Laugardagur 11. mars 2006 / 18:04 / Gulrótar/appelsínukaka

Myndin hér að neðan er af girnilegu gulrótar/appelsínukökunni sem ég gerði í gærkvöldi við borðuðum í kaffinu í dag. Nammi namm, hún var ekkert smá góð!! Enda fékk ég uppskriftina hérna. Uppáhaldssíðan mín þessa dagana ;)
Hér kemur uppskriftin: (ég skrifa í sviga eftir því sem að ég breytti)




Alvöru gulrótarkaka, nema holl
Gerir 12 bita cirka

* 140 gr ávaxtasykur
* 10 gr strásæta t.d. Splenda (ég notaði Canderel strásætu)
* 2 stór egg, í stofuhita
* 1 stór krukka af Hipp Organic sykurlausum barnamat t.d. Apple and Blueberry dessert (Ég notaði einhvern blandaðan grænmetis-barnamat frá BamBim eða eitthvað svoleiðis!)
* 200 gr spelti (eða heilhveiti)
* 50 gr hveitiklíð
* 1 1/2 sléttfull msk af bökunarsóda (bicarbonate of soda) (Ég sleppti þessu)
* 1 msk lyftiduft (baking powder) (Ég átti ekki sódann, þannig að ég setti bara 2 1/2 msk lyftiduft)
* 3 kúfullar teskeiðar af blönduðu kryddi (múskat, kanill, vanilla, vanilludropar t.d.)
* Rifinn börkur af 1 appelsínu (Ég myndi ekki rífa mikinn börk, því mín kaka varð eiginlega meiri appelsínukaka en gulrótarkaka! hehe)
* 200 gr afhýddar gulræddur og rifnar gróft á rifjárni
* 175 gr rúsínur (Ég sleppti þeim - en ætla að prófa þær næst!)
Aðferð:
* Í þessa uppskrift þarf bökunarform sem er 25.5 x 15 cm. og 2.5 cm. djúpt. Það er best að nota bökunarpappír því þá þarf maður ekki olíu eða smjör
* Forhitið ofninn í 170°C
* Byrjið á því að þeyta saman ávaxtasykurinn, eggin og ávaxtamaukið (barnamatinn) í skál.
* Notið handþeytara og þeytið í 2-3 mínútur.
* Blandið því næst hveitinu, lyftiduftinu og blandaða kryddinu í skálina.
* Hrærið allt saman og blandið svo appelsínuberkinum, gulrótunum (og rúsínunum.)
* Hellið svo blöndunni í bökunarformið og bakið í miðjum ofninum í 35-40 mínútur þangað til kakan rís og er þétt viðkomu.
* Á meðan kakan er að verða til, blandið þá kremið með því að setja allt hráefnið í það í matvinnsluvél (hellið nánast öllu vatninu af döðlunum) og blandið þangað til kremið er orðið “létt”(setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskápnum í minnst 1-2 tíma eða þangað til þarf að nota kremið.


Kremið

* 200 gr kvarg eða hreint skyr
* 1 tsk vanilludropar
* 75 gr döðlur
* 75 gr aprikósur
* 1/4 -1/2 dl appelsínusafi (Ég kreisti bara í dl.mál safann úr appelsínunni sem ég var búin að rífa börkinn af!)
Aðferð:
* Leggið döðlurnar & aprikósurnar í bleyti í sjóðandi vatn í ca 10 mín
* Hellið nánast öllu vatninu af
* Maukið saman í matvinnsluvél kvargið og þurrkuðu ávextina, setjið smá appelsínusafa ef ykkur finnst kremið vera of stíft.

* Svo þegar kakan er alveg orðin köld, takið hana þá úr forminu og smyrjið kreminu á.
* Ágætt er að leyfa kökunni standa í ísskáp með kreminu á í nokkra klukkutíma.
* Dreifið smá kanil yfir kremið
* Skerið í 12 bita

Vonandi þorir einhver að prófa þessa köku. Hún er alveg þess virði!! Ég kannski bakaði hana ekki alveg nægilega lengi, því hún var pínu "blaut" í miðjunni, en mér fannst það samt ekkert verra!! Þorsteinn "kvartaði" yfir því að það var of sterkt bragð af appelsínunni þannig að næst ætla ég bara að rífa smá börk, og nota svo smá appelsínusafa í kremið.

Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

Freyja:

mmmmmmmmm þarf að prófa þessa við tækifæri.... reyndar er ég húðlöt við að baka, hef týnt húsmóðureiginleikum mínum..... en þessi kaka virkar vel þess virði að prófa,,, þú ert sem sagt Nigellan okkar :)

12.03.06 01:42


svanhildur:

yumm-y! ...ma eg koma i kaffi i april? :)

12.03.06 20:46


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín