Laugardagur 08. júlí 2006 / 00:39 / Chino og bílskúrinn..
Þvílíkt og annað eins drasl hef ég bara aldrei á ævi minni séð áður. Bílskúrinn var svo yfirfullur af dóti að það var ekki fyndið, en við Þorsteinn tókum okkur til í dag og tæmdum hann nánast algjörlega! Það tók okkur rúmlega 2klst að koma öllu dótinu út og á stéttina fyrir framan. Við skiptum því í þrjá parta - Hlutir sem á að eiga, hlutir sem á að henda og hlutir sem á að selja. Vúhú.. Verst bara að eiga-parturinn er svolítið stór partur! Svona um hádegi kom svo Rob og sótti Þorstein og Þorsteinn fór að vinna. Ég hélt áfram að tæma skúrinn.. þrífa hann og svona. Þvoði nokkrar vélar af þvotti sem var orðinn ansi skrautlegur einhverstaðar í hrúgu inní bílskúrnum og dundaði mér bara. Sem dæmi um hvað það er mikið að gera hjá Rob, þá er ég búin að bíða eftir honum síðan klukkan 1 í dag (núna er kl næstum 6) svo hann geti farið í gegnum allt draslið með mér. Hann er búinn að koma hingað heim 2x í dag og í bæði skiptin verið á hlaupum. Hann veit samt að ég er að bíða og ég veit vel að hann er upptekinn þannig að ég nýt þess bara að hanga í tölvunni á meðan ég bíð ;)
Bílskúrinn var semsagt svona... en er núna svona... og þetta er allt draslið sem við fórum með út!! Bara smotterí, hvað er ég að kvarta?! ;)
---
Í fyrrakvöld bað Robert okkur Þorstein um að skreppa fyrir sig til Chino daginn eftir (í gærmorgun) og ná í einhverja steina sem honum vantaði fyrir arininn í Bonita (hitt húsið). Hann pantaði þá semsagt um daginn og gat fengið þá morguninn eftir ef við myndum sækja þá, en þurfti hinsvegar að bíða í 6vikur ef þeir ættu að sendast. Við Þorsteinn vöknuðum því eldsnemma í gærmorgun og renndum á eftir þessum steinum. Það tók ekki nema svona.. tja.. rúmlega klst að komast á staðinn og alveg rúmlega 3 tíma að komast tilbaka. Með smá stoppi í LA og í Balwin Park þar sem við sóttum einhverja tölvu fyrir Robert. Þetta var heljarinar ævintýr og þeir sem fylgjast með O.C. á Skjá einum vita að Ryan er frá Chino!! Ég fór semsagt í heimabæinn hans Ryans úr O.C. ;) Bara snilld! Þetta var eiginlega algjört Ghetto.. svona eins og staðnum er lýst í þáttunum. Mjög svona rykugur bær með litlum og "ljótum" húsum.
---
Ég er farin að elda á fullu. Annað hvort sýð ég pasta eða elda kjúkling - er það ekki ekta ég? hehehe
Nei nei,.. í kvöld verða bara grillaðir hamborgarar þar sem við verðum örugglega framá kvöld að ganga frá þessu blessaða bílskúrsdrasli og þess vegna ætlum við að hafa eitthvað fljótlegt en gott. Já þeir verða sko heimagrillaðir með nóg af grænmeti! :D - og engin Koktailsósa á þessum bæ hehehe
---
Ég var að setja inn fleiri myndir. Nokkrar frá Chino-ferðinni, myndir teknar útum gluggann á bílnum ;) og svo myndir hérna heima þar sem við erum að chilla með familyunni.. fáið loksins að sjá krakkana og litla Chewy sem týndist, en er fundinn aftur!
Endilega kommentið fyrir neðan myndirnar - fleiri en bara Helga og Mamma (takk fyrir kommentin, mjög skemmtileg!!)..
