Miðvikudagur 12. júlí 2006 / 22:39 / Peanutbutter and Jelly
Jæja. Þá er vinnudeginum mínum lokið. Ég er reyndar varla búin að setjast niður í dag og búin að þrífa heilan helling. Ekkert skrítið að ég sé búin snemma ;)
Þorsteins vinnudagur er hinsvegar ögn lengri en minn.. Ég fór með honum á mánudaginn og hafði nákvæmlega ekkert þangað að gera. Var eins og illa gerður hlutur mest allann tímann. Þorsteinn líka :) Hehe. Það er nefninlega búið að gera mest allt sem þarf að gera þarna, nema það "stóra" eins og að ganga frá eldhúsinnréttingunni og leggja parket. Það er eitthvað sem að smiðirnir sjá um. En þegar Rob kom heim áðan þá sagði hann að Þorsteinn væri að vinna alveg á fullu núna í einhverju verkefni. Hann hafði reyndar áhyggjur af því að Þorsteinn myndi annað hvort:
A) Drepast úr hita
B) Drepast úr svengd
En það kemur í ljós í lok dagsins hvort hann komi heim eða ekki! :D
Við vorum bæði í fríi í gær vegna þess hversu lítið er að gera í Boníta og að krakkarnir eru ekki heima. Kim kom svona um 2 leytið með bíl handa okkur og við skruppum í smá verslunarferð - sem reyndist síðan vera ansi kröftug! Keyptum t.d. Skype-heyrnartól þannig að núna getum við talað á fullu í gegnum Skype ;)
Við keyptum líka fullt af afmælisgjöfum handa liðinu heima og er ætlunin sú að komast í póshús sem fyrst - en það er reyndar hægara sagt en gert þar sem Robert kemur aldrei heim fyrr en svo seint og við fáum ekki bíl for good fyrr en á föstudaginn! Þannig að þið verðið bara að bíða þolinmóð (Anika) - þetta kemur seint, en kemur þó! :D
Dylan var hjá okkur mest allan gærdaginn. Það er rosalega fínt að "hanga" með honum. Hann hefur alveg sjúklegan áhuga á íslenskunni og hlustar af áfergju þegar við Þorsteinn tölum saman. Uppáhalds bókin hans þessa dagana er því ensk/íslensk orðabók og les hann hana eins og skáldsögu! :D Hehehe
Við fórum í Bed-Bath and Beyond í gær (þeir sem hafa séð bíomyndina Click ættu að kannast við þetta nafn!!)
og keyptum okkur rúmföt þar sem rúmfötin hérna eru.. tja.. æji ekkert spes ;)
Núna erum við með lak + sængurver + koddaver sem er allt með eins munstur!! Mjög skondin sjón ;)
Annars sofum við nú ekki með sæng, heldur bara einfald sængurver þar sem sæng myndi hreinlega drepa mann úr hita.
Jæja. Ég er að hugsa um að skreppa niður og jafnvel alla leið útí sundlaug svona í tilefni af því að hitinn hérna inni í herberginu er að nálgast 40gráðurnar (mætti halda!)
Hafið það gott og haldið áfram að kommenta eins og brjálæðingar! :D Það er svo gaman að fá komment!
Svo setjum við inn myndir þegar við erum búin að safna aðeins fleirum ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
baddy systir:
ertu ekki að verða búin að taka allt í gegn þarna, þú ert alltaf að þrífa og laga til...eða var þetta kannski svona hrikalegt?!! mig langar í smá sól og hita, reyndar veit ég ekki alveg hvernig veðrið er búið að vera hérna þar sem ég sef á daginn en það var rigning síðustu nótt!!
13.07.06 02:10
hehe.. no worries!! ég bíð bara spennt ;D
Við verðum svo að fara að skipuleggja SKYPE tíma :D heyri í þér :D
13.07.06 13:13
Pant líka fá Skype-tíma :D
13.07.06 18:57
Nanna:
Hæ sætigrís! Ég er alltaf að fylgjast með þér hérna á síðunni og bölva í hljóði því ég öfunda þig svooooo..... ;) Hafðu það gott og passaðu þig á crazy people in amerika ! ;)
13.07.06 19:42



