Sunnudagur 16. júlí 2006 / 07:08 / Föt!
Hérna kemur myndin sem ég lofaði í færslunni hérna fyrir neðan (örugglega enginn búinn að lesa þá færslu þar sem klukkan er jú bara rétt 7 um morguninn hjá ykkur!)

Jább.. Jóhanna er aðeins búin að versla - eins og Þorsteinn bendir réttilega á. Held að ég sé aðeins líka að missa mig í gjöfum til að senda heim. EEEnnnn, maður er víst bara einu sinni í USA og því um að gera að njóta þess og nýta sér það í leiðinni! :D
ATH! Bleikubuxurnar niðri í hægra horninu eru sko náttbuxur! Ég var ekki að kaupa mér bleikar hversdagsbuxur - þó svo að þú haldir alveg að ég sé líkleg til þess elsku Olína mín ;) Híhí
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Gleymdi alveg að skrifa hvað rúmteppið er fallegt og liturinn á veggnum alveg hreint dásamlegur!! :D Hehehehe
16.07.06 07:24
Vá! Þetta er slatti! En eins og þú segir, maður verður að nýta tækifærið;)
16.07.06 11:03
Sæl Hanna
Héðan er sko allt gott að frétta! Ég var sumsé að komast að því að ég er að fara að koma til USA sem aupair. Ég er búin að tala við eina fjölskyldu, þau búa í Seattle. Eins og staðan er núna virðist allt stefna í það að ég sé nú barasta að fara til þeirra!
Guð hvað ég var fegin þegar konan hringdi á föstudaginn þetta er virkilega komið á hreint!!!
16.07.06 14:41
Frábært að heyra Kristín mín!! Æðislegt! :) Þú munt örugglega hafa það gott í Seattle. ;)
Þú mátt endilega senda mér e-mail á missreykjalin@gmail.com og segja mér meira :D
Sjáumst!
16.07.06 17:23
hehe ég sagði þetta nú líka einu sinni að maður fer nú bara einu sinni til USA en eftir það þá er ég búin að fara þrisvar sinnum í viðbót! hehe
17.07.06 00:44
úuu fá bara útvaldir þetta e-mail....ekki einhverjar þreytandi vinkonur eins og ég;P
17.07.06 18:01



