Þriðjudagur 11. júlí 2006 / 08:49 / Smá viðbót...
Já - ég vil líka bæta því við að ég er búin að missa 20+kg og yfir 100cm! En ég er líka búin að bæta við mig (örugglega) mörgum kg af vöðvamassa sem ég hefði ekki gert ef ég hefði haldið áfram/verið á/ Herbalife eða farið á DDV.
---
Held líka að ég hafi ekki sagt mörgum frá ástæðunni fyrir að því að ég byrjaði í þessu ræktarstússi..
En var þegar ég sá þetta á netinu og sló inn af alvöru hvað ég var þung og svo cm.
Þá sá ég þetta:
Offita
(verulega aukin dánartíðni)
og áttaði mig á því að ég vildi ekki vera undir flokk sem héti "OFFITA" því það þýddi VERULEGA AUKIN DÁNARTÍÐNI!
OMG.. ég ætlaði sko EKKI að deyja frá börnunum mínum.. fertug að aldri og láta kranabíl sækja mig uppá 4.hæð í Hrísalundinum!!!!
Med de samme sendi ég Lísu einkaþjálfara tölvupóst og byrjaði hjá henni vikunni á eftir!
Núna kemur þetta
HEILBRIGÐI
með stórum stöfum :)
Þvílík snilld... þvílík gleði!! :D
Ég mana ykkur ÖLL til að fara inná þetta og athuga hvað BMI jafnvægið ykkar er... af alvöru!
Ef það er yfir 30 þá verðiði að hugsa ykkar gang... eins og ég gerði :)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
Heyr Heyr!!
Flottur pistill hjá þér.. þetta fær mannt il að hugsa sig um.. :D ég er alveg sammála þér með þennan þátt um feitu gellurnar! er þetta ekki orðið too much!? Allt í lagi að vera ánægður með sjálfan sig, sama í hvernig líkamlegu ástandi þú ert, en þú þarft ekki að búa til TV þátt um það og deila því með öðrum!
Alla vega.. ég er mjög stolt af þér hvað þú náðir geggjuðum árangri hjá Lísu! Til hamingju skvísa!! en við verðum í bandi..
Knúsknús!
11.07.06 11:45
frábært hjá þér systa! passaðu að skemma þetta ekki með því að borða mikið hormónakjöt þarna úti...fáu bara liðið með þér í hollustuna svona af því að þú ræður í eldhúsinu;) (en þú verður samt að smakka taco-bell, ohh mig langar soooo ííí sols!!)
11.07.06 15:56
Lísbet:
Bara eins og í leikritinu "Hungur". Þvílíkt og annað eins! En hey skoðaðu e-mailinn, krassandi fréttir!
11.07.06 17:24
Það er nú aldeilis! Til hamingju með árangurinn! :D Þetta hlýtur að hafa verið mikill léttir:)
11.07.06 19:58
Dugleg ertu stelpa!! Til hamingju með árangurinn.
Ég mæli með lestri 'Fast Food Nation' eftir Eric Schlosser. Það er bók sem virkilega fær mann til að hugsa um matarvenjur og hollustu, sérstaklega í Bandaríkjunum. Mæli með því að hún sé lesin áður en fólk neytir kjöts (sérstaklega í Bandaríkjunum :)
11.07.06 20:44
freyja:
Júbb, eins og ég vissi, ég er "ofalin".
Nú hnýti ég á mig strigaskóna!!
;)
12.07.06 00:13
Ég er stolt af þér.... ;*
12.07.06 12:32
Já Freyja.. þú verður nú að tala við hana móður þína og fá upp ástæðuna fyrir því að hún ól þig of mikið upp?! Hvað er málið?? :D
12.07.06 17:16
Freyja:
hehehe, það er líklega gamla tuggan"já en börnin í Eþíópíu fá ekkert".....
Ekki það að þau hafi neitt liðið minni skort elskurnar ef að ég kláraði matinn minn....
14.07.06 00:09



