Fimmtudagur 09. mars 2006 / 09:36 / Vigtin

Steig á vigtina í morgun. Býst við því að í næstu viku verð ég búin að kveðja síðasta tuginn minn!! Þvílík snilld...
Bara rúml. 5kg eftir í loka takmarkið mitt og þá verð ég sko orðin svakaleg skutla! Læt ykkur samt vita hvort að það reynist rétt hjá mér að ég verði komin undir þennan tug í næstu viku.. Vona það svo heitt og innilega. Enda sit ég hérna með hafragraut fyrir framan mig og borða með bestu lyst! Fer svo í leikfimi eftir hádegi (nenni reyndar ekki að svitna neitt mikið því ég var að koma úr sturtu!) og svo stefni ég á fjallgöngu eftir kaffi með honum Hersteini mínum. Þetta verður langur, strangur en góður dagur í dag!! Býst við því að STEINsofna fyrir framan sjónvarpið í kvöld, en það er líka allt í lagi! ;)

Watch out Hollywood, Here I come!!

Eitt í viðbót - ég skal skella inn uppskriftum sem ég prófa og láta vita hvernig gekk og hvort að ég breytti einhverju! Þá sleppið þið (Svansa og Linda hehe) við að prófa eitthvað sem er svo ekki gott! Vonandi næ ég að gera gulrótarköku (HOLLA!) um helgina! :D


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

Lísbet:

Mér finnst alveg frábært að lesa að þú sért að fara í fjallgöngu og hvað þú hefur lést mikið, það er svo ótrúlega mikill munur á þér eftir að þú breyttir um lífstíl.. ég meina þér hefði aldrei dottið í hug að fara í fjallgöngu fyrir hálfu ári :* :* stolt af þér ;)

09.03.06 12:06


hanna:

Takk elskan mín ;) Hefði nú heldur ekki getað þetta án high-five-ana ykkar Jonnu!! Skuldar mér five á mánudaginn!! (Vonandi hehe)

09.03.06 15:37


baddy:

hvaða tugur er þetta sem þú ert að tala um 50?

09.03.06 21:07


hanna:

Ég ætla nú ekki að eyða út öllum beinum líka! ;) Hehe

10.03.06 00:31


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín