Sunnudagur 22. janúar 2006 / 15:10 / Þvílík helgi!

Þessi helgi er búin að fara algjörlega í rugl = enginn lærdómur!
Við Steini ætluðum nú bara að taka því rólega á föstudagskvöldið þegar við komum frá Degi og co en þá hringdi elsku Sigrún vinkona og henni tókst að draga okkur á djammið - með stæl! Við byrjuðum á Kaffi Karólínu, fórum svo á kaffi AK og síðan var auðvitað endað á Kaffi Amour Þetta var alveg rosalega skemmtilegt djamm og gríðarstuð að vera Edrú .. svo ótrúlega gott að geta bara sest beint uppí bíl og keyrt heim ;) Á laugardaginn kom svo hinn yndislegi frændi minn Þorsteinn Ingi - en hann var kosinn á föstudagskvöldið Herra Dalvíkurskóli (geri aðrir betur!) og þurfti að leita sér skjóls á duldum stað sökum æstra aðdáanda :) Hann og Þorsteinn Björns hafa svo bara varla staðið uppúr sófanum - nema kannski helst til að fara á WC því að það er víst alveg ómetanlegt að fá FIFA-félaga (hef ég heyrt) Á meðan sef ég bara, eða hangi í tölvunni, eða laga til... eða geri eitthvað annað en að læra! Steinarnir ætla þó báðir að yfirgefa mig núna seinnipartinn,... minn Steini til að fara í vinnuna og Steini Beautyqueen til að fara heim... Þá ætla ég mér að taka smá törn í því að læra... þangað til að það byrjar eitthvað meira spennandi í sjónvarpinu ;)
Over&Out


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

sandra:

hæ hanna mín, vertu nú dugleg að læra svo þú náir prófunum þínum.. þetta er alveg að verða búið, og þá tekur bara við endalaus sól og frægt fólk... hehe þá verður stuð sjáumst kannski næstu helgi ef þið komið suður

23.01.06 09:19


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín