Sunnudagur 04. júní 2006 / 00:11 / Bloggidiblogg
Hvar skal byrja. Þessi helgi er svo ótrúlega viðburðarrík. Fór í síðasta prófið mitt í MA núna á föstudaginn. Fékk nettann fiðring í magann þegar ég var komin að svona spurningu nr 60 í prófinu (100krossa spurningapróf) því þar kannaðist ég bara ekkert við að hafa lesið nokkuð um Kína, en næstu 10 spurningar fjölluðu einungis um Kína! Ég hélt að ég hefði bara verið svona mikill tossi en nei nei, kennarinn var bara sjálfur tossi og setti ÓVART inn spurningar úr kafla sem við áttum ekkert að lesa! Svona er þetta þegar kennarar reyna að sleppa auðveldlega og gera bara copy/paste við gamallt próf!! Busted! ;)
Eftir prófið fórum við Anika niður á Amour að skúra (Takk Anika!!) og svo fór ég í smá verslunarleiðangur að leita mér að fötum (bol) fyrir ferminguna hennar Sunnu sem er á morgun (í dag, það er víst komið miðnætti!) Ég fann hinsvegar ekkert og fór því tómhent til Grensó í klippingu til Sveinlaugar. Frá henni kom ég út sem algjör red-head og keypti meira að segja djúpnæringu sem heitir "Dumb Blonde!" .. mjög fyndið nafn. Djúpnæringin er reyndar líka fyrir Racy-Redhead sem ég veit ekki alveg hvað er. Spyr að því þegar ég er komin til Ameríku. ;)
Næsti dagskráliður var að ná í Þormar. Hann vildi að sjálfsögðu koma til mín strax og við brunuðum heim á Hauganes eftir að hafa erindast smávegis í bænum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég sofnaði meðan ég svæfði Þormar, og sofnaði svo aftur í sófanum inní stofu fyrir kl. 11. Það var mitt próflokadjamm ;) híhí
Dagurinn í dag byrjaði með þessum orðum "Hæ.. máé fala flammúl?!" og þar með var ég ræst, klukkan 9 í morgun.. Reyndar fínt að fá að sofa til 9! Við dúlluðum okkur í garðinum, fórum í heimsókn til Höllu og Sævars úti á Sand og nutum svo bara veðurblíðunar hérna heima við. Ég þvoði líka í leiðinni svona 5 vélar (af þvotti sko) því það var svo góður þurrkur (já já, þó ég sé hætt að búa sjálf þá leynist samt enþá í mér húsmóðir!)
Elsku Danni frændi kom svo seinnipartinn með foreldrum sínum. Mamma kom heim úr bænum með "pakka" handa mér, en hún fór í búðir fyrir mig og keypti fyrir mig tvo boli/kjóla sem eru geggjað flottir! Héðan í frá læt ég einhvern annan versla á mig föt því ég finn mér aldrei neitt, en er alltaf ánægð með það sem aðrir finna á mig!!
Kvöldmaturinn í kvöld var svo borðaður í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum Dagnýjar systur. Gauja eldaði glæsilegan KALKÚN sem var ógó góður. Rögnvaldur gerði svo gríðarlega gott Waldorf-salat með matnum ;) Hjá þeim var setið við langborð því við vorum hvorki meira né minna en 9 fullorðnir og 4 börn. Gaman að því. Misjafnlegar málefnalegar umræður við matarborðið en það var mjög skemmtilegt hjá þeim og alltaf gott að koma til þeirra.
Að sjálfsögðu sofnaði ég meðan ég svæfði Þormar í kvöld um 9 leytið, sem gerir það að verkum að ég er ekkert þreytt núna eins og sést á þessum ótrúlega langa pistli mínum. Ég er að rústa Söndru í langri-pistla-gerð! :D
Ég fékk líka gleðifréttir í dag. Þorsteinn hefur lokið skyldustarfi sínu í Laufási og er nú kominn til að vera hjá mér, ma og pa. Ef ég tel saman dagana sem við höfum hisst frá því 2.mai þá slagar það varla uppí viku! Alveg ömurlegt.. en hey, eftir hálft ár saman í Cali þá mun ég pottþétt segja "get outah my face, f**k faceah!" ;) - Neh þarna var ég nú bara að slá á létta g-strengi! (Eins og Björnsson orðar það) Hætt þessu rugli,.. held áfram með hinn hefðbundna pistil:
Morgundagurinn hefst á sundi í Þelamörk, eða á Dalvík. Svo tek ég mig til og bruna til Grensó í fermingarveislu aldarinnar. Veisluþjónusta Ólínu sér um þessa fermingarveislu svo ég er viss um að ég verði ekkert svikin af því sem verður á boðstólnum þarna. (Veisluþjónusta Ólínu a.k.a. Olla mamma hans Þorsteins og fermingarbarnsins!)
Jæja. Pabbi er farinn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að sofa. Ætli hann sé ekki bara að hugsa um símreikningin þar sem þau eru svo gríðarlega ekki-móðins og eru því tengd með módemi!! (Úff ég trúi ekki að ég sé að segja frá þessu.. svo ógó hallærislegt, skilurru!) :D
Góða nótt dyggu lesendur og komið vel fram hvort við annað - nema þið séuð óvinir, þá er í lagi að vera leiðinlegur!
TTYS (Talk To You Soon!) - Alltaf að æfa mig í slettunum...
Hanna
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / skóli. Þar eru 20 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
hæ hæ hanna mín, alltaf gaman að lesa pistlana þína, stutta sem og langa. innilega til hamingju með skólalok.. eins og á hverju vori þá öfunda ég alla sem eru stúdent, og sérstaklega núna þegar maður þekkir nokkra sem eru að útskrifast.. en varðand blogg þá held ég að ég hafi skákað þér ígær, bloggaði nebblega 2x og þar á undan bæði á mitt og katrínar blogg hehe, ekki það að þetta sé nein keppni.. vona bara að þú verðir dugleg að blogga um viðburði framvegis og sérstaklega í USA í happy valley ;) svo erum við að koma norður næsta fös,sem er næstum bara one breath away.. ok kannski aðeins meira hehe en þetta líður eins og allt annað og áður en ég veit af þá erum við á leiðinni heim
þetta fer nú að nálgast bloggi en ég ætlaði að spyrja hvort við mættum kannski kíkka aðeins fyrr til þín þann 18. júní, svo við getum lagt af stað heim á skikkanlegum tíma??
úber löng kveðja.. sandra pe
04.06.06 10:57
Hae skvis!
Sko.. Eg veit ad thu ert ad fara til USA og allt thad, en eg veit ekki alveg afhverju? ..bara til ad breyta til? - kul! :) - og hvada folk er thetta sem thid erud ad fara til? - bara eitthvad? :) ...og forud thid i gegnum einhvern? ..bara otrulega forvitin og ved um i villu herna meginn..
vona ad ferdin verdi frabaer! :D
knus fra London
05.06.06 08:38