Skora á Freyju, Lindu, Sunnu, Lísbet og Helgu Kristínu grenivíkurmær að kommenta undir myndirnar, og svo auðvitað mega HKJ og mamma halda áfram að kommenta! Já og hvar eru systur mínar?!!! Og bróðir (mundi?!) Afhverju hafið þið ekki kommentað á myndirnar? hmmm.. þetta er farið að vera eitthvað gruggugt? Eruði að plana fjölskyldumót á meðan við erum í burtu eða hvað? hehehe ;) Dagný - pakkaðir þú þér kannski óvart ofaní kassa með Danmerkurdótinu? Híhí ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Berglind Rut:
hi Hanna Lina
ohh hvad tad er gott ad sja ad tid hafid tad gott. Eg var komin med ahyggjur af ykkur. En fattadi svo ad tu hefdir verdid ad reina ad hringja i mig:P hope you are having a wonderful time in C....
Vid erum ad fara med Brandon a manud til Philly og adgerdin verdur gerd a fimmtud ;p
xoxo From NY The St.Louis family :)
08.07.06 13:21
Hæ skvísa.. gaman að lesa bloggið þitt! ég hef náttúrulega ekkert lesið bloggið þitt, en núna verð ég fastagestur hehe...!
en svona þér að segja þá er ég að fara að flytja til Hafnarfjarðar eftir rúman mánuð! fúff.. pínu fiðrinugur, verð að segja eins og er.. :D
En við verðum endilega í bandi og knúsað Steina og sjálfan þig frá mér!!
Knús frá T 18 :D
08.07.06 13:59
Freyja:
Ætíð gaman að lesa sögurnar ykkar, snilld :)
Mér datt einmitt hvorlpurinn Ryan í hug þegar þú minntist á Chino, það er nú spurning hversu stór hluti sjónvarpið er af lífi manns :/
Bílskúrinn leit stórkostlega út, ég þyrfti að sleppa þér lausri í geymsluna mína ;)
Reyndar er ég að vinna í því að henda flestu þar út, en eins og þú veist þá eru foreldrar af adrei-henda-neinu-kynslóð.... ég þarf töluvert að sannfæra þau ;)
Hafið að sem allra allra best ;)
08.07.06 15:27
það mætti alveg halda það að ég hafi pakkað mér niður eða selt mig.. þvílíkt og annað eins sem er búið að ganga á hérna, fullt til af seðlum eftir sölutörnina en ekki svo mikið af dóti.. í einni svipan voru t.d allir stólar farnir úr íbúðinni.. ég sit hérna við tölvuna á garðstól úr plasti.. (!)
10 dagar eftir á kaplaskjólsvegi..
08.07.06 23:10
baddy systir:
hey hvað þurftiru að gera við lykilnúmerið í nótt?? ég var ekki að fatta að þetta væri þú hehe en það hefði nú verið gaman að geta spjallað lengur við þig;)
09.07.06 17:22
Þorsteinn var að stofna nýja bloggsíðu og þurfti að fá lykilorð sent í síma til að virkja síðuna ;) hehe Við settum fyrst nr hans inn og það kom aldrei inn.. þannig að við urðum að senda á eitthvað nr heima á Íslandi og þú varst sú eina sem ég kunni við að vekja! ;) Ástar þakkir fyrir!!
09.07.06 19:04
magnað að fá að lesa svona um þig ... magnað hvað þér líður vel.. magnað að allt skuli ganga svona vel... kíki alltaf reglulega inn .. en í þetta skipti kommentaði ég ..
knúsar ..
09.07.06 20:09
baddy systir:
hehe já það má alltaf hringja í mig á nóttunni mér finnst það bara gaman, svo hringdi Rebba í mig 2 tímum seinna, af djamminu:) bara stuð
09.07.06 22:37
baddy systir:
hey akkuru ertu ekki á msn til að halda fyrir mér vöku hérna á næturvaktinni?
11.07.06 01:27



