Mánudagur 15. maí 2006 / 16:50 / Flutningar
Núna er allt að bresta á í samb. við þessa blessuðu flutninga. Það virðist ríkja smá misskilningur hjá fólki þegar ég tala um að við séum að flytja núna 1.júní. Við erum ekki að fara til útlanda þá! Við munum þá flytja (að öllum líkindum) til Grenivíkur þar sem Þorsteinn er að vinna í Laufási fram að brottför sem verður 20.júní.
Við erum komin með leigjendur (ef ég var ekki búin að segja ykku frá því) en það er ungt par með 8 ára strák. Mér líkar alveg rosalega vel við þau og held að þetta eigi eftir að ganga vel (crossing my fingers!).
Við erum ekki enþá búin að selja neitt af ráði, en ég stefni á að birta enn og aftur auglýsingu í dagskránni núna á miðvikudaginn. Okkur tókst þó að selja sjónvarpsskenkinn okkar og núna stendur sjónvarpið á stofuborðinu - mjög smekklegt! Sjónvarpið er þó hálfeinmanna þessa dagana og getur ekki beðið eftir því að komast til nýrra eigenda sem eru Freyja frænka og Trausti frændi.
Sófasettið stendur óhreyft í stofunni, og blái sófinn er enþá í pössun hjá Kristínu. Við ætlum þó að sækja sófann og borðið til Kristínar í vikunni og vonandi verður það farið fyrir helgi.
Við erum búin að gera loka"samning" við Robert í útlandinu, og hljómar sá samningur bara askoti vel og ég stefni að því að sækja um í California State University Northridge þegar ég kem út, og þá get ég jafnvel byrjað í skólanum í Janúar :D Það væri algjör snilld.. en mig langar samt pínulítið að vera aðeins lengur í fríi. Háskóli í USA hræðir mig pínulítið... sérstaklega fjárhagslega! :S -- Það er semsagt alveg inní myndinni að við komum heim 18desember og förum aftur strax í byrjun Janúar eða milli jóla og nýárs! Þ.e.a.s. ef okkur líkar vel þarna og allt gengur upp! :D (Sem við vonum að sjálfsögðu!)
Talandi um peninga - þá fékk ég nú margar góðar gjafir á afmælisdaginn. Anika & Helga (ásamt viðhengjum) gáfu mér dollara í gjaldeyri, sem og ma+pa+baddý+Píla. Núna erum við Þorsteinn vel sett af gjaldeyri :) Gunni frændi Þorsteins gaf mér æðislega flott leikfanga-hesta-sett sem heitir "Black Beauty" og varð mér þá bara hugsað til tengdapabba híhíhí. Já - hann gaf mér líka Pez sem ég er sjálfsögðu búin með! :D
Dagný systir og viðhengin hennar sendu mér svo pakka alla leið frá borginni. Í honum var Blue Lagoon húðvörur, bodyscrub og lotion og verður alveg frábært að hafa það með til útlanda.
Annars held ég að ferðataskan verði hálftóm á leiðinni út þar sem við Þorsteinn fórum, mjög kaldlynd, í gegnum fötin okkar og gáfum heilan ruslapoka til Rauða Krossins, og hentum svo öðrum ruslapoka. Ég gaf líka 2 haldapoka af skóm!! Það sem maður safnar að sér er alveg ótrúlegt....
Næstu helgar eru svooo ótrúlega vel skipulagðar að það er ekki venjulegt.
Svona hljómar dagskráin fyrir þau ykkur sem nenna að lesa (aðrir geta bara hætt núna!)
19-21 Maí: Ráðstefna í Kvosinni - strákarni koma
26-28 Mai: Flutningar - aðstoð vel þegin!
2-4 Júní: Sunna fermist!!! - Afhending íbúðar
9-11 Júní: Anna Birna útskrifast - óvissuferð á vegum 4.bekkjar í MA. - Partý hjá INGU!!!! :D
16-18Júní: Útskrift og útskriftarveisla - note to self: Klára boðskort og senda!!
23-25Júní: Komin til útlanda = Slappa af í SIMI VALLEY og njóta þess að slappa af! :D
Úff... hvernig á maður eiginlega að hafa tíma til að gera allt sem maður þarf að gera í lífinu?! Það verður svo notarlegt að breyta aðeins til og hafa eitthvað annað að snúast í kringum en undirbúning og skóla. Áhyggjur mínar í sumar verða örugglega hvort að krakkarnir hafi ekki alveg örugglega gert heimavinnuna sína, hvort að gluggarnir séu nokkuð skítugir og blómin í garðinum dauð vegna þurrks. Já - lífið á svo sannarlega eftir að breytast!!
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Freyja:
Þetta verður alveg frábært hjá ykkur. Það er svo gott að stokka upp lífið.... losa sig við dót, fara og gera eitthvað spennandi og koma svo sæll og sáttur heim aftur, með heilmargar sniðugar sögur í farteskinu.
Hlakka til að hitta sjónvarpið ;)
15.05.06 22:23
Já Hanna mín þetta á án efa eftir að vera mjöög skemmtileg ferð og þið eruð að gera þetta á svo hárréttum tímapunkti í lífinu finnst mér. Þannig að ég óska ykkur alls hins besta en vil náttúlega fá að knúsa þig bless áður en þú ferð :* :*
15.05.06 22:35
Takk elskurnar. Já Sigrún þú færð sko knús áður en við förum!! :D Gott ef þú færð ekki bara knús frá okkur báðum ;)
Freyja: Sjónvarpið iðar alveg af tilhlökkun! Færð það þarnæstu helgi!! :D :D
15.05.06 23:22



