Mánudagur 30. janúar 2006 / 10:06 / Sl 3mánuðir..
Það vita það nú líklega flestir að í oktober 2005 ákvað ég að breyta um lífstíl. Ég hef aldrei skifað um það hérna inni, enda er þetta eitthvað sem að kemur ekki öllum við, og ég hef haldið fyrir sjálfa mig. Núna hinsvegar langar mig að deila með ykkur hvað þetta er búið að vera æðislegt og jafnvel vera innblástur til þeirra sem ætla sér alltaf en fara aldrei af stað!
...
Ég byrjaði hjá Lísu á Bjargi í lok oktober og síðan þá eru 66cm farnir og 13kg. Ég hefði aldrei nokkurntíman getað gert þetta sjálf því að ég er með alveg gríðarlega lélegan sjálfsaga og alltof góð við sjálfa mig. Hreyfing og hollt matarræði er orðinn hluti af mínu daglega lífi og mér hefur sjaldan liðið svona vel. Ég borða bara 3x á dag sem er bara fínt, og ég er eiginlega aldrei svöng (meina hey, hver er ekki svangar einhverntíman!!) Ég borða líka allan mat.. borðaði reyndar ekki ost né smjör í 2vikur, ekkert nammi, popp, gos eða neitt slíkt heldur... en núna veit ég bara hvaða matur lætur mér líða vel og hvaða matur lætur mig engjast af kvölum ;) Ef þið td spáið í það næst þegar þið pantið ykkur pizzu klukkan 9 um kvöldið eða eitthvað.. að þegar þið eruð búin að hakka í ykkur nokkrar sneiðar, þá er maginn alveg útblásinn af hveiti og geri og þið eruð þung á ykkur, þreytt og löt. Það er útaf því að blóðið fer allt í magann til að vinna á þessu "þarmakítti" sem pizzan er!!
Hallelúja, ég er nú samt ekkert að segja að ég sé eitthvað heilög, langt því frá! Ég reyni bara alltaf að borða ekki brauð eftir 14 á daginn og það er bara miklu minna mál en ég hélt! Samlokur á kvöldin eru semsagt alveg off.. og bara ekki borða neitt eftir kvöldmat nema ávexti!...
Predikun búin.
Þegar ég byrjaði í oktober gat ég hlaupið/skokkað 2mín á bretti og þá var ég alveg dauð, núna hinsvegar fer ég í 30mín prógram sem er svona 25mín skokk/hlaup og það æðislegt að skokka bara og skokka! Mér finnst mestur munur samt liggja í því að geta kropið, beygt mig niður og gert allann ansk. án þess að fá náladofa í fæturnar eða detta framfyrir mig af spiki ;) Já þetta er algjörlega nýtt líf sem ég hef fengið í hendurnar og ég ætla svo sannarlega ekki að láta þetta tækifæri til þess að vera heilbrigð renna mér úr greipum. Inní herbergi er líka fullur ruslapoki af fötum sem ég passa ekki lengur í, eru orðin teygð og ljót. Þegar ég mætti fyrst í ræktina var bolurinn ný-þröngur á mig, buxurnar alltaf litlar og skórnir þröngir. Núna er bolurinn kominn ofaní pokann því hann er svo stór, buxurnar hanga á mjöðmunum á mér (mjög pirrandi.. get ekki beðið eftir penge til að kaupa mér nýjar!) og skórnir.. tja.. það má eiginlega segja að ég sé búin að fara niður um allavega hálft skónúmer því ég geng uppúr þeim!!
Ef að þið eruð að pæla í því að breyta lífstílnum (ekki segja "byrja í átaki" - því ef þú tekur þig á, þá er það ekki tímabundið ástand þar sem þú þarft að hreyfa þig og borða rétt, heldur er þetta átak fyrir lífstíð!! = breyttur lífsstíll) þá segi ég nú bara go for it!.. vittu bara til .. þetta er miklu auðveldara en þú heldur! ;)
Kveðja
Ofurbomban.. híhí
Ákvað að crop-a myndir til og birta bara andlitsmyndir af mér... er reyndar misfalleg á þeim/misúldin en jæja...
Here they come:

Mánaðarmót okt/nóv

Mánaðarmót nóv/des

Rétt fyrir jólin 2005.
Það sem mér finnst samt toppa allt eru þessar tvær myndir, önnur tekin í sumar og hin núna eftir áramót!


