára með einkabílstjóra :D
Annars erum við búin að hanga í tölvunni í mest að kvöld að setja inn myndir. Ég er orðin svo þreytt að ég nenni ekki að skrifa San Luis ferðapistil núna - geri það við fyrsta tækifæri.
Mamma, Gauja, Guðný (mamma Ingvars!) og Freyja -- Gleðifréttir! Loksins hafiði eitthvað að gera í vinnunni!
Hérna eru nefninlega myndir frá Hawaii (restin af þeim) og því miður nennti ég ekki að skrifa við þær allar :S
Svo eru hérna myndir frá San Luis! Meira en 100 myndir sem ættu að stytta ykkur stundirnar í Sparisjóðnum og á Bjargi ;)
Dagný systir, Óli og Daníel eru flutt til Danmerkur. Ótrúlega fjarlægt samt þar sem maður er ekki á landinu til að kyssa þau bless. Sýnist samt á blogginu hans Danna að þau hafi skemmt sér vel á leiðinni út og hafi það nú bara ágætt þarna í Danaveldinu þar sem þau sleikja sólina eins og ég hérna í Kaliforníu! Guðný vinkona er líka farin til Danmerkur og býr núna með Bigga kærastanum sínum. Á morgun byrjar hún í skólanum sínum!! Linda vinkona er í NY núna og fer svo nánast beint í skóla í Svíþjóð þar sem hún mun vefja sænskum skólapiltum um fingur sér eins og henni einni er lagið! ;) Ellý frænka ásamt fjölskyldu er að flytja til Spánar núna á næstu dögum þar sem Alli maðurinn hennar er að fara í skóla. Maður er hreinlega komin með vinafólk útum allann heim!! Maður ætti kannski að leggja land undir fót eftir áramót og heimsækja allt þetta fólk (lesist: nýta sér allar þessar fríu gistingar!) Verst bara að Mundi og Svanhildur eru farin frá Frakklandi - forðuðu sér áður en ég fékk tækifæri til að koma! ;) Þá heimsæki ég bara Svönsu Londongellu í staðinn - og Hrefnu bekkjarsystur svona í leiðinni! :D
Það er nú samt gott að vita af góðum vinum heima á Íslandi sem bíða þolinmóðir eftir manni. Helga, Binni og Dagur bíða spennt veit ég og sama með Aniku og Helga. Lísbet vinkona saknar mín nú svo mikið að hún er (vonandi, hennar vegna!!) að safna uppí ferð til mín! (Er það ekki??!) Heyrði líka í Dömmu vinkonu um daginn og það var alveg frábært - takk fyrir spjallið! :D
Svo má nú ekki gleyma okkar ástkæru fjölskyldum sem við söknum meira en allt. Mamma og pabbi eru orðin vön því að eiga börn í öllum heimsálfum og vita að það þýðir ekkert að tjónka við þeim og reyna að halda þeim heima! Hugsa til þeirra oft á dag... Hvernig fiskast pabbi??! :D
Baddý systir tókst að fótbrjóta sig um daginn (á djamminu, að sjálfsögðu!) og ég hefði alveg verið til í að vera hjá henni og hlæja að klaufaskapnum með henni! Baddý - þú verður að taka mynd af þér og gifsinu!! Og skrifaðu líka á það "Hanna systir er best!" :D
Þorsteinn Ingi frændi er svo að fara ásamt fjölskyldunni og fleirum til útlanda (man aldrei hvert) núna í lok ágúst og eiga þau örugglega eftir að skemmta sér alveg konunglega! Ég sakna þess ekkert smá að sitja í sólskálanum í Öldugötunni og fylgjast með Unni Birtu sýna fimleika "trix" og spjalla við Höllu, Sævar og Þorstein Inga um allt milli himins og jarðar! Halla, ég verð að fara að heyra í þér! Ég var einmitt að segja Þorsteini Björnsyni í dag hvað það kæmi mér á óvart hvað ég saknaði Þorsteins Inga ótrúlega mikið. Það var svo æðislegt að fá hann í heimsókn í Hrísalundinn við áttum svo sannarlega okkar móment á dansgólfinu í höllinni á 17.júní! (hann og ónefnd áttu samt betri móment! hehehe)
Þarf nú varla að minnast á allt Grenivíkurliðið sem er örugglega búið að gera "Velkomin heim!" skilti handa okkur svona til að það sé POTTÞÉTT tilbúið þegar við komum heim ;)
Ég veit ekki hvað ég gerði ef maður hefði ekki internetið. Það er svo æðislegt að fá fréttir frá Grenivík í gegnum Eddu og Sissa-blogg (Hvernig á eiginlega að poppa út þessum unga svo ég geti farið að versla á krakkann??!!) og svo að sjálfsögðu bloggið þeirra Sunnu og Hörpu sem að er í daglegum blogg-hring hjá okkur, sem og síðan hennar Karenar frænku. (Karen, það er nú kominn tími á blogg!)
Úff. Þegar maður fer að skrifa svona um allt fólkið heima sem manni þykir vænt um (og getur ekki einu sinni skrifað alla, eins og Jonna og Baldvin, Jói, Jósi og Arna, Bjössi og Bára, Lukkudýrið okkar hann Gunni, Víddi (ótrúlegt en satt!) Hóffa mamma hans Gunna, Freyja frænka og hennar endalaust góðu brandarar - sem og dansfélagi minn hún Jóna!!...gæti haldið áfram í alla nótt!) þá langar manni bara mest að panta flug heim strax.
Hérna höfum við það hinsvegar mjög gott.. og langar eiginlega frekar að fá alla í heimsókn og halda bara áfram að vera hérna í blíðunni! ;)
Ætla að ljúka þessu væmna bloggi með því að segja ykkur öllum hvað mér þykir vænt um ykkur!
Þúsund kossar handa öllum og sérstaklega litla fólkinu sem vex svo hratt og okkur finnst við vera að missa af svo miklu!!! (Báðar Helgurnar, Fjóla og Sigga frænka! (og bráðum Edda líka) Takið NÓG af myndum af börnunum ykkar sem við getum skoðað þegar við komum heim!!)


