Danni er Naut
20. apríl - 20. maí
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
Emil er Meyja
23. ágúst - 22. september
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
Elsku mamma og pabbi
Ég er með svo litlar hendur
Ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni
Fæturnir á mér eru svo stuttir
Farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir
Ekki slá á hendurnar á mér þegar
Ég snerti eitthvað fallegt
Ég skil það ekki
Horfðu á mig þegar ég tala við þig
Þá veit ég að þú ert að hlusta
Ég hef viðkvæmar tilfinningar
Ekki vera alltaf að skamma mig
Leyfðu mér að gera mistök
Án þess að mér finnist ég vitlaus
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna
Eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið
Elskaðu mig fyrir að reyna
Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera
Stundum skil ég ekki það sem þú segir
Ég elska þig svo mikið
Elskaðu mig bara fyrir að vera ég
Ekki fyrir eitthvað sem ég geri
Öll börn eru mikilvæg og líka ég. Öll börn eiga rétt á sínu eigin nafni. Ég heiti: Daníel Skíði Reykjalín. Ég á rétt á að vera með bæði mömmu og pabba. Enginn má slá mig eða stríða mér. Ég á rétt á að mér líði vel. Ég á rétt á að fá hjálp þegar mér líður illa. Ég á rétt á að segja hvað mér finnst. Ég á rétt á að leika mér. Ég á rétt á að fá að læra ótal margt í leikskólanum og í skólanum. Þú og ég og öll önnur börn eiga rétt á að fá að lifa við öryggi. Mundu að þú ert einstakur. Mundu að þú ert mikilvæg manneskja. Mundu að þú fékkst hæfileika þína til að nota þá. Mundu að þú getur gefið eitthvað sem aðrir geta ekki gefið. Mundu að þú hefur reynslu og innsæji sem aðrir hafa ekki. Mundu að þú getur verið stoltur af mörgum hæfileika þinna. Mundu að þú ert fær um ótal hluti. Mundu að umbera fólk sem er ólíkt þér. Mundu að einhver mun ætíð elska þig. Mundu að þú kannt eitthvað sem þú getur kennt öðrum.
Einkaréttur smábarna
Ef mér finnst það flott, þá á ég það
Ef ég held á því, þá á ég það
Ef ég næ því frá þér, þá á ég það
Ef ég var með það rétt áðan, þá á ég það
Ef ég á það, má það á engan hátt líta út fyrir að vera þitt
Ef ég er að byggja eitthvað, þá á ég alla kubbana
Ef það líkist dótinu mínu, þá á ég það
Drengur
Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá.
Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu, Viska með tyggigúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla. Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma. Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu, og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga þér. Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum -
"Halló mamma!"