Þriðjudagur 04. apríl 2006 / 15:29 / Heilbrigði
Skrapp í lyf&heilsu til að kaupa verkjalyf handa Þorsteini veika. Ákvað að skella mér í nokkrar mælingar í leiðinni, eiginlega bara til gamans! Það er nú samt líka nauðsynlegt að fylgjast með heilsunni. Útkoman úr þessum "rannsóknum" var hin fínasta.. og er ég alveg fílhraust! Blóðþrýstingurinn var samt frekar lágur - en það er nú samt betra að vera í lægra lagi en hærra! Hann var semsagt 113/73 og púlsinn var 64. Blóðsykurinn var 5,2 og á að vera milli 4-7 fyrir máltíð. Blóðfitan var 4.43 og ef hún er hærri en 6 þá er maður víst í einhverjum áhættuhóp en kellan sagði að ég væri bara í mjög góðum málum! Kom svo heim og mældi hitastigið á mér.. 35.7... sem er nú frekar lélegt þar sem Þorsteinn rústaði mér með 38stiga hita!
Já svona er Ísland í dag!
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
Edda:
Þú ert ekkert með lágan blóðþrýsting, hann er bara eins og hann á að vera.
04.04.06 16:27
er ég alveg búin að rústa þessu með íbúðina.. ussussuss.. fékk samt bréf í síðustu viku um að Júnsa komst inn í leikskóla í ágúst.. þarf að svara á morgun... darn!! hitnaði smá við tilhugsunina.. ussussuss
04.04.06 21:39
Inga: já þú ert alveg búin að eyðileggja þetta! ;) Neeehhh enga vitleysu, þetta reeeddast :D
Edda: Allavega sagði hjúkkan að þrýstingurinn væri í lægra lagi, en samt ekkert of lágur! Bara svona akkurat :)
04.04.06 22:46



