Laugardagur 22. apríl 2006 / 22:24 / Afmæli!

Myndin hérna fyrir neðan er tileinkað honum Danna frænda sem varð tveggja ára í dag! Hann hélt uppá afmælið sitt heima á Hauganesi og var ekkert smá gaman í því afmæli! Drengurinn var svo pollrólegur yfir pökkunum, að ég var eiginlega spenntari en hann :) Það voru fullt af góðum kökum, enda ekki amarlegt þegar þrjár húsmæður leggjast á eitt! Núna hinsvegar er ég alveg að farast úr þreytu, og er að hugsa um að fara snemma í bólið - enda mun dagurinn að öllum líkindum byrja snemma hjá okkur hérna í H20H því hann Þormar gæji sem gistir hjá okkur er víst algjör morgunhani ;)
Læt þetta gott heita í bili - Til hamingju með afmælið elsku Danni!


Þessi færsla er skráð í flokknum vinir og vandamenn. Þar eru 33 færslur.

/ Álit

svanhildur:

wo, smá ótrúlega töff kaka! :D
...er ekki að ná þessu! hehe :)

knús

23.04.06 20:58


elva:

hææ:) eg er komin heim! agalega gott að vera komin! Er meira en tilbúin til að demba mér á fullu í ræktina! eigum við að fara í dag??

24.04.06 09:15


danni og mom:

takk æðislega :)

29.04.06 00:25


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín