Föstudagur 03. febrúar 2006 / 19:59 / Kvöldmaturinn

Þar sem Þorsteinn er alltaf að vinna þegar kvöldmaturinn er, hefur verið lítið um eldamennsku á þessu heimili. Ég bauð Gunna félaga í mat, þar sem Marín kærasta hans er í Finnlandi og eldaði handa okkur kjúklingasalat. Það var alveg ÓTRÚLEGA gott, og er uppskriftin að miklu leyti stolin frá Hörpu vinkonu. Ég ákvað að skella "uppskriftinni" eða eiginlega bara hráefnalistanum hingað inn svo að þið getið nú eldað ykkur hollt og gott kjúklingasalat!


Innihald
Kjúklingabringur
Taco-krydd fyrir kjúkling (Old El Paso)
lambhagasalat
paprika
gúrka
rauðlaukur
chili-pipar
hvítlauksgeiri
sólþurrkaðir tómatar
sólblómafræ
graskersfræ
hnetur
rúsínur
.... - Held ég sé ekki að gleyma neinu!-....

Svo auðvitað setjið þið bara í það grænmeti sem ykkur finnst gott í salatið.

Aðferð:
Skera kjúklingabringurnar í litla bita. Skella þeim á heita pönnu og steikja þangað til hvítir í gegn
Á meðan þeir steikjast/malla við meðalháan hita þá byrja ég á salatinu
Sker lambhagasalatið niður
paprikuna og rauðlaukinn frekar smátt, saxa svo hvítlauk og rauðan chilli-pipar niður í örsmátt. Sker sólþurrkuðu tómatana niður (passa að hafa ekki mikla olíu á þeim!)
Flysja og kjarnhreinsa gúrkuna og sker svo í bita.
Öllu blandað saman í skál, rúsínum og hnetum stráð yfir.

Kjúllinn: Þá ætti hann að vera orðinn hvítur og fínn. Set smá vatn á pönnuna og dreifi svo úr kryddpokanum yfir kjúklinginn. Læt þetta malla svona í smá stund. Tek þetta af pönnunni, læt kólna smá og set svo í skál og inní ískáp.
Þegar salatið er tilbúið fer það líka inní ísskáp.
Þegar salatið og kjúllinn hafa kólnað vel, þá sturta ég bara kjúllanum (með vatninu og öllu) yfir salatið og hræri svo vel. Rista fræin á pönnu og set í skál og hef með (það vilja ekki allir svona fræ)
Það er upplagt að bjóða í mat í þetta því það er hægt að græja matinn um daginn og vippa honum svo bara fram þegar gestirnir koma!
Vonandi prófar þetta einhver, því þetta er auðvelt, fljótlegt og þægilegt! Næstum því eins og 1944 réttirnir! :D Geggjað!
Verði ykkur að góðu!

Þessi færsla er skráð í flokknum heimilið. Þar eru 25 færslur.

/ Álit

Guðný:

Hljómar vel! Nema girl, ekki nota lambhaga, notaðu frekar Grand salat! Styðja garðyrkju í tungunum ;) smá auglýsing hehe. Annars alltaf gaman að lesa hjá þér, ferskleg tilbreyting frá blog.central! kv. Guðný

03.02.06 22:31


Kata:

namminamminamm

04.02.06 13:01


hanna:

Guðný mín.. ég fór áðan að versla og keypti að sjálfsögðu GRAND salatið frá Hveratúni! :D Mhh það verður sko gott salat með matnum í kvöld ;) Geggjað!

04.02.06 16:06


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín