Laugardagur 15. júlí 2006 / 23:50 / Simi Valley :)
Góðan dag. Nú verða lesnar veðurfregnir. Veðurfregnir les: Þú.
Í Simi Valley er nú rétt í kringum 40°c eða 102°F. Hæg norð-suð-aust-vestlæg átt (hver þekkir áttirnar hérna? Held samt að hún sé að austan...) Sólin er hátt á lofti og ekki ský á himni. Í dag er upplagt veður fyrir sundferð og bikini-far.
-------
Kvöldin hérna eru besti tíminn. Þá er hreinlega eins og bærinn lifni við. Fólk fer út að labba með hundana sína og börnin. Allir eitthvað svo afslappaðir og matvöruverslanirnar eru opnar til svona 9 eða 11 á kvöldin og því um að gera að versla í matinn að kvöldi til þegar eggin steikjast ekki sjálfkrafa í bílnum á leiðinni heim.
Í gærkvöldi fórum við í bío og sáum PIrates II og höfðum gaman af. Sérstaklega var samt gaman að sjá Þorstein engjast í sætinu síðustu mínúturnar því hann var alveg að míga á sig (hef aldrei séð annað eins!) og beið ég eiginlega eftir því að hann segði "of seint... búinn að pissa á mig!"
Hann lét sig hafa það og stóð upp þegar það voru svona 3mín eftir af myndinni hehehe.
Hinsvegar var svolítð sérstakleg að sjá hjón með tvö börn á sýningu kl 10 um kvöldið. Börnin voru svona 2ja ára og 6mánaða. Litla barnið svaf í vagni mest alla myndina og hitt barnið annað hvort sat rosalega þægt og gott eða svaf í fanginu á foreldrunum. Note Bene, þetta var 3ja tíma mynd! En þetta gekk alveg rosalega vel hjá þeim og gaman að sjá að þetta er greinilega hægt! :D HKJ - þú kannski prófar þetta einhverntíman með Dag? Hehehe.
Eða Helga Kristín á Grensó með Sunnu Billu og Gísla? ;)
--------
Í dag fórum við "fjölskyldan" í bankann og ég fékk bankareikning. Það tók ekki nema rúmlega 2 klst en er vonandi þess virði ;) Ég fékk 25 dollara fyrir að skrá mig í viðskipti við bankann, og svo fæ ég aftur 25dollara þegar Þorsteinn skráir sig OG hann fær líka 25dollara! Þannig að þá erum við orðin 75dollurum ríkari af því að skipta við þennan banka ;) Frábært ekki satt? Hehehe.
Núna getur Rob bara millifært launin sjálfkrafa í hverri viku og þá þarf aldrei að hafa áhyggjur af því meira. (Ekki það að við hefðum einhverjar áhyggjur... hehe)
-----
Jæja. Ég gæti skrifað endalaust langan pistil um allt sem að gerist hérna. Ég ætla hinsvegar að athuga hvort að Þorsteinn sé nokkuð drukknaður í sundlauginni og svo slétta á mér hárið. Kannski Þorsteinn vilji líka koma með mér til Ventura í mollið þar ;) Aldrei að vita.
Annars þarf ég að sýna ykkur smá mynd sem ég tók í gær af öllum fötunum sem ég er búin að kaupa mér hérna úti. Við erum samt að tala um að þetta eru bara föt sem ÉG er búin að kaupa Á MIG! Ekki ALLT sem að búið er að kaupa! :D
Bíðið bara spennt. Við setjum inn myndir í kvöld ;)
Kv. sunddýrin
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
passið bara að the immigration komist ekki yfir reikninginn og sjái að þið eruð að fá reglulegar greiðslur...lítur ekki vel út!
17.07.06 00:42
Elskan þarf ekki að reyna, yrði hörmung, Dagur er aldrei kyrr....ekki sek. og er alltaf öskrandi...hehe
17.07.06 17:59
ok..ég ætla ekki að prófa svona bíóferð...tek þau ekki einu sinni með í Bónus!! en þú mátt alveg fá ormana mína lánaða og gera tilraun hvenær sem þú vilt! ;)
17.07.06 22:59
Mamma:
Ég segi nú eins og Baddý að það er eins gott að ''stóri bróðir'' komist ekki að þessu og haldi ekki að þið séuð í vafasömum viðskiptum. ; /
17.07.06 23:39



