Miðvikudagur 08. mars 2006 / 17:01 / Maaatuuur!!

Ég held varla vatni hérna megin við skjáinn! Mamma var að senda mér slóð á snilldar síðu. Þessi síða er svona uppskriftar-síða hjá konu sem er 95% grænmetisæta og allar uppskriftirnar eru HOLLAR og (ég held) alveg rosalega góðar! Núna sit ég og copy-a uppskriftir sem mér lýst vel á yfir í wordskjal sem ég svo prenta út, og núna verður maður bara að hafa sig til og fara að prófa rétti fyrir útskriftarveisluna mína! Veislan á sko að vera rosalega létt (eins og ég híhíhí) og þeir sem vilja sykur-bombur og ger-súkkulaði-brauð mega bara sleppa því að mæta! (geta sent mér pakka í pósti! hehe)
Endilega skráið ykkur í komment ef þið viljið koma í prufu-mat til mín.. lofa engu um hvernig matreiðslan verður, en það er alltaf hægt að panta pizzu! :D
Jói og Gunni - þið þurfið ekki að skrá ykkur.. ég veit vel að þið komið hvort sem ég býð ykkur eða ekki hehe!


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

sandra:

er séns að þú látir slóðina á bloggið þitt... eða í msn ef þetta er eitthvað leyndó?? ég er svakalega hungruð í flottar/hollar matarsíður
kveðjur og knús sandra, katrín, sverrir og kristofer

(en samt aðallega ég hehe)

08.03.06 17:54


hanna:

Hehe ég bara steingleymdi að láta slóðina fylgja með!! Sorry!! Bæti úr því núna! ;)

08.03.06 19:25


elva:

mmm ég er til!!:) hehe.. dauðlangar með þér í ræktina!kannski annaðkvöd??.. verðum i bandi

08.03.06 23:34


Freyja:

ég er nú alltaf sársvöng þarna hinumegin....... ;) Alveg til í tilraunaeldhús ;)

Svo skal ég líka bjóða þér í mínar tilraunir ... to be fair ....

09.03.06 17:18


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín