Mánudagur 28. ágúst 2006 / 23:23 / GSM!
LOKSINS erum við Þorsteinn komin í samband við umheiminn. Þorsteinn keypti sér nefninlega geggjað flottan síma í dag: Motorola eitthvað eitthvað. Svartur og þunnur. Klikkaður. Það er hægt að fletta upp skjánum og tengjast öllum helstu sjónvarpsstöðvum hérna í USA og horft á þætti. Svo gaf kallinn Þorsteini snúru til að tengja við gítarinn þannig að hann getur spilað inná hann hringitóna! Myndavélin í honum er 5megapixla og með geggjuðu zoomi og svo eru þrír takkar á honum tengdir Taco Bell, Dominos og Fatburger þannig að maður þarf ekki einu sinni að vita númerin á stöðunum heldur bara ýta á takkann og síminn man hvað maður pantar svo að maður bara ýtir á takkann og þá kemur maturinn heim til manns eftir ca hálftíma! Svo er innbyggður translator í honum, maður talar í hann á ensku og hann þýðir yfir á öll helstu tungumálin eins og frönsku og spænsku. Þú getur tengt hann við heimavörnina hjá þér þannig að ef þú ferð að heiman og gleymir að setja á öryggiskerfið þá geturu gert það úr símanum. Eins líka með bílskúrshurðina, takki til að opna bílskúrshurðina! Þetta er bara geggjaður sími! :D Kostaði ekki rassgat svona miðað við allt sem honum fylgir.
Gsm númerið okkar er 001-805-304-8960 og þið megið endilega hringja í okkur hvenær sem er! Enginn sem svarar nema við. Svo viljum við biðja einhvern um að senda okkur sms í þetta nr við tækifæri og athuga hvort við fáum það ekki alveg örugglega ;)
Thank you so much
Hanna
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
mamma:
það er notturlega flott að geta pantað mat, en kannski soldið erfitt þegar þið verðið komin heim,
gæti verið komin skrítinn litur á hann, hahahah
29.08.06 17:04
u lazy ars american!;) lesa "þau" nokkuð bloggið?
30.08.06 08:43
Til hamingju með nýja símann! Þvílíkt aukadrasl sem er í honum! Fellur þetta með matinn bara úr gildi þegar þið komið heim eða? Ég var samt að spá, haldið þið að þið fáið ekki væg fráhvarfseinkenni þegar þið komið heim?;)
30.08.06 18:59