Jæja. Óli lokbrá var að banka á gluggann og segja mér að "drullast í háttinn!!" (nákvæmlega hans orðalag)

Langar samt að enda þetta blogg með einni góðri mynd af mér og Dóru á "tuðrunni" góðu ;)

Good night everybody

IMG_0937.JPG


Þessi færsla er skráð í flokknum myndablogg. Þar eru 53 færslur.

/ Álit

Lísbet:

AHAHA hanna þú ert svo fyndin ! :p
Þú getur kannski heimsótt mig til Sviss, jah eða suður.. segi betur frá því í email. Margt búið að gerast alot alot !! ;)
Fer í það að schreiba eitt stykki meil núna

08.08.06 15:03


Guðný:

Ég get alveg sagt þér að allir sakna ykkar líka :) allavega geri ég það! en netið hjálpar til svo maður getur fengið beint í æð það sem þið eruð að brasa. Bæbæ sæta par :)

08.08.06 19:52


Víddi Jóns:

"Víddi (ótrúlegt en satt!)" jájá bara meiningar í gangi hérna:)

09.08.06 10:11


Anna Elvíra:

hæ nennti nú reyndar ekki alveg að lesa allt bloggið satt að segja en ég ætlaði bara að kvitta fyrir komuna ;)
hafðu það gott :D

09.08.06 12:00


Freyja:

Ég varð bara meyr við lesninguna.... ég heyrði eitthvað brjálað væmið lag, sá fyrir mér ameríska fánann blaktandi og gott ef nokkrar dúfur flögruðu ekki upp..... Þú náðir svo góðri stemmningu í blogginu.... Ég fer nú að skrifa bráðum á mitt blogg, hundleiðinlegt að hafa ekkert að segja.... reyndar þori ég varla að skrifa neitt, ótrúlegasta fólkið sem finnur bloggið hjá manni með því að gúggla krimma-nöfnum :/

Ég vona að ég haldi puttunum áfram...

Bið að heilsa og sakni sakni sakn

09.08.06 16:18


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín