Mánudagur 05. júní 2006 / 15:06 / Svar við kommenti
Jæja. Ég ætlaði nú eiginlega ekkert að blogga í dag. Fékk hinsvegar spurningar frá Svönsu vinkonu í London í kommenti og skrifaði komment til baka. Það varð hinsvegar svo gríðarlega langt að ég ákvað að búa bara til færslu úr því svari.
Hérna kemur þetta - líka smá svar til Söndru ;)
Sandra: Já að sjálfsögðu megiði kíkja til mín fyrr - bara spurning hvort að það verði eitthvað í boði þá?!! Híhí.. jú það verður nú auðvitað eitthvað til handa ykkur að narta í. Ætla að hafa kjúkl.salat (sem við gerðum einu sinni saman!) og líka pastasalat þannig að þið fáið örugglega eitthvað í gogginn :) Láttu mig bara vita svona nokkurnvegin tímasetningu svo maður geti nú verið búin í lagningu ;)
Svansa: Já það er alltaf gott að vera forvitin ;) Í desember var stefnan tekin á skóla í Svergie nk haust. Á rúntinum fórum við Þorsteinn að tala um Guðný vinkonu okkar sem var að fara sem au-pair til Ítalíu þá í Janúar og ég sagði að ég væri sko alveg til í að vera svona au-pair. Mér til mikillar furðu (en samt ekki) þá sagði Þorsteinn "Já ég væri alveg til í það líka.." Þannig að þá var rúntinum hjá okkur lokið því við brunuðum heim og ég googlaði nokkrar au-pair síður (misgóðar) og setti inn nokkrar auglýsingar þar sem við auglýstum okkur sem Au-pair couple. Það gekk vonum framar og fólk í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Ástralíu og BNA sem sýndi okkur áhuga. Fljótlega varð okkur ljóst að við hefðum lítið að gera tvö til Frakklands, Þýskalands og/eða Ítalíu þar sem fólkið þar hafði ekki svo mikið handa okkur að gera. Hinsvegar í Ástralíu var okkur boðið að vinna á vínekru þegar við (ég) væri/um ekki með börnin. Þau hinsvegar gerðu ekki ráð fyrir neinum ferðalögum af okkar hálfu og sögðu bara að þau vildu að við ferðuðumst áður en við byrjuðum að vinna hjá þeim. Á meðan við vorum að tala við Áströlsku hjónin þá vorum við einnig í smávegis e-mail sambandi við mann í Californiu. Við sendum nokkra e-maila á milli og svo spurði hann hvort hann mætti einhverntíman hringja. Ég gaf honum upp heimasímann og svo pludselig hringdi síminn og það var Robert. Eftir hálftíma spjall þá sagði hann bara "hvað þarf ég að bjóða ykkur svo þið komið frekar til okkar en farið ekki til Ástralíu?!" og svo bauð hann okkur ýmis fríðindi sem við hefðum ekki fengið í Ástralíu og þá var bara gerðum "munnlegur samningur" og ákveðið að við færum til Californiu!
Sem betur fer er Ása í Selvík (litla húsið beint á móti gömlu búðinni hérna á Hauganesi) búsett í Cali ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Ég hafði samband við Ásu og Dóru dóttur hennar og Dóra fór svo og heimsótti Robert og hitti börnin/skoðaði aðstæður fyrir okkur og gaf grænt ljós á allt saman. Þá vorum við alveg 100% á því að fara þar sem við vorum búin að fá smá "garentí" fyrir því að þetta væri allt saman a-okay! Þetta var semsagt milliliðalaust og ekki í gegnum nein samtök þar sem BNA LEYFA EKKI KARLKYNS AU-PAIR! Algjörlega fáránlegt. En whaddaheck, þetta gekk og við erum í skýjunum!! Brottför eftir.. tja 15 daga?! :D
Au-pair síðurnar sem ég notaði voru, að ég held:
www.aupairinamerica.com
www.greataupair.com (þar fann Robert okkur)
www.aupair.com
www.aupair.net
ofl ofl ofl...
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur.
/ Álit
Hófý:
þetta verður örugglega rosalega gaman :)
05.06.06 17:26
Hæ skvís!
Takk æðislega fyrir þessa færslu, tileinkaða mér! (ekki skemma þetta, ég er í skýjunum! :))
Þetta hljómar ótrúlega vel og ég dauðöfunda ykkur! Líka ótrúlega gaman að vita að fjölskyldan sem þið eruð að fara til er svona frábær og virkilega langar að fá ykkur til sín! :)
Ég óska ykkur báðum alveg ótrúlega skemmtilegrar ferðar og góðs gengis! þú verður bara dugleg að blogga á meðan þú ert í burtu - ekkert svindl!
Knus og kossar, gamla mín!
Svansa Londonmær..
06.06.06 10:40
hallú, ég var nú bara að spá hvort við mættum koma svona um 13-14.. á veislan ekki annars að byrja kl.15?? æ ég sé til en skal láta þig vita..
knúz
07.06.06 13:53
hæhæ sæta mín, við erum farin að sakna þín svakalega...búuhúuu....hlökkum til að sjá þig í nokkra daga og svo eru þið farin frá okkur..grát#grát
07.06.06 23:52



