Miðvikudagur 09. ágúst 2006 / 18:33 / Brjálaður hundur
Ég var að laga til hérna heima áðan og fann loksins hundaólina sem ég er búin að leita svo lengi af. Piper (hundurinn) varð svo ánægður að sjá ólina að hann vildi ólmur fara út að labba og ég gat bara ekki sagt nei við svona ánægðan hund og ákvað að labba bara smá hring hérna í götunni.
Hann er rosalega góður í taumi þannig að það er alltaf mjög auðvelt og skemmtilegt að fara með hann út að labba. Svo erum við að labba framhjá einhverjum stórum jeppa þegar það koma allt í einu tveir hundar hlaupandi "undan" jeppanum. Annar er pínu lítill "tösku" hundur (svo lítill að hann passar í töskuna hjá manni!) en hinn er stór scheffer!! Schefferinn var ekkert smá GRIMMUR og gelti og urraði á okkur. Piper greyjið stóð bara kyrr og ég stóð við hliðná honum. Yfirleitt þegar maður hittir svona aðra hunda þá urra þeir pínu fyrst, gelta og "heilast" svo og leika sér. Þessi Scheffer var greinilega varðhundur og byrjaði að hlaupa í hringi í kringum okkur! Eigandi kom þá og kallaði hann en það æsti hundinn bara meira og hann stökk á Piper og glefsaði í hann! Piper færði sig bara nær mér og við byrjuðum að labba hraðar og hraðar og Schefferinn hljóp alltaf í hringi, hlustaði ekkert á eigandann og reyndi aftur og aftur að bíta greyji Piper! Ég var næstum búin að kúka í buxurnar af hræðslu, en pældi samt ekkert í því að hann gæti hugsanlega bitið MIG því ég var svo hrædd um elsku Piper. Það endaði með því að við sluppum inn. Ég hálf grenjandi og Piper skjálfandi. Eigandinn af Scheffernum sagði bara "I'm so sorry..." aftur og aftur (ég er í USA) og ég sagði alltaf bara "its okay, its not your fault.." sem er alveg satt því við höfum greinilega bara verið "of nálægt" heimilinu hans (að hans mati, við vorum á gangstéttinni) og þessvegna hefur hann viljað verja húsið sitt.
Úff ég skelf enþá. Greyji Piper. Ég er samt rosalega stolt af honum að hafa bara haldið ró sinni og staðið eins og stytta við hliðná mér og hlýtt mér í einu og öllu. Ég veit ekki hvað ég hefði gert ef að hann hefði brjálast líka!
Já það er ekki alltaf bara draumur að búa í Ameríkunni! Hundar á hverju heimili og eins gott að passa sig.
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Lísbet:
Ég hefði örugglega farið að grenja sko! Ég hef einu sinni lent í að hundur komi svona nálægt mér, ég fraus gjörsamlega, barði hann svo í hausinn og hljóp burt !! Hefði örugglega ekki verið sniðugt í þínum sporum ;)
En hafði það gott Hanna mín og takk æðislega fyrir símtalið í gær, mér þótti ekkert smá vænt um það :*
Lovjú
10.08.06 13:58
vo .. crazy Dog! Um daginn tegar eg sat i lestinni a leidinni "heim" til Brooklyn kom dokkt par inn i lestina (tau voru orugglega svona 16 'ara!) med svona 2 ara strak.. litli strakurinn for eitthvad ad skaela og ta oskrar pabbinn!: Shut the Fuck up or I'll throw you out of the train... mer bra ekkert sma! Svo stodum vid upp og vorum ad fara ut (vorum5 saman) og ta segir litli strakurinn: Here does all the white people live..... Pabbinn: Shut the Fuck up you, nigga ! 'eg var i sma menningarsjokki eftir tetta .. hehe
Knus og Kossar :D
10.08.06 14:45
Það er greinilegt að þú skemmtir þér þarna úti ég er hreynlega að koma þangað eftir 17 daga! Loksins, loksins! En það er samt svo mikið sem ég á eftir að gera þangað til að ég kem út! Ég verð bara að fara að byrja að pakka ef ég á að geta verið búin að þessu áður en ég held af stað!
10.08.06 21:05