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Vá Hanna, 13 kíló? Þú ert hero! nenniru að gefa mér smá af þessu? hérna er kvöldmaturinn aldrei fyrr en 9 á kvöldin, brauð og brauð og ostur og ostur og salt. Jeminn eini! En go girl, you hottie mama ;) verður flott í LA
30.01.06 11:01
Ég er svo stolt af þér Jóhanna....
þ'u ert rosalega dugleg !!!
*klapp á bak*
30.01.06 11:39
sandra:
ég er skælandi hérna, því ég ætlaði með þér í okt, en hvað.. ég fór 1x í ræktina...!!! skæli skæli skæl
30.01.06 12:21
elva:
frábært hanna! :) flott hjá þér!:)
30.01.06 12:26
Ég fékk þann heiður að vita af þessu frá byrjun og er búin að fylgjast með þér hverfa smátt og smátt. Ég var svoo stolt af þér þegar þú byrjaðir og er það enn núna 3 mánuðum seinna, enda ekki annað hægt. Árangur er frábær !! :) Til hamingju elskan, hibb hibb húrra ! :*
30.01.06 18:27
Þú ert algjör snillingur og hreinræktuð fyrirmynd kæra systir! Til hamingju með árangurinn :)
ps. Fær maður ekki að sjá "fyrir og eftir" myndir? ;)
30.01.06 21:20
Haha.. já þessar myndir sem að Lísa tók eru nú bara fyrir MJÖG svo nána vini.. En aldrei að vita nema ég krafi upp einhverjar gamlar andlitsmyndir! :D Hehe
30.01.06 23:17
Já og takk fyrir öll hrósin ;) Gaman að þeim! :D
30.01.06 23:36
Já sæta mín.. þú ert náttúrulega bara flottust!! núna þarf maður bara að fara að passa sig.. :D hehe.. þegar ofurskutlan mætir þarf maður aldeilis að gera sig til.. it's not easy to have a hot girlfriend! haha..!
Keep up the good work!! ég fer að byrja! :D
31.01.06 19:14
Einfaldlega bara FLOTTUST ;)
31.01.06 19:58
Þóra:
Ekkert smá flott hjá þér Hanna Lína, til hamingju :)
31.01.06 22:07
Nanna bekkjarsys:
HANNA! ég er þvílíkt stolt af þér því þegar þú byrjaðir þá man ég að þú varst ekki alveg viss um hvernig þetta færi! en þú ert búin að sýna og sanna fyrir öllum AÐ ÞETTA ER HÆGT ! ;) Það eina sem þarf er rétt hugarfar og þannig öðlast maður nýjan og betri lífstíl :) þrefalt húrra fyrir Hönnu ; húrra húrra húrra ;*
01.02.06 21:36
olGa:
VÁ VÁ VÁ! Þvílíkur dugnaður, til hamingju með þetta Hanna lína ;*
Þú ert orðin alger skuttla, varst það nú líka fyrir, fegurðin kemur jú innanfrá ;);)
02.02.06 00:08
gunna:
Til hamingju Jóhanna mín, þetta er alveg æðislegt hjá þér, og ég er mjög hamingjusöm fyrir þína hönd því að ég veit hvað manni líður MIKIÐ betur bæði andlega og líkamlega þegar maður er í betra formi! Þú ert mikil fyrirmynd og hvatning fyrir mig núna! :)
Frábært hjá þér :)
04.02.06 17:08



