Fimmtudagur 01. júní 2006 / 13:09 / Hauganes
Daginn dyggu lesendur.
Hér er ég stödd á Hauganesi - er í risaeðlutölvunni þeirra Ma+Pa og notast við skjaldböku-internet tengingu. Því verður hinsvegar kippt í laginn í næstu viku. Þá ætla ég að sækja um og setja upp eitt stukk adsl fyrir gömlu hjúin og færa allt "draslið" úr þessari tölvu yfir í mína og setja hana svo upp hérna í tölvuherberginu (skilur mig einhver?) Svo ætla ég að fjárfesta í einu stukk skype-síma svo ég get ALLTAF hringt heim, hvenær sem er sólarhrings .. ókeypis!
Ég mæli eindregið með því að þið fáið ykkur skype og skypa-síma (eða bara léleg heyrnartól með speaker) því ég verð með skype þarna úti og þá er ókeypis að hringja á milli!! (Freyja, Helga&Binni, Anika&Helgi, Linda, Jonna, Lísbet, Jói ofl ofl.. skora á ykkur öll sömul!) Tengdó eru búin að fjárfesta í einu svona stykki þar sem þau eiga eftir að sakna okkar allra mest í öllum heiminum! :D Híhí
Annars er SÍÐASTA PRÓFIÐ MITT Í MA á morgun klukkan 09:00. Úff... aldrei aftur próf í MA - já og aldrei aftur MA! Það verður ekkert smá skrítið þar sem ég hef eytt sl FIMM árum þarna. Já, þið lásuð rétt. Það er búið að taka mig 5 ár að klára þennan skóla - eitt aukaár sem ég er ekkert SMÁ ánægð með. Annars hefði ég aldrei kynnst hinum fjölbreytta hóp í 4.Hotties Þær eru algjörir snillingar þessar elskur ;)
Nýja rúmið okkar er komið í hús - i Simi Valley! Haldiði að kallinn hafi ekki fjárfest í glænýju rúmmi handa skötuhjúunum sínum? Þvílík snilld þar sem fermingarrúmmið mitt er nú aðeins farið að segja til sín.. Beggi Hnykkjari sagði einmitt að maður ætti að skipta um rúm á 3-5ára fresti til að líkaminn haldi almennilega velli - gerir það einhver? Hmm..
Karlinn úti er líka grand á því og ætlar til Hawaii í byrjun júlí og gifta sig! Jább karlinn á kærustu sem heitir Kimberly (Einmitt, Robert and Kimberly, gæti það verið bandarískara híhí?) og hún mun svo flytja inn ásamt stráknum sínum (á táningsaldri) í lok júlí. Á meðan þau eru á Hawaii og svo í Brúðkaupsferð á einhverri eyju hjá Hawaii þá verðum við Þorsteinn ein heima með hundana og vinnumennina. Þorsteinn að vinna og ég að vinna í því að fá smá tan á eskimóa-bodyinn minn. Í fyrradag voru 33° í LA og ég býst við því að koma létt steikt og crispy aftur til landsins ef hitastigið heldur áfram að hækka svona!! Úfff...
Jæja. Þetta gerist alltaf þegar ég er að fara í síðasta prófið mitt - ég bara get ekki hætt að blogga!!!
Hundleiðinlegt að lesa svona ógeðslega langar færslur, en ég er viss um að einhver nennir því? (Sandra Rós, þú ert reyndar sigurvegarinn í löngum færslum, en það er samt alltaf gaman að lesa þær!)
Saga 20.aldar bíður eftir mér spennt inní eldhúsi. Held að hún sé að hella uppá kaffi handa mér..
Over&Out
Hannah Line (lesist með bandarískum hreim!)
19 dagar í brottför!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
hehe takk esskan mín.. enn ekkert heyrt af uppþvottavélinni.. ertu viss um að hún fór til kópavogs en ekki kópaskers heeh grín.. held að hún sé komin suður, sverrir var eitthvað að tuldra um vélina.. jææja, á ég að hætta bullinu?
bæjó spæjó
01.06.06 14:34
maður nennir að lesa allt í prófum.. ;)
01.06.06 19:41
Hey ég les alltaf bloggin þín elskan mín! ;) Vá bara nítján dagar! :,( Fæ ég ekkert að hitta þig áður!
01.06.06 23:43
djös* .. helv .. ** tuss* ég HA** þig ... Pík* Hó** ... nei djók þú ert æðislegt :D ÉG ÖFUNDA ÞIG BARA SVO MIKIÐ .... en helduru að mín sé ekki bara búin að fjárfesta í svona massa heyrnatólum, þannig að við verðum í beinu sambandi... þú losnar ekki svona auðveldlega við mig ;)
02.06.06 00:33
Djöfull finnst mér gaman að lesa bloggið þitt.... Þú ert snilldar penni... ég er alltaf með þvílikt bros á vör eftir að hafa lesið það.. En til hamingju strumpurinn minn með að vera búin með prófin..mitt seinasta er ekki fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku... ömurlegt...
En ég er algerlega strax farin að sakna þin... það verður ömurlegt að geta ekki séð ykkur steina gera dónó bara fyrir mig .... OG bara hver á að elda fyrir mig geðveikt góðan mat og hlægja með mér...??? Hver á að hlægja AÐ mér...???
Djöfullinn... ég held ég hætti bara að skrifa og fari að grenja...
En djöfull er þetta orðið langt komment... eins gott að það detti ekki út þegar ég ýti á senda... heh
En þú er æði grjónapungurinn minn og ég skal sko hringja mest í þig....
Love you og náttla líka þig þorsteinn...
02.06.06 19:41
baddy:
hae systir gò vildi bara kasta kvedju à tig frà salerno-ìtalìu. er samt farin ad hlakka til ad koma heim, verst ad tà farid tid!! en gott ad einhver nenni ad standa ì tessum internetmàlum à nesinu...alveg torf à tvì sko..bid ad heilsa ollum..kossar og knùs baddy bestaskinn
03.06.06 17:26
Linda: Þú ert alltaf velkomin í heimsókn til okkar - bara 100.000kall! Frí gisting ;)
Sigrún: Búin í prófum og hef (nánast) allan heimsins tíma! :)
Jonna: Þú ert líka rúsínurófugrjónapungurinn minn að eilífu sæta grjón ;)
Baddý: Já það verður sko gott að fá þig heim! Herbergið MITT hálf tómlegt án þín ;) híhí Stefni á smur með rúffa í næstu viku og svo þrif svo hann verði nú shiny þegar þú kemur heim!
03.06.06 22:47



