Fimmtudagur 08. júní 2006 / 11:04 / Tíminn líður hratt...
Já tíminn flýgur svo sannarlega áfram when having fun. Þorsteinn er kominn til mín á Hauganes og núna þarf ég aldrei að fara ein á Amour að skúra! (Jibbí!) Við erum búin að hafa nóg að brasa við fram að þessu, en dagurinn í dag verður ákveðið dútl þar sem við ætlum bara að renna í bæinn að láta laga stólinn hennar mömmu, ganga frá glósunum mínum o.þ.h. Helgin sem framundan er, er alveg gríðarlega spennandi. Óvissuferð með skólanum (þurfum að hafa með útprentað kort af skagafirði, wonder where we are going?! - gæti samt verið trix!!)
og dúkkupartý hjá Ingu minni á Laugardagskvöldið. Það verður örugglega fjör. Verst bara að Þorsteinn þarf að vinna fyrir mig báða dagana um helgina þannig að greyjið hann verður bara að vera edrú þessa helgi. Hann hefur svosem gott af því eftir gríðarlega bjórdrykkju í Laufási í Mai ;)
Ég fór í gær og hitti Dóru og Eric sem eru búsett í San Luis Obispo í CA og eru búin að vera stoðin okkar og stytta þarna úti. Þau eru núna í sumarfríi á Íslandi og fara aftur heim 17.júní. Ég kom til þeirra uppúr hálf 9 í gærkvöldi og ætlaði bara að stoppa stutt. Þau voru hinsvegar alveg yndisleg og frábær... ég fór heim 12:30 í nótt!!
Dóra sagði mér "allt" um lífið í Californiu. Hún endurtók það 300x að ef allt færi á versta veg með Róbert þá gætum við komið og búið hjá þeim þangað til að við færum í desember - ekkert mál! Þau ættu stórt hús og nóg pláss fyrir alla. Börnin þeirra tvö sem heiti Þór og Emma, eru algjörar dúllur. Þór er 6ára fótboltagæji og Emma 4ára fimleikastelpa/ballerína. Ekkert smá sætt að heyra svona lítil börn tala ensku "Mommy.. Thor is teasing me.. make him stop" - "No! Im not teasing her.. shes a liar!" = Alltaf svona eitthvað kítingur á milli þeirra eins og systkinum einum er laigð ;)
Sólin skín svo frábærlega innum gluggann hjá mér og er hreinlega að grátbiðja mig um að koma út. Píla liggur svo á gólfinu við hliðná mér og biður um það sama. Ætli maður verði ekki að láta þetta eftir þeim :)
Farin út í sólskinið! (reyndar bara út á pall.. fer í ALVÖRU sólskin 20júní!!)
kv. Hannsína sólargeisli
p.s. Eric sagði að það væru svona 90% líkur á að við myndum upplifa skógarelda þarna úti í Simi Valley því það væri spáð svo miklum þurrk. Ekki það að við séum í einhverri hættu, hann sagði bara að við myndum sjá eld og reyk í fjarska uppí fjöllunum...
Spennó! :D
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
jih hvad eg er spennt fyrir thina hond! hljomar otrulega vel!
og til hamingju med skolann lika! :D
08.06.06 15:55



