Þriðjudagur 11. júlí 2006 / 08:04 / Eitthvað allt annað...

Núna vil ég skrifa um eitthvað annað en Ameríku. Eða reyndar tengist þetta Ameríku - nefninlega sjónvarpsauglýsingum. Alltaf þegar við erum að horfa á þætti/bíomyndir hérna, þá koma svona ca 3-4 auglýsingahlé, sem hver eru 90sec. (nei, ég tók ekki tímann.. það kom einhverntíman framm í sjónvarpinu!! hehe)
Í þessum auglýsingahléum eru amk 3 auglýsingar, alltaf, um fitu - aðferðir til að grennast, frábærar lausnir og einfaldleikinn hafður í fyrirrúmi!
Vandamálið er ekki það að þú borðir of mikið, of óhollt og hreyfir þig of lítið í samræmi við það.. nei nei nei.. vandamálið er Cortisol! Hormón sem skapast af stressi!! Það er ÞAÐ sem gerir þig feita/feitann. Þess vegna bjuggum við til Retrosol (eða eitthvað álíka heimskulegt nafn)... og alltaf enda auglýsingarnar á "Soo easy, I couldn't believe it!"
Bestar eru samt auglýsingarnar þar sem þú þarft aðeins að gera magaæfingar/nota trimmform/hlaupa á sérútbúnu hlaupabretti/vera á skíðavélinni... í 10-20 mín á hverjum degi og þá sérðu árangur innan mánaðar!
En málið er ekki hvort þetta er auðvelt eða ekki - létt eða erfitt.. þetta er allt spurning um að NENNA og standa við það sem maður ákveður!! (En það getur líka verið alveg drrruuullu erfitt!!)
Ohh ég get orðið svo pirruð á þessum auglýsingum. Svo fer maður á netið og sér fuuullt af Herbalife auglýsingum og eitthvað þess háttar. Að sjálfsögðu hefur Herbalife hjálpað fuuullt af fólki og gert margt gott... sama og með Danska kúrinn eða DDV.
En þetta kemur allt niður á sama staðinn - borða hollt = nóg af vítamínum - minni fitu!


Þetta er bara einfalt reikningsdæmi... Borða réttan fjölda af kaloríum á dag (ekki of lítið og ekki of mikið!) og hreyfa þig í samræmi við það! Ef þú hreyfir þig meira en þú ert að borða af kaloríum (samt borða passlegt af kaloríum, ekki of lítið! Þá fer líkaminn í vörn!!) þá grennistu!! Ef þú hreyfir þig jafnmikið og þú ert að borða af kaló þá stenduru í stað - og ef þú borðar fleiri kaló en þú brennir- þá fitnaru!! It's really that simple folks!


Þú átt ekki að þurfa að eyða tugum þúsunda í pillur á hverju ári. Þú átt heldur ekki að þurfa að mæla ofaní þig hvern einasta munnbita. Bara HUGSA ÁÐUR EN ÞÚ BORÐAR!
Svo er málið með DDVkúrinn og Herbalife. Frábært þegar fólk grennist og líður þar af leiðandi mun betur (aukið sjálfstraust, líkamlegir kvillar minnka eða hverfa eins og t.d. sykursýki!)
... en hvað með vöðvauppbyggingu? Hjartað? Þolið? Húðina? Allt þetta finnst mér oft verða útundan í þessum "skyndikúrum". Þessir kúrar eru til að koma fólki af stað. Ég veit um mörg dæmi frá DDV þar sem fólk er grannt með drulluslappa húð og ekkert þol af því að DDV losaði líkamann bara við fitu - bætti ekki inn neinum vöðvamassa undir alla þessa húð!
Málið er bara það að þú kemst ekkert hjá því að hreyfa þig! Lífið snýst allt um hreyfingu! Í alvöru... það snýst í alvöru um að hreyfa sig!
Fara út að labba með hundinn. Hlaupa útí bíl og sækja innkaupapokana og halda á þeim inn (jafnvel uppá fjórðu hæð!) Leika við börnin í garðinum - eða elta þau þegar þau stinga af niðri bæ eða í mollinu!
Þess vegna er mjög mikilvægt að vera líkamlega hraustur, ekki bara "fallegur og mjór!"
Það er ekkert eins sorglegt og algjörar mjónur sem geta varla haldið á töskunni sinni, lyft undir barnavagn ofl án þess að blása og dæsa yfir því hvað hlutirnir eru þungir... Þær þurfa alveg jafn mikið í ræktina og þær konur eða þeir menn sem eru með aðeins utaná sér! Það að vera of horaður leiðir líka til ýmissa vandamála eins og t.d. beinþynningu á seinni árum, slappleiki/orkuleysi, vöðatap ofl ofl...
----
Svo er það annað. Það er verið að auglýsa þátt sem á að byrja núna fljótlega á einhverri stöðinni hérna.
Þátturinn fjallar semsagt um feitar stelpur sem lofa það að vera feitar.. eru sáttar við sjálfa sig og taka þátt í fegurðarsamkeppni "feitu stelpnana!"
Frábært ef þær eru sáttar við sjálfa sig... en mér finnst þetta vera öfgar í hina áttina. Twiggy var auðvitað hrrriiikaleg þegar hún kom fyrst á sjónarsviðið og allir vita að það er ekki hollt að vera svo horaður eins og hún. Hinsvegar er þessi þáttur algjörlega öfgakenndur í hina áttina.
Afhverju að lofa fituna, þegar við vitum öll að hún getur valdið sykursýki, gigt, bakverkum, verkjum í hnjám, of háum blóðþrýstingi/blóðsykri, kransæðastíflum og lokum hjartaáfalli sem getur leitt til dauða.....
Þetta er algjört bull!
---
"People my age should start thinking about what they eat!" - Segir karlmaður á fimmtugsaldri og brosir.
Ég segi -- "'Fólk á mínum aldri, á að hugsa um það sem það borðar!"
Eins og Baddý systir sagði einhverntímann eitthvað mjög gáfulegt um sjúkdóma og stríð.
Ég man ekki alveg hvernig það hljómaði .. og fæ því að breyta því aðeins eftir mínum hentugleika (Sorry Baddý!)

