Sunnudagur 12. febrúar 2006 / 18:16 / Þorrablót

Fór á hið árlega þorrablót Árskógsströndunga í gær. Það var ekkert smá gaman! Byrjaði á því að taka mig til hjá Höllu og Sævari og svo fórum við uppeftir (þau voru MJÖG ánægð með það að ég var driver hehe). Þegar uppeftir var komið settumst við hjá elsku Ásdísi vinkonu sem ég tala alltof sjaldan við! (Á svona 2ja ára fresti!!) og það var rosalega gaman að hitta hana og Sævar, kærasta hennar. Ma+Pa voru formenn nefndarinnar og stóð pabbi sig ekkert smá vel sem kynnir. Hann var mér bara ekkert til skammar og er ég bara stolt af gamla kallinum ;) Ég lofaði Helgu að taka FULLT af myndum.. þannig að ég tók ekki neinar! nei okay, ég tók svona 5 eða eitthvað... set þær samt inn svo að fólk geti nú skoðað eitthvað! Þær eru hérna. Annars voru alfa og elva mun duglegri en ég við að mynda. Alfa eiginlega sleppti aldrei myndavélinni og vonandi setur hún myndirnar fljótlega á netið! Það skal tekið fram að Skagfirska sveiflan, með Geirmundi Valtýs í fararbroddi sló í gegn. Ég er enþá með "Nú er ég léttur..." á heilanum!! ;)
Elva, Ásta og Anna Borg fengu svo far með mér til Akureyrins klukkan 4 í nótt og voru þær allar hressar.. en þó mishressar híhíhí.
Fyrsta alvöru stuðningshelgin okkar með bræðurnar er nú lokið og hún var alveg rosalega fín. Eins og áður sagði, þá eru þeir með einsdæmum kurteisir og hlýðnir drengir. Þeir eru meira segja svo hlýðnir að við Steini sváfum til 11 í morgun :D Yndislegt! Þeir fóru bara út að hjóla og dunduðu sér sjálfir. Ég gerði reyndar góða drápstilraun við yngri bróðurinn í gær, þegar ég faldi mig og þegar hann hljóp framhjá stökk ég fram.. og honum brá svo greyjinu að hann stökk hæð sína í loft og hljóp eins og brjálæðingur. Þetta var svooo fyndið, en líka svona "had to be there" dæmi. Við allavega hlógum okkur máttlaus þegar við vorum búin að fullvissa okkur um það að hann væri lifandi ;)
Læt þetta nægja í bili
Yfir&út
p.s. ég setti líka myndir inní þetta albúm! Endilega kíkjið á gullið :*


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

Linda ..:

Þú hefur ekkert ákveðið að taka eina mynd af "vini" okkar ?? HEHE ég segi bara eitt All roads lead to them!!!!!!!

13.02.06 16:13


svanhildur:

Finnst aedislegt hvad thu ert dugleg! :) Pastaretturinn var mjog godur :D - verdur pottthett gerdur aftur! Var buin ad steingleyma ad thorrablotid hefdi verid um helgina - hefdi pottthett ekki skemmt mer eins vel her uti tha helgina ef eg hefdi munad thad :) ...

Bestu kvedjur!!

13.02.06 18:01


Helga Kristín:

Þú hefur aldeilis verið AKtív á myndavæelinni fyrir mig...;)

16.02.06 00:26


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín