Mánudagur 24. apríl 2006 / 11:54 / Hádegismatur

Mmmhhh... fékk mér svo góðan hádegismat áðan. Það besta við hann er að hann er fljótlegur og einfaldur, og að sjálfsögðu meinhollur ;) Þeir sem vilja "herma" geta lesið áfram ;)
Svo ef þið lesið áfram er líka smá heilsupistill... Átti fyrst bara að vera hádegismaturinn í dag... en líka komin uppskrift af hádegismatnum í gær, og pistill um krydd og olíur! :D hehehe




Ég byrjaði á því að taka út úr frysti eina heilhveiti-tortilla köku. Svo steikti ég á pönnu sveppi, rauðlauk, blaðlauk og papriku (hefði helst vilja saxa smátt hvítlauk og líka smá chili-pipar, en það er langt síðan ég fór í búð svo ég átti hvorki hvítlauk né chili!) Já, ég krydda líka alltaf grænmetið sem herbamare-jurtasalti sem er hollt og gott!! Þegar steikingu á grænmeti var lokið, skellti ég salsasósu og sýrðum rjóma á tortillað, grænmetinu ofaná (yfir alla, ekki rúllað upp!) og svo setti ég kál + rifnar gulrætur yfir. Svo borðaði ég með hníf og gafall - og að sjálfsögðu með bestu lyst ;) Það er auðvitað hægt að rúlla upp kökunni með grænmetinu innan í, en þá kemur maður ekki jafn miklu grænmeti á kökuna!! Ef þið viljið vera extra góð við ykkur.. þá er líka mjög gott að skella annari tortillaköku yfir allt saman - ég hinsvegar er alltaf að berjast við kolvetnið (brauðið) þannig að ég nota bara eina köku! Svo megiði auðvitað setja hvaða grænmeti sem er, ég bara átti ekkert annað grænmeti! Fínt að setja meira ferskt grænmeti yfir!!


Endilega prófið að gera svona grænmetis-tortilla, borðaða með hnífapörum. Kemur á óvart hvað þetta er gott!!


Já og meðan ég er að tala um tortilla. Ég gerði líka svona tortilla-rétt í gær í hádeginu handa okkur Þorsteini, Þorsteini Inga og Þormari.
Þá keypti ég pakka af einhverju sem heitir "E..." eitthvað (man ekki hvernig var skrifað, og get enganvegin borið þetta nafn fram!!) en það er frá Old el paso held ég, og samanstendur af tortilla kökum, kryddi og tomatpuree. Ég fylgdi einfaldlega leiðbeiningunum, steikti hakk á pönnu, hrærði saman tomatpurree, kryddi og vatni og hellti svo yfir hakkið þegar það var tilbúið. Þegar þetta var orðið frekar þykkt, þá setti ég þetta í miðjuna á tortillaköku, rúllaði upp og skellti svo í eldfastmót. Ég notaði (held ég) 6kökur í eitt eldfastmót, og hellti svo afgangnum af tomatpurree-blöndunni yfir og setti svo ost. Þetta var ekkert SMÁ gott! Næst ætla ég að setja grænmeti útí hakkið á pönnunni, og ég mæli með því að þið notið ALLS EKKI allt kryddið úr pokanum. Svo er líka allt í lagi að krydda bara sjálfur tomatpurree frá Hunts og þá sleppur maður við að kaupa svona "pakka" frá Old el Paso. Maður ræður þá líka sjálfur hvaða krydd maður notar, ég myndi t.d. nota jurtasalt og svartan pipar.. jafnvel mexicokrydd líka svona til að halda í mexico-stílinn. Ég gleymdi alveg að athuga innihaldslýsinguna á kryddinu, en ég er alveg viss um að það hefur verið uppfullt af E-efnum (E600-eitthvað efnin, eru efni sem þið eigið að forðast eftir bestu getu!!). Kryddin frá pottagöldrum (glerbaukur með grænu loki og miða!) eru öll án salts, aukaefna, msg og silikon díoxíðs = mjög góð krydd!!!
Mæli sterklega með því að þið hendið öllum msg-salt kryddunum ykkar og skiptið yfir í pottagaldra!!
Safnast þegar saman kemur!!
Einnig benti Edda mágkona mér á sólblómaolíu sem fæst (á 670kr) í heilsubúðinni, Glerártorgi, og er alveg meinholl. Það má líka steikja þessa olíu!!! Hún er mjög góð fyrir fólk með hjarta- og æðasjúkdóma.. og fyrir okkur hin sem erum að fyrirbyggja hjarta og æðasjúkdóma!!!
Úff.. þetta er orðið alltof langt hjá mér.... missti mig aðeins í heilsunni eftir allt nammiátið undanfarna daga hehehe


Matarhorni/heilsuhorni dagsins í dag lokið ;)

Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

Freyja:

Þú ert hetjan mín.....
Ég hlakka til að prufa tortillurnar í eldföstu móti, hljóma mjööööög vel, mér finnst líka ofboðslega gott að sneiða niður tómata og smella smá sýrðum á eina köku og eta svoleiðis.... maður er svo nægjusamur ;)

24.04.06 14:37


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín