Fimmtudagur 04. september 2008 / 14:22 / Á hægagangi

Undanfarnir dagar eru búnir að vera í slow-motion mætti segja. Reykjavík virðist draga úr mér alla orku, og ætli orðin hennar Guðrúnar Veigu lýsi mér og íbúðinni minni ekki best þessa stundina: "Rosalega er hún ó-Jóhönnu-leg!". Mér tókst nefninlega að hafa allt spit-and-span á Reyðarfirði í sumar, enda hefði húsið verið fljótt að verða ógeðslegt með lóðandi tík og tvo duglega drengi. Hérna er hinsvegar allt á rúi og stúi. Kassar á gólfi, föt í ferðatösku (jább, búin að vera hérna í næstum viku og bara hreinlega ekki enþá nennt að koma fötunum inní skápinn) og eldhúsið eins og eftir sameiginlega atóm-og kjarnorkusprengju. Þetta kemur samt allt með kalda vatninu. Núna ætla ég bara að liggja áfram í leti, gera ekki rassgat og bíða eftir því að bruna á Blönduós til Ragga bróðurs um helgina :)

hanna / 1

Föstudagur 29. ágúst 2008 / 19:55 / Flutt í borgina :)

Föstudagurinn 29.ágúst 2008. Nú verða lesnar fréttir
------
Jóhanna Reykjalín ku vera mætt í borgina og hvetjum við íbúa í holtunum og hlíðinum að halda sér innandyra. Ekki ert vitað betur en stúlkan sé vopnuð málningapenslum, rúllum og með henni í för er hinn þjóðkunni Jói. Sjónarvottar sáu hana bera stóra fötu af hvítri málningu inní Hjálmholt og er talið líklegt að nú muni litskrúðuga og líflega íbúð Birkis Fjalars Viðarssonar, fyrrv.söngvara I Adapt, verða fyrir barðinu á hinum alræmdu vinum.
Fréttir herma að Jóhanna flytji búslóð sína frá Grafarholtinu í Hjálmholtið, Reykjavík, eftir hádegi á morgun og eru menn vinsamlega beðnir um að sýna sérstaka aðgæslu þegar hún ekur eftir Miklubrautinni. Jóhanna mun hefja nám sitt á öðru ári í Uppeldis- og menntunafræði á þriðjudaginn næst komandi og munu borgarbúum vera óhætt á götum borgarinnar á ný í næstu viku.
-
Góða nótt

hanna / 2

Föstudagur 22. ágúst 2008 / 10:29 / Skattman

Eins og flestir vita hef ég starfað sem stuðningsforeldri í 4 ár með pásum.
Það er frábært að vera stuðningsforeldri, kynnast frábrugðum heimi fatlaðs einstaklings, láta gott af sér leiða - og ekki er verra að fá laun greidd inná reikninginn mánaðarlega.
Það sem hinsvegar er að fæla mig frá stuðningsforeldrahlutverkinu er Skattman!

>> framhald...

hanna / 7

Sunnudagur 17. ágúst 2008 / 09:54 / Helgin mín

Já þessi helgi hefur verið ansi róleg. Á föstudaginn kom Ingi í land og fór aftur í gærmorgun kl 09:00. Birkir, Fríða og Hera hafa verið hérna í vikunni og við verið dugleg að hitta þau. Fyrir þá sem ekki vita þá flyt ég í þarnæstu viku í íbúðina hans Birkis og tek Heru að mér yfir næsta skólaár. Það ætti að verða ansi skrautlegt heimilislíf þar sem hugsanlega verð ég líka áfram með Trixie! Ætti allavega ekki að leiðast hehehe. Ingi kemur svo suður til mín eftir áramót ef allt gengur upp. Ragnar (eldri strákur Inga) sagði við mig í morgun að þegar ég færi suður þyrfti ég að búa í húsi þar sem væri pláss fyrir okkur öll!! Hehehe. Hann man sko alveg eftir pííínku litla herberginu mínu í Mávahlíðinni þar sem var sko ekki pláss fyrir fleiri rassa en minn.
Ég stal strákunum hans Inga af mömmu þeirra í gær svona aðeins til að knúsa þá. Það styttist svo í að ég flytji í burtu að ég á sko eftir að sakna þeirra helling. Þeir eru svo mikil rassgöt þessar elskur, þó þeir reyni nú oft á þolrifin hehehe. Ragnar svaf uppí hjá mér í nótt og Gísli skreið uppí þegar hann vaknaði klukkan 7 í morgun. Ragnar svaf á sínu græna eyra fram undir 9 í morgun.
Núna sitjum við að horfa á bíomynd og ég poppaði fyrir þá. Auðvitað eru þeir búnir að fá hafragraut með eplum í morgunmat ;)
Það er svo sannarlega búið að vera gaman hérna á Reyðarfirði í sumar. Ég á eftir að sakna þess að vera ekki á svæðinu þegar Ingi kemur heim í sólarhringsstopp, strákarnir koma til okkar, Snjólaug og okkar kjaft-æði og svo auðvitað Steinunn og Co (Alma mín buhuhu) og allir bara. Ég er hinsvegar búin að fá atvinnutilboð hérna fyrir skólafrí eins og jólin og páska - og svo sumarvinnu næsta sumar. Þetta kemur allt í ljós.

hanna / 2

© 2001-2007 Dagny Reykjalin