

Daníel Skíði Reykjalín Ólafsson
Ég fæddist 22. apríl 2004 í Hreiðrinu á Landspítalanum klukkan 22:15. Ég vóg 3200 grömm og var 49 cm á lengd. Þegar ég fæddist var hárið mitt dökkbrúnt og augun dökkblágrá. Mamma mín heitir Dagný Reykjalín og er grafískur hönnuður, pabbi minn heitir Ólafur Helgi Rögnvaldsson og er tölvunarfræðingur. Þau eru bæði að norðan.
Sendu mér póst ef þú vilt
Þessi vefur þjónar tvennum tilgangi: Ég bý svo langt í burtu frá allri fjölskyldunni að hérna get ég sagt þeim og sýnt hvað ég er að bralla. Hann er líka góð heimild um mig og verður gaman að skoða þegar ég er orðinn eldri.
Flutningar
Þegar ég var rúmlega tveggja ára ákváðu mamma og pabbi að fara í skóla í Danmörku þannig að við seldum allt dótið okkar á Íslandi og fluttum til Árósa. Þar fór ég fyrst til dagpabba sem heitir Brian, svo til dagmömmu sem heitir Lissie og haustið 2007, þegar ég var 3. ára fór ég á leikskóla hérna í hverfinu sem heitir Græsvangen og er á deild sem heitir Solstrjålerne (sólargeislarnir).
Ég kunni nokkur orð á dönsku áður en ég flutti út: Hej, Sytte (snudda), Gynge (róla), rutsebane (rennibraut), Støvler (stígvél). Bestu vinir mínir heita Bastian, Nanna, Christoffer, Ástrós, Ilmur, Sóllilja, Magnús Máni, Ásgeir Rafn og Gunnar Andri. Áður en ég flutti heim kunni ég m.a. að telja upp í 30 á dönsku og var alveg fær í allt daglegt mál.
Þegar ég var rúmlega 4. ára og rétt áður en Emil bróðir fæddist, fluttum við "heim" til Akureyrar. Þar er ég á leikskólanum Pálmholti á deild sem heitir Sól. Bestu vinir mínir heita Ágúst Herner, Sóllilja, Ragnheiður, Elva Sól og Gunnar Valur.
Skírn
Ég var skírður þann 17. júní 2004. Nafnið mitt er Daníel Skíði Reykjalín Ólafsson. Daníel er nafn sem mamma og pabbi völdu af því þeim fannst það svo fallegt, Skíði er í höfuðið á Rögnvaldi Skíða afa mínum svo núna erum við tveir á landinu sem berum þetta flotta nafn. Reykjalín er svo í mömmu ætt.
Skírnin fór fram í Dalvíkurkirkju. Presturinn heitir sr. Magnús Gamalíel Gunnarsson. Skírnarvottar voru Sigga móður-móðursystir og Guðný föður-móðursystir.
Í skírnargjöf fékk ég: fullt af fallegum gjöfum.
Mataræði
Ég var á brjósti til 12 mánaða aldurs. Þá fékk ég allan venjulegan mat
Ég fékk ACD dropa frá 1 mánaða, AD dropa frá 2 mánaða. Krakkalýsi 6 mánaða
Ég fékk ábót við mjólkina í fyrsta sinn 5 mánaða (21 vikna), graut í fyrsta sinn þá. Ég fékk samt að smakka banana 4 mánaða.
Ég fór að borða fasta fæðu (kjöt, fisk, kartöflur, grænmeti) 6,5 mánaða gamall.
Ég fór að geta borðað sjálfur 8,5 mánaða, týni upp í mig mola. Byrjaði að borða sjálfur með skeið 17 mánaða.
Uppáhaldsmaturinn minn fyrsta árið er mömmumjólk -og eplamauk -og ostur -og allir heimsins ávextir!
Tanntaka
Fyrsta tönnin fannst þann 5. okt 2004. Hún fannst í neðri góm.
Í tannfé fékk ég: tannbursta og stóran koss frá mömmu og pabba.
2. tönnin fannst 11. okt 2004.
3. og 4. tönnin (framtennur í efri gómi) fannst 07. des 2004.
5. tönnin fannst 29. desember 2004. (uppi mín vinstra megin)
6. tönnin fannst 3. janúar 2005. (niðri hægra megin)
7. tönnin fannst 24. janúar 2005. (uppi hægra megin)
8. tönnin fannst 28. febrúar 2005. (niðri vinstra megin)
9. tönnin fannst 3. mars 2005.
10. tönnin fannst 12. júní 2005
Ég á 8 framtennur og þrjá jaxla (16. júlí)
Allar barnatennur eru komnar um 28 mán aldur
Tanntöku lauk __ mánaða.
Ég fékk flúortöflur 13 mánaða
Ég fór í fyrsta skipti til tannlæknis 4. desember 2006 í Danmörku, þá var ég 2,5 árs.
Tannlæknirinn bauð mér í heimsókn og sýndi mér staðinn sinn og gaf mér dót.


