Fimmtudagur 09. febrúar 2006 / 18:21 /
Var viktuð og mæld í bak og fyrir í dag. Ekkert rosalega spennandi tölur sem komu útúr þessu þar sem þessi mánuður hefur eiginlega verið algjört stopp hjá mér :( Eeenn... ég er búin að ná góðum árangri og það er bara allt í fína þó að hlutirnir gangi ekki alltaf smurt! Maður kann líka mun betur að meta þá ef maður þarf að hafa fyrir þeim!
Nýjustu tölurnar eru semsagt að á þessum mánuðu náði ég af mér 2.5kg (ekkert stórkostleg tala, en þó tala!) og tólf cm...
Síðustu tvo mánuði hef ég náð 30+cm þannig að cm var pínu fúlt :(
Þessi niðurstaða er því komin í málið:
Síðan ég byrjaði í okt/nóv þá er ég búin að ná af mér 14.5kg og 78cm! Það er nú bara ágætt held ég barasta!
Fór í tilefni af þessum áfanga (þ.e.a.s. að vera búin að ná af mér næstum-því 15kg!) og keypti mér kjól í Gallerí. Hann er pínu þröngur, en það er líka fínt því ég á nú eftir að láta fleiri cm fjúka áður en yfir lýkur :D
Svo set ég inn nýja andlitsmynd fljótlega!
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Hófý:
Mikið rosalega ertu dugleg! VÁ! ég vildi að ég hefði eitthvað af þessum vilja sem þú virðist hafa! ég reyndar er búin að ná af mér "olískílóunum" sem er gott...! en mér finnst alveg æðislegt að heyra (lesa) hvað þér gengur vel! mátt sko alveg vera stollt af þessum árangri! Til hamingju elskan mín :D sé þig á þorrablótinu, ekki satt?
10.02.06 00:43
hehe þú ert búin að missa eina ofurfyrirsætu spáðu í það!!
10.02.06 10:33
HAHAHAHA Snævar þú ert snillingur ;)
10.02.06 15:33
Congrat.. Góður punktur Snævar. Við syrgjum þessa fyrirsætu ekki.. ;)
10.02.06 15:39
Freyja:
Ég hreinlega dáist að þér stúlka góð!!! Þú ertálveg voðalega dugleg og átt skilið svo mörk klöpp á bakið, til lukku með árangurinn :)
10.02.06 16:53



