Þriðjudagur 27. júní 2006 / 18:29 / Hawaii!!

Dagurinn í dag byrjaði ósköp venjulega. Við Þorsteinn vöknuðum um 8 og fórum á fætur.. Þorsteinn fór svo í vinnuna með Rob og ég ákvað að horfa pínu á Judging Amy. Þátturinn var alveg að verða búinn þegar Rob kemur aftur heim! Úbbs.. BUSTED! Hehehe.. Hann hló nú bara og sagði "Is that what I am paying you to do? Watch TV all day?!"
Mjög fyndið ;)


Jæja, ég neyddist víst til að vinna eitthvað í dag fyrst að karl pungurinn virtist ætla að vera heima! Nei okay, ég er nú ekki alveg svona ógeðslega löt.. en ég hef ekki það mikið að gera í dag að ég ætlaði bara að hefja daginn á smá chilli.
Ég fór í það að setja í þvottavél (sem er stærsta þvottavél sem ég hef séð! Everything is BIG in America!) og ganga frá þvotti ofl. Svo skipti ég á hjónarúmminu hans Rob, á meðan sat hann við tölvuna og var eitthvað að brasa og hringja. Svo uppúr þurru segir hann "Hannah, me and Kimberly were talking last nigth, and we decided that we really want you guys to come to Hawaii with us and be at our wedding.. would that be alrigth with you two?!"
"WHADDA!! HELL YEAH OFCOURSE!" var ég næstum því búin að segja.. en ég horfi á hann í smá stund og sagði "You're kidding, rigth?" og þá sagði hann "Nooo.. I'm not kidding" og brosti. Svo bað hann mig um að skrifa niður nöfnin okkar svo hann gæti pantað flugmiða! Ég skrifaði nöfnin og hann pantaði flugmiðann..
VIÐ ERUM AÐ FARA TIL HAWAII!!
Í alvöru,.. aldrei í lífinu hélt ég að ég ætti eftir að fara til Hawaii. Þetta er ótrúlegt. Við förum semsagt 14.júlí og verðum í viku held ég alveg örugglega. Börnin koma með þannig að okkar djobb er að passa þau (þurfa reyndar ekki mikla pössun, aðallega bara hanga með þeim og fíflast)
VIð förum eftir 17.daga til Hawaii!
Jiii.. þeir sem öfunduðu mig fyrir, eru núna örugglega komnir með grænar bólur á rassinn af öfund!! Ííííík
------------
Úff smá kaflaskipti. Ætla að reyna að anda pínu núna og koma með niður á jörðina...
-----------
Ég, TJ og Christy vorum ein heima í mestallan gærdag þar sem Þorsteinn var að vinna til frameftir. Klukkan rétt um 20:00 hringir svo Rob og segir að hann þurfi að fara á einhvern fund útaf brúðkaupinu sem hann var búinn að gleyma (ekta svona bíomyndar-atriði, brúðkaupsfundur og karlinn gleymir honum!!) en hann var búinn að lofa krökkunum að fara á Inn'n'out sem er hamborgarastaður því þau mega velja einn skyndibita á viku. Hann gat ekki farið með þau útaf þessum fundi, svo að hann bað mig um að fara með þau á jeppanum!!
Okay.. ekkert mál.. ég skal bara keyra ein með tvö börn, rata ekki rassagat og gleðifréttir.. Tölvan (Ivette) var ekki í bílnum þannig að ég gat ekki einu sinni treyst á hana!!
Rob gaf mér grófa útskýringu á því hvert ég ætti að fara og sagði svo bara "I think you can make it.. okay?!" og ég bara "ehhh..okay!"
En að sjálfsögðu tókst þetta þar sem ég er alveg gríðarlega mikill snillingur!! ... já og Christy rataði líka, en það er annað mál hehe
Svo eftir að við höfðum keypt börger, báðu þau mig um að skutla sér í BORDERS sem er svona bókabúð, bara þúsundsinnum stærri en Penninn/Eymundsson. Allt í lagi með það,.. ekkert mál en þá þurfti ég að rata heim aftur.. alein!
En það tókst, ótrúlegt en satt og þegar ég kom heim svona um 9 var Þorsteinn ekki enþá kominn heim úr vinnunni! Langur vinnudagur það.
Svo loksins kom hann heim rétt á eftir mér og hafði margt að segja..
Hann bloggar vonandi um það sem fyrst ;)
--------
Niðurstaða úr blogginu:
1. Ég er snillingur að keyra í Californiu
2. VIÐ ERUM AÐ FARA TIL HAWAII!!

Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Guðný:

Hanna.... GVUÐ HVAÐ ÉG ÖFUNDA YKKUR! ég lifi mig svo inn í þessa dvöl ykkar að mig hefur dreymt um ykkur, alveg tvisvar! er maður eitthvað klikkaður :) ojjj þið verðið að dansa einn húla dans fyrir mig á hawaii grísirnir ykkar :) ALOHA

27.06.06 19:30


Dagný:

JIIIIMINNNNN!! almáttugur, þið eruð ógó heppin! Frábært!
Við heimtum mynd af ykkur í strápilsi!! :D

27.06.06 20:14


Kristín Hrönn:

uss uss. Nú fyrst fer ég að öfunda þig. Hawai oj það munar ekkert um það og Rob borgar væntanlega.
Ég hringdi suður í dag, það vantaði örlítið af upplýsingum með umsókninni minni, ég reddaði því nú barasta strax svo ég ætti að fá svar einhvern tíman mjög fljótlega! Jíbbí, þá fer að skírast hvort ég komi út til þín eða ekki.

28.06.06 00:40


Steini B:

Já ég er semsagt að fara til Hawai. Var bara að koma heim úr vinnunni og það er enginn heima, ákvað að kveikja á tölvunni og það fyrsta sem ég sé er að ég sé á leiðinni til Hawai!! That's nice! :)

28.06.06 02:48


Helga Kr.:

Vává!! Ég skoðaði síðuna hans Þorsteins fyrst og sá að þið væruð að fara til Hawai. Ég kommentaði þar að kannski væri verið að taka upp Baywatch-Hawaianwedding 2, þá kemst ég að því hér að þið eruð að fara þangað í brúðkaup!! Maður verður bara hálfklökkur að hugsa um þetta ævintýri ykkar - en ég er nú náttúrulega ekki alveg eðlileg... en rosalega er ég ánægð fyrir ykkar hönd - og jú, svolítið abbó líka ;)
Kveðja frá Grensó, Íslandi.

28.06.06 09:27


Mamma:

Til hamingju með Hawai ferðina æðislegt, allir draumar að rætast :D
Þú hefur greinilega fengið áttavitann frá mér, ég sé pabba þinn í anda rata svona, ratar ekki einu sinni í Rvk. heheh.
Kveðja frá Nesinu 14°hiti og logn þegar ég labbaði í morgun kl.7:30,
koss og knús mamma

28.06.06 11:50


Inga Rut P:

held ég leggist bara undir feld og lifi í gegnum þig næstu mánuðina :) hehe
nei nei öfunda ykkar alveg hræðilega mikið!! og asmt svo ánægð fyrir ykkur þetta verður alveg geggjað :)
sakna ykkar mikið..

28.06.06 14:51


Helga Krist+in:

shit þú ert að grínast elskan, ohhhh þetta verðir sko gaman, og ekkert smá ævintýri..love u

28.06.06 23:52


Óli Helgi:

Vááaaa. Þetta verður svakalegt. Forstjórinn í vinnunni minni, sem að ferðast ansi mikið og hefur séð ansi margt, fór fyrst til Hawaii fyrir 2 árum síðan. Hann sagði að Hawaii væri flottasti staður sem hann hefur komið á. Svo fór hann aftur ári seinna.
Skemmtið ykkur vel.
Óli Helgi.

29.06.06 08:38


Freyja:

Yndislega alveg hreint, ég er svo ánægð með ykkur :) Allt er stórt í ameríku, meira að segja stór ferðalög, nema þeir líti á Hawaii sem Hrísey eða Vestmannaeyjar :P.
Gunna fór til Hawaii þegar hún var au-pair í Seattle og fannst æði, Waikiki-ströndin og skrítna fólkið á Dole-garðinu (ananas-framleiðandi) er það sem ég man að hún talaði um. Ég veit að öfund er synd, ég er syndug kona ;)

30.06.06 17:10


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín