Mánudagur 26. júní 2006 / 17:15 / Sunnudagurinn
Jæja, fólk orðið óþreyjufullt að fá fréttir sá ég á síðasta kommenti hehe ;)
Við vöknuðum í gærmorgun svona um 9 leytið og komum niður og þá var Rob að sjálfsögðu að steikja egg og bacon. Lucky me þá borða ég ekki egg (nema í salati) og allsekki bacon þannig að ég fæ mér alltaf bara einhver "morning sunshine" sirjós dæmi í morgunmat og helli útá mjólk úr BRÚSA! hehe. Rob spurði okkur hvort að við vildum koma með í kirkjuna og við sögðum auðvitað já.. því hvað er betra en messa á sunnudögum?
Já.. það er eiginlega best að stoppa hérna og segja ykkur frá því að á Laugardaginn fóru Rob og Kimberly út að versla.. og komu heim með eitt stykki glænýjan mini-van!! Toyota Sierra held ég að hann heiti og við Þorsteinn fengum að fara smá rúnt á svona family-wagon. Ótrúlega gott að keyra hann. Allavega.. aftur að messunni.
Þar sem bæði Leeroy og Mini (vaninn) voru heima en Rob þurfti að sækja Kimberly og strákana þá þurftum við að fara á báðum bílunum! Semsagt.. ÉG þurfti að keyra þennan risastóra pallbíl.. en það bjargaðist auðvitað því ég er í smá æfingu eftir að hafa keyrt Toyotuna hans pabba ;) Ég elti bara Rob heim til Kimberly (frekar löng leið) og TJ og Colin komu svo með mér og Þorsteini í bíl í kirkjuna. Kirkjan var auðvitað ekkert kirkjuleg. Bara eins og stórt samkomuhús. Þegar við komum inn var hlaðborð af KLEINUHRINGJUM með allskonar húð (súkkulaði húðaðir, smarties húðaðir, sykurhúðaðir.. you name it!) og öðru bakarís gúmmelaði. Við Þorsteinn fengum okkur einn sykurhúðaðann amerískan donut saman og hann var ótrúlega góður ;) Svo gat maður líka fengið drykki eins og maður vildi og á veggjunum hengu stór sjónvörp sem sjónvörpuðu messunni. Þetta var skrítnasta messa sem ég hef farið í. Held að hún hafi verið svipuð og hvítasunnumessa (þó svo að ég hafi aldrei farið í hvítasunnumessu!) en presturinn var í gallabuxum og gæjaskyrtu. Örugglega bara svona 30+ ára og labbaði um allt og talaði meira með höndunum en munninum. Sitthvoru megin í stóra "messuherberginu" voru breiðtjöld þar sem hann varpaði upp annað slagið einhverjum bútum úr biblíunni ofl guðs-bókum. Það var samt margt mjög merkilegt sem hann var að segja. T.d. tók ég sérstaklega eftir því þegar hann ræddi um það að þeir sem bæru "bitter jeoulusy in their hearts" myndu á enddanum lendi í "battle with their loved ones" og ég gat alveg verið sammála þessu því ég held að allir þekki einhvern sem er öfundsjúkur útaf öllu og þar af leiðandi lendir maður alltaf í einhverjum leiðindum útí þessa öfundsjúku manneskju. Þegar presturinn var búinn að tala, þá kom hljómsveit upp (kassagítar, hljómborð, trommusett, rafmagnsgítar og bassi) og byrjaði að spila einhver þau væmnustu jesú-lög sem ég hef á ævi minni heyrt. "We surrender everything to you jesus.. lift our love higher jesus!" Þetta var samt rosalega fallega sungið hjá stráknum sem söng, og textanum var varpað uppá breiðtjaldið þannig að allir gátu sungið með. Eftir smástund tók ég eftir því að nokkrir voru staðnir upp og lyfti höndunum um leið og þeir sungu "lift our hearts high jesus!" og fólk var bara almennt mjög að fíla sig inní sönginn. Við Þorsteinn þögðum hehe. Þetta var samt mjög áhrifaríkur söngur og þegar allir byrjuðu að syngja með þá fór ég barasta næstum því að gráta úr geðshræringu.. Fann alveg andann koma yfir mig! Neeeiii reyndar ekki.. en þetta var samt fallegt.
