Laugardagur 14. janúar 2006 / 19:56 / Júnía Efemía 2ja ára!
Til hamingju með afmælið elsku Júnía og takk fyrir góða afmælisveislu!
Við vorum semsagt að koma úr afmæli hjá Júníu elskunni. Mamma hennar (Inga) var búin að baka alveg heilan helling og það var FULLT af góðum kökum á boðstólnum ;) Reyndi samt að halda aftur af mér hehe..
Svo fórum við í leik sem heitir BUZZ, spurningarleikur um tónlist, og hann var alveg ótrúlega skemmtilegur! Ég hætti samt að spila hann til að leika pínu við Júníu mína því ég hitti hana alltof sjaldan. Ég kenndi henni "legg-í-lófa-karls-karls!" og þvoði henni um hendurnar þannig.. ekkert smá mikið stuð ;) Mamma hennar á örugglega eftir að lenda í vandræðum þegar Júnía biður næst um "lej-í-lóa!" og Inga veit ekkert hvað barnið er eiginlega að tala um! :) Hún er algjör snillingur!
Svo stoppuðum við í smá stund hjá Höllu og Sævari. Halla var reyndar ekki heima, en Þorsteinn fór beinustu leið í tölvuna með Þorsteini Inga frænda og þeir kepptu í fótbolta í klst. Meðan spjallaði ég við Unni Birtu skvísu. Hún var að æfa sig að skrifa þegar ég kom.. Veit sko alveg hvernig á að skrifa nafnið hennar mömmu sinnar, pabba og skrifaði meira að segja mitt nafn! (Hanna - ekki alla rununa hehe) Hún er svo dugleg, að hún kann að skrifa alla stafina í stafrófinu, og á kvöldin fyrir svefninn þá er lesnar stafrófsbækur fyrir hana! Það komu samt tár í augun þegar hún sagði mér það (alveg miður sín) að hún færi sko ekki í skóla fyrr en eftir tvö ár! (semsagt haustið 2007) Bara ef að allir væru svona æstir í skólagöngu!!
Jæja.. nóg í bili - verð víst að lesa eitthvað í dag, þýðir ekkert að nota bara prófatíðina til að háma í sig kökur og kíkja í heimsóknir!!
Þessi færsla er skráð í flokknum vinir og vandamenn. Þar eru 33 færslur.
/ Álit
Inga RUt:
oww.. þakka hlý orð í minn garð :) hehe það er ennþá nóg af kökum eftir ef þig langar að halda áfram að borða :)
kíkjum bráðum á ykkur... LOFA :)
15.01.06 22:01
Hæ sæta... geggjuð síða!! :D algjör snilld.. en ég hef eiginlega ekkert heyrt í þér, og þori varla að trufla þig í próftíð, en eftir þessa síðustu færslu, kannski ég bara hringi! :D hehe..
Heyri í þér sæta! :D
16.01.06 16:21




