Föstudagur 17. mars 2006 / 18:06 / Minnið!
Minnið er svo sannarlega hverfult! Einhverntíman fyrir löngu gerði ég geeeeggjað gott kjúklinga-lasagne en ég man ekki alveg hvernig uppskriftin var! :( Man samt svona nokkurnvegin: kjúklingur, kotasæla, grænmeti, lasagneplötur. Það var samt eitthvað spes við hana sem ég bara get ekki munað. Svona til að bæta ástandið, þá fann ég miða sem stendur á "kjúklinga lasagne, bls 5!" Hvaða helvítis blaðsíðu 5?!! Í hvaða bók??
Úff.. það er nú meira ástandið.
Annars var ég mjög dugleg í dag. Eiginlega of dugleg myndu einhverjir segja. Fór í ræktina með Elvu í dag klukkan 13:00 og við fórum úr ræktinni 14:30. Gerðum mjög góðar æfingar fyrir hendur og mun ég eflaust ekki geta haldið á hnífapörunum í kvöld ;) Svo klukkan 15:30 fór ég í ræktina með Dömmu. Við tókum fyrst 24mín prógram þar sem ég hljóp eins og vitleysingur. Eftir það gátum við bara ekki hætt og ákváðum að prófa 18mín prógramið. Það fór eiginlega með mig, enda er það ekki mín deild að hlaupa mikið uppí móti. Svo hjóluðum við í 20mín og gerðum svo magaæfingar (sem er auðvitað skylda!) Eftir seinni-ræktina fór ég svo beint í ljós í Stjörnusól, enda verð ég nú að vera sæt fyrir morgundaginn, en þá er UNGFRÚ NORÐURLAND.
Róleg.. ég er ekki að fara taka þátt... vildi gefa fleirum séns og ákvað að mæta ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fólks til að fá mig í keppnina. Lísbet vinkona verður hinsvegar á svæðinu og stefnir að því að slá í gegn. Við Þorsteinn skröpuðum saman TÓLF ÞÚSUND KALLI til að geta farið á keppnina (viðurstyggilega dýrt!) og krefjumst við því endurgreiðslu ef hún vinnu ekki! :)
Mikið að gerast.. en það eina sem ég er með á hreinu, er að á morgun skal djammað! :D
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.
/ Álit
kræst, var eitt skiptið ekki örugglega fyrir mig!
17.03.06 23:38