Á meðan á söngnum stóð gekk silfraður dallur með svona oblátum í (pínkulitlar, gular oblátur) - líkami krists - og svo annar dallur með pínuglösum af JARÐARBERJASAFA - blóð krists -. Svo gekk líka karfa þar sem fólk gat sett einhverja miða sem maður mátti fylla út.. einhver bænamiði eða eitthvað þannig.. og svo gat maður líka sett peninga en við Þorsteinn vorum nú ekki miklir þátttakendur í messunni, meira svona áhorfendur.
Eftir kirkjuna fórum við svo og fengum okkur ávaxta smoothie sem var mjög gott því þá var hitinn kominn uppí 94°f eða svona 34-5°c. Þessi smoothie var ekkert smá góður. Með Frozen Yogurt og svo einhverjum ávöxtum. Fyrsta og eina hollustu-búllan sem ég hef séð hingað til.
Við Þorsteinn keyrðum svo Leeroy heim, (eða ég keyrði og Þorsteinn var mér til halds og traust) og gekk heimferðin svo vel að ég tók vitlausa hægri beygju (beygði of snemma) og endaði uppá FREEWAY eða hraðbrautinni og þar að auki á leið í vitlausa átt!!! Ekki mjög góð tilfinning það. En Ivette sem er tölvan í bílnum, sagði bara "endurskoða route" og svo kom hún með lausnina heim! Reyndar 5milum lengri leið en jæja. Við komumst fljótt af hraðbrautinni og gátum fylgt Ivette alla leið heim ;)
Við erum ekki enþá búin að kaupa gemsa :( Og ég veit ekki alveg hvenær það verður. Ég er alveg að drepast ég get ekki beðið eftir að fá bíl til að keyra um á, því stundum finnst mér ég vera hálf föst hérna. Sérstaklega þegar Þorsteinn er að vinna og ég búin með allt sem ég get gert yfir daginn og þá get ég ekkert farið.. nema niður að horfa á sjónvarpið :S Kimberly talaði samt um það að við myndum fljótlega fá bíl, og ég ætla að biðja Rob um að vera búinn að redda bíl og tryggingum fyrir 14júlí því þá fara þau til Hawaii og við Þorsteinn ætlum til San Luis Obispo að vinna fyrir Ásu í Selvík og passa krakkana þeirra Dóru og Erics. Að sjálfsögðu nýtum við okkur líka það að vera í smá "fríi" og förum á ströndina og djammið í San Luis.
Það er svo margt sem okkur langar til að gera, en mér finnst Rob eiginlega hafa voðalega lítinn tíma. Hann er mjög sjaldan heima.. og við höfum t.d. ALDREI borðað kvöldmat hérna heima. Einu sinni fórum við á Del Taco sem er svona Taco staður, einu sinni fórum við á kínverska staðinn og svo einu sinni komu þau heim með kínverskan mat. Voðalega lítill tími til að elda heima.. en samt er sko einn RISASTÓR frystiskápur í bílskúrnum FULLUR af kjöti, kjúklingi, fiski, grænmeti, grillmat ofl ofl.... ?essvegna væri frábært að fá bíl því þá erum við miklu sjálfstæðari og þurfum ekki hann til að skutla okkur útum allt. Ég skil samt vel að hann sé ekki tilbúinn til að lána okkur þessa dýrindis bíla sem hann á þar sem við erum ekki tryggð fyrir tjóni á öðrum bílnum en okkar eigin. Þetta kemur allt saman samt fyrir rest.. þeir sem þekkja mig vita bara hvað ég er óþolinmóð, og þeir sem þekkja Ameríkana vita að hér gerist allt í slow-motion!!
Illu er best aflokið ekki satt? Þarf að taka til í herberginu hennar Christyar og fá Christy með mér í það. Núna er hún búin að loka sig inní svefnherb. hans Robs og er að horfa á sjónvarpið, bara til að þurfa ekki að laga til með mér held ég hehehe.. en hún sleppur ekki! Múhaahahaha
Ég ætla samt að byrja á því að hringja heim til mömmu.. maður er strax farinn að sakna hennar og pabba!
Ekki öfunda náungann því þá mun ykkur líða miklu betur. Verið ánægð með það sem þið hafið.
xoxo
Hannah
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Skítt með þessa reglu.... ég verð að segja... ÉG ÖFUNDA ÞIG GEÐVEIKT..... Djöfulsins snilldar messa... ég held að ég myndi fíla mig í svona messu... ég hata nefnilega venjulegar kirkjumessur... Mér finnst í alvöru hann þetta vera geðveikt óraunverulegt að þú sert þarna.... mér finnst alveg eins og ég geti bara farið til þin og fengið eitthvað gott að borða eða slúðrar meeð þér eða eitthvað... sakna þin bara svo geggjað... Það er ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt... ég lifi mig svo inní þetta... er algerlega búin að sjá þetta allt fyrir mer´... Vertu dugleg að blogga og endilega setja inn myndir.... miss you... ;*;*;*
26.06.06 18:31
Þetta hefur verið klassamessa!;) Þið ættuð nú samt að reyna að komast í svona svertingjamessu, ég held að það sé geðveikt stuð! En mér finnst nú að þú mættir nú bara elda eitthvað gott sjálf í kvöldmatinn! En skemmtið ykkur bara vel enn og aftur!;););););););););););););):D:D:D:D:D:D:D:D;D;D;D;D;D;D:):):):):):):):):)
26.06.06 19:08
Lísbet:
Já nú þarftu að fara að koma með myndir, við viljum sjá allesammen. En já þessi messa sem þú lístir er mjög svipuð og hvítasunnumessa en hérna á ísl er ekki penge til að kaupa öll þessi breiðtjöld hehe :) Ég er svona að pæla í að láta mömmu gefa mér (eða þú veist, fjölskylduna) ferð til þín í tvítugsgjöf.. hvernig væri það :) Hafðu það gott eskan, sakna þín :*:*
26.06.06 19:10
Lísbet: Það væri GEGGJAÐ!!! Svo verður þú líka dugleg að spara spara spara og þá er þetta ekkert mál! :D
Jonna: Já maður saknar þín nú líka pínku pons! :D Ég las bloggið þitt áðan og sé alveg fyrir mér þig sem einn rauðann eldhnött hehe :D Gott að þú lifir þig inní bloggin mín hehe ;)
Sunna: Hérna er kvöldmaturinn borðaður þegar maður er svangur. Stundum klukkan 8, stundum 9 og STUNDUM KLUKKAN 10! Þú myndir sko aldrei meika það hérna hehe. Hádegismatur klukkan svona 14 og enginn kaffitími! ALlt mjög furðulegt ;)
26.06.06 19:22
baddy systir:
já þessar messur þarna eru ótrúlegar, ég fór í svona svertingjamessu og blandaða messu þegar ég var þarna úti og það var mjög fyndið...ég fór sko í 2ja tíma biblíustund áður til að læra meira um drottinn og allt það! voða skondið. mig langar líka rosalega til að koma í heimsókn til þín...er á aukavakt á fimmtudag til að drígja tekjurnar og kaup mér happaþrennu af og til;) en góða skemmtun skvís skemmtið ykkur vel.
26.06.06 21:25
Hvernig væri að allir safni sér bara penge, og svo skiptum við vikunum á milli allra og þá geta allir komið í heimsókn!!! Úff hvað það væri skemmtilegt!
26.06.06 21:27
Freyja:
Þessi messa og kirkja er ekki alveg eins og Stærri-Árskógskirkja.... ekki man ég eftir kleinuhringjum og jarðaberjasafa ;)
Mikið er ég ánægð að þetta gangi svona vel og mér finnst svo gaman að lesa bloggin ykkar. Ég held að ég verði að fara að spara ........ þetta hljómar svo skemmtilegt :)
27.06.06 11:49
Sæl og blessuð frú Hanna!
Þvílíkt ævintýri sem þið eruð stödd í og það er mjög gaman að fylgjast með því!
Gangi ykkur vel og njótið :o)
27.06.06 13:36
æ hvað það er æðislegt að lesa bloggin þín og sjá hvað þið þorsteinn eruð að skemmta ykkur svakalega vel.. ég get nú alveg viðurkennt að ég væri alveg til að vera þarna í þínum sporum.. en kannski í næsta lífi þegar ég eignast börn um 35 eða verð bara piparmey sem lifi lífinu hehehehe.. en góða skemmtun og njótið tímans sem þið hafið þarna úti.. hann á eftir að rjúka áfram
knús sandra og katrín takkaóða
27.06.06 14:35