Það að byrja að hugsa um matarræðið á seinni árum,
er eins og byrja að smíða vopnin þegar stríðið er löngu hafið!

---
Afsakið innilega ef ég móðgaði einhvern. Þetta eru alfarið mínar skoðanir og enganvegin að ætlunin að særa nokkurn! :)
Langt síðan ég hef haft svona "heitar tilfinningar" fyrir einhverju - varð bara að deila þessu með ykkur! :)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

Helga Kristín:

vá þú hefur breyst svo eftir að þú byrjaðir á þessu, bara til hins betra.....!!! miss u

11.07.06 13:40


Vala:

Fínn pistill...... algjörlega sammála með hreyfinguna en svo getur þetta líka verið svo skrítið þegar fólk hamast alltaf í ræktinni en passar sig á því að fá stæði fyrir bílinn alveg upp við hurðina og lappa aldrei upp stiga eða hreyfa sig neitt þess á milli. Ég er eins og þú með mjög sterkar skoðanir á þessum málum og gæti skrifað hér heillangan pistil...... en ætla nú ekki að vera að tuða eitthvað hér.... fara bara hinn gullna meðalveg:)

11.07.06 14:30


Dagný:

Alveg gjörsamlega sammála þér, málið er bara með USA að það stjórnast allt af markaðnum og peningum. Það er voða erfitt að búa til auglýsingu þar sem maður selur það að þú þurfir ekki neitt auka dót, þurfir bara að velja rétt í lífinu. Þú græðir allavega ekki mikið á að selja það. Og flestum þessum seljendum er í raun alveg slétt sama hvort þú nærð árangri eða ekki, vilja helst að þú náir ekki árangri því þá ertu jafnvel tilbúinn til að prófa næstu vöru.

Dr Phil (sá hann í sjónvarpinu um daginn) er reyndar að selja eina hugmynd sem er kannski ekki svo vitlaus; kallar hana: The Ultimate Weight Solution: The 7 Keys to Weight Loss Freedom: http://www.amazon.com/gp/product/0743236742/104-3244018-0770368?v=glance&n=283155 og það er í sjálfu sér ágætt, bara fyndið að það verður að heita ULTIMATE til að einhver grípi það ;)

11.07.06 15:58


baddy:

setningin mín hljómaði svona:
"barátta við sjúkdóma er eins og að byrja að smíða vopnin þegar stríðið er þegar hafið" þetta finnst mér vera orð að sönnu því fyrirhyggjusemi er allt sem þarf!. mér finnst líka erfitt að þegar maður er innan BMI þá finnst manni ekkert eins mikið eins og maður þurfi að fara í ræktina og hreyfa sig og svona og hugsar alltaf á morgun! það vantar alla hvatningu og vilja!

11.07.06 16:16


baddy:

ég verð líka að segja annað að ég held að það sé mjög sniðugt að fá sér einkaþjálfara, þá lærir maður almennilega inn á tækin en líður ekki eins og aula þegar maður kemur að tæki sem maður kann ekkert á og sleppir því frekar...svo getur hann líka rekið mann áfram til að hreyfa sig. og svo finnst manni pínu eins og maður sé að mæta fyrir hann en ekki mann sjálfan og einhverra hluta vegna er oft auðveldara að gera hluti fyrir aðra en sjálfan sig!

11.07.06 16:34


Sigrún J:

Mér finnst mjög skrítið að fólk er virkilega sumt, ennþá að bíða eftir grenningarkúrnum ógurlega sem gerir þig .vengmjóan á viku á hreyfingar! En það er að sjálfsögðu þannig að með alla megrunarkúra að það á alltaf að vera samhliða hreyfingu. Uppá líffæri, blóðrás og alla líkamsstarfesemi. Því verður ekki haldi við með megrunarkúrum.

En Herbalife og DDV eru ekki líkir kúrar. Það er alveg satt með það að í danska kúrnum ertu bara að grennast, en að sjálfsögðu geturu byggt upp vöðva líka eins og á venjulegu fæði. Með nreyfingu!

EN herbalife er ekki megrunarkúr og hefur aldrei verið markaðsettur sem slíkur. Þetta er bara lífsstíll og þú verður að vera tilbúinn til að breyta um líffstíl. Þetta er líka heimafyrirtæki fyrir suma. Og hvort sem þú trúir því eða ekki þá er ég í fyrsta skipti farin að nenna og vilja hreyfa mig eftir að ég byrjaði á herbó. Þetta er bara val hvers og eins og það verður hver og einn að finna það sem hentar sér. Það er ekki hægt að benda á hitt og þetta og segja það það sé eitthvað verra en hitt.

Hafðu það gott elskan !

11.07.06 17:55


Freyja:

Ég sé að þetta er þitt hjartans mál, og er það gott. Þú lítur rosalega vel út Jóhanna mín, en auðvitað skiptir líka máli hvernig þér líður innanbrjóst. Þú varst algjör gella og gullmoli áður en þú breyttir um lífstíl, þetta er líka hugarfarsástand. Þú varst agalega góð og skemmtileg...... ekki gleyma því!!! Auðvitað finn ég að þú ert ánægð með að hafa breytt um lífstíl og það finnst mér alveg frábært. Þetta hefur svo mikil áhrif á lífið.

Mér finnst t.d. þessir kúrar sem "eru svo einfaldir, yet so effective" vera bull.... en t.d. með Herbalife, þá hefur maður aukna orku einmitt til þess að hreyfa sig (eins og Sigrún J bendir réttilega á).

Það sorglega (segi ég, fyrir mig) er að ég veit fyllileg að þetta eru litlu smáatriðin sem skipta máli.... ein kókflaska (rauð og helsykruð), smjör á brauðið (þó svo að það sé spelt-brauð), nart eftir kvöldmat, skyndibitaval (það er alveg eins auðvelt að kaupa sér banana út í búð eins og einhverja samloku eða kexpakka).

Mín kenning er að hver er sinnar gæfu smiður og hver sem er getur breytt sínu lífi, sé vilji til þess. Þetta kann að hljóma hranalegt en þeir sem eiga erfitt, þá er ég að meina í sálinni, ættu að leita eftir aðstoð ef þeir vilja breytast og eru tilbúnir til þess.... stundum þarf fólk tíma til að taka sig í gegn í sálinni áður en haldið er af stað í ræktinni og þá má ekki ýta á eftir því, frekar hvetja á nærgætinn hátt... ég myndi verða svo sár við enhvern sem myndi benda mér á að ég þyrfti að grennast!!! Arfafúl sko!!


Eftir þessa lesningu langar mig mest út að labba/skokka,,,,, en it´s past midnight svo að ég ætti bara að leggjast til hvílu :) Á morgun (segir sá lati, ekki satt)

Góður pistill Jóhanna og ég hvet þig áfram til dáða. Þú stendur þig svo vel ;)

hafðu það gott í útlandinu stóra

12.07.06 00:10


mamma:

Hananú þar opnaðist flóðgáttin. :) En þetta er allt satt og rétt hjá þér elskan, og við erum regluleg stolt af þér, þú ert lýsandi dæmi um hvað hægt er að gera ef viljinn er fyrir hendi, en eins og þú segir það verður hver og einn að finna sinn vitjunartíma.
Koss og knús ma+pa+p

12.07.06 11:37


Jonna:

Vá smá pirrandi... ég skil þig alveg, það er ekki skrítið að fólkið þarna úti er næstum allt feitt eða þvengmjott... þvílikar öfgar.... En vert þú bara dugleg sjalf... þú ert gott dæmi að þetta er hægt ef að maður hefur viljann og sjálfsagann... ég fann eina mynd um daginn á síðunni hennar Aniku síðan á útskriftinni hennar í fyrra og váá...breytingin.... ég er ekkert smá stolt af þér... held að ég segi þér það ekki nógu oft... En þú veist það og haltu áfram að vera dugleg en engar öfgar.... sakna þín... jonna

12.07.06 12:29


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín