Mánudagur 15. maí 2006 / 16:43 / Skólinn

Mér finnst ég aldrei vera í skólanum, samt er svo ótrúlega mikið að gera. Ég er t.d. á fullu þessa dagana að undirbúa Uppeldisfræði ráðstefnu sem haldin verður laugardaginn 20maí nk og stendur frá 10-15 með veitingum í hádeginu! (nýta tækifærið og auglýsa!) Þið megið ENDILEGA kíkja og hlusta á mig og Jonnu kynna niðurstöður úr könnun sem við gerðum í grunnskólum við Eyjarfjörð um viðhorf grunnskólanema til fatlaðra. Ætli okkar kynning verði ekki eitthvað um klukkan 14 fyrir þá sem vilja bara sjá mig ;) Ykkur er velkomið að koma hvenær sem er dags, en það er kannski ekkert voðalega vel séð ef þið mætið BARA í hádegismatinn hehehe
Hjólað í vinnuna átakið er líka búið að standa yfir í tvær vikur og hefur hjólið hennar Baddýar verið mikið nýtt í sambandi við það. Eitthvað hefur farið minna fyrir ræktarferðum hjá mér núna eftir páska en ég hugsa um ræktina á hverjum einasta degi og ætla mér alltaf að fara. Það er bara stundum svo erfitt að koma sér af stað seinnipartinn núna þegar ég er farin að skúra á Cafe Amour á morgnanna og það er sko meira en að segja það!! Ég er allavega farin að bera MIKLA virðingu fyrir bláa hernum í MA, þó svo að þær skrúbbi nú ekki upp bjórsull, vodkasull, skóför og blóðbletti nánast á hverjum morgni.
Jæja, ætla að blogga aðra færslu um flutningana - svona svo ég blandi nú ekki öllu saman. Hugsa líka að ég geri nýjan flokk hérna til vinstri sem mun heita "flutningar" :) Ef þið hafið ekki fattað hvernig þessir flokkar virka, þá flokka ég færslurnar niður eftir innihaldi og þær fara í ákveðinn flokk. Ef þið t.d. viljið bara lesa hvað ég hef skrifað um lífsstíl og mat þá smelliði á þann flokk. Þá koma líka upp einhverjar uppskriftir og svona skemmtilegt sem ég hef bloggað um. :)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur. / skóli. Þar eru 20 færslur.

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín