Miðvikudagur 11. ágúst 2010
Emil (næstum 2 ára) segir "Gakka góu" þegar hann meinar "Takk fyrir mig (og verði þér að góðu)". Eitt sinn var hann að klára að borða og sagði "Gakka góu" og bjó sig undir að fara niður af stólnum. Mamman spurði hvort hann vildi ekki klára mjólkina úr glasinu fyrst og hann leit á glasið, sagði "Jú, ekki gakka góu" og kláraði mjólkina, sagði svo Gakka góu og fór sína leið. :)
Laugardagur 26. september 2009
"Þegar ég verð stór þá ætla ég að verða skipstjóri og Tristan ætlar að verða tannbursti!"
Sunnudagur 5. júlí 2009
Danni: hvaðan koma fjaðrirnar?
Mamma: þær koma af fuglum
Danni: og líka úr koddum!
Laugardagur 14. febrúar 2009
Áttu tvennt?
Danni er spilaóður, veiðimann er í miklu uppáhaldi en þá þarf að muna ný heiti á tölunum, t.d. þristur, fjarki osfr. og það getur verið svolítið erfitt,
Mánudagur 22. desember 2008
Danna finnst gaman að spila spil, til dæmis á hann Dómino spil með tölum og myndum sem er ákaflega gaman að raða saman. Um daginn sagði hann: "Eigum við að spila Dominos 5812345 ?" (eins og pizzastaðurinn sko!)
Það er svolítið horft á Latabæ á þessu heimili, og í byrjun einnar þáttaraðarinnar kemur tilkynning frá styrktaraðilanum Íslandsbanka: "Latibær og Íslandsbanki, hraustleg samvinna" nema Danni sagði einusinni: "Latibær og Íslandsbanki, hvurslags eiginlega!"
Þriðjudagur 16. desember 2008
Danni er mikið fyrir það að hoppa á öðrum fæti, en eitt sinn hoppaði hann upp jafnfætis og sagði: Svona stend ég á engum fæti
Þriðjudagur 25. nóvember 2008
Jólagarðurinn í Eyjafjarðarsveit er ofsalega krúttleg verslun, svo heimilisleg að þegar Danni kom þangað inn var það fyrsta sem hann gerði að klæða sig úr stígvélunum :)
Föstudagur 21. nóvember 2008
MMmmm.. góð lykt - svona stelpulykt
Danni kom inn á baðherbergi eftir að mamma hans var búin í sturtu
Mánudagur 13. október 2008
"Mig langar í fangelsi"
Sagði Danni þegar hann var að fletta playmo bækling.. meiningin var semsagt að eiga fangelsi en ekki fara í! ;)
Mánudagur 1. september 2008
Hálftíma eftir að Danni kom heim úr leikskólanum og hitti litla bróður sinn í nánast fyrsta skipti, spurði hann hvort hann mætti hvísla svolítið að litla bróður. Þegar hann fékk leyfi til þess beygði hann sig niður að honum og sagði: "Eigum við að leika?"
Þriðjudagur 8. júlí 2008
"Og núna get ég leikið mér með ekkert!"
Danni þegar hann kom inn í tómt herbergið sitt þegar við vorum að flytja.
Sunnudagur 22. júní 2008
Þegar ég kem á Hauganes, þá þarf ég ekki svona augndropa!
Danna er farið að hlakka til að komast heim :)
Sunnudagur 15. júní 2008
"Jeg eeeeelllllsker bare slik"
Sunnudagur 27. apríl 2008
"Einusinni sá ég krókódíl með veiðihár á Hauganesi!"
Pabbi var að þurrka mér eftir baðið (og veiðihárin mín líka auðvitað) og þá kom þetta eins og þruma úr heiðskýru...
Mánudagur 7. apríl 2008
"Ertu eitthvað þreyttur, elskan mín?"
Sagði ég við pabba þegar hann sat í eldhúsinu að læra.
Föstudagur 4. apríl 2008
Danni fékk bók í jólagjöf frá Kormáki og Furu sem er í miklu uppáhaldi. Hún heitir "Teljum dýr, 1-2 og 3". Þar eru ýmsar upplýsingar um íslensk dýr. Við erum búin að lesa hana svo oft að Danni man yfirleitt hvað stendur, svo þegar kom að músinni þá er hann beðinn um að botna þessa línu: Á Íslandi eru tvær tegundir músa, þær heita:
Danni: Hagamús og.... innimús!
Föstudagur 14. mars 2008
"Ég heiti Daníel Ólafsson Helgi..."
Hann fattaði um daginn hvað pabbi hans hét fullu nafni og þessu sló aðeins saman :)
Föstudagur 7. mars 2008
"Einusinni var ég í bumbunni, núna er ég bara Danni og á eftir ætla ég að vera missekat (kisa)"
Sunnudagur 24. febrúar 2008
dregur upp bolinn og bendir á bumbuna sína: "ég er líka með barn í maganum... og líka sjónvarp!"
Miðvikudagur 20. febrúar 2008
Eldsnemma að morgni:
Danni: "Mig langar í barbie dúkku..."
"og svona kerru..."
Mamma: "Barbie kerru?"
Danni: "Nei, handa Sturlu, svona Sturluvagn"
(Sturla er sko gamla dúkkan hennar mömmu sem ég leik mér með núna, en Barbie dúkkurnar eru vinsælar á leikskólanum þessa dagana, sérstaklega að smella saman og hneppa fötunum)
Þriðjudagur 19. febrúar 2008
"Ég ætla að búa í makdonands"
Danni er ennþá að ákveða hvar hann ætlar að búa, fyrst hann veit að við erum að fara að flytja bráðum. MacDonalds er á horninu hjá okkur og hann er einusinni búinn að fara þar inn fyrir löngu síðan en ákvað samt um daginn að það væri bara allt í lagi að búa þar, frekar en í Barcelona.
Miðvikudagur 6. febrúar 2008
Dansk/íslenskan hans Danna:
"Bubbimann byggir" (blanda af Bubbi byggir og Byggemand Bob)
"Ég get ekki líað þetta" (jeg kan ikke lide det - yfirleitt þegar það er kvöldmatur!)
"Viltu merkja þetta?" (vil du mærke det -- þýðir: viltu finna? t.d. hvað þetta er mjúkt)
"Ég ætla að henta minn bolta" (jeg skal hente min bolde - sækja boltann minn)
Miðvikudagur 9. janúar 2008
Hver ætlar að skutla mér í leikskólann?
Ég vaknaði klukkan 06:00 í morgun þannig að uppúr átta var ég orðinn nokkuð óþreyjufullur að komast af stað...
Mánudagur 7. janúar 2008
"Hver sefur þarna?" spurði ég þegar ég sá vagninn hennar Bergdísar úti á svölum í morgun, mamma sagði að Bergdís (vinkona mín og nágranni) svæfi þarna.
Eftir smá umhugsun sagði ég svo:
"En ég svaf inni í rúminu mínu!" - mamma leiðrétti mig svo og sagði að auðvitað hefði Bergdís ekki sofið úti í nótt, heldur í rúminu sínu :)
Baddý á að vera heima hjá mér!
Vorum að skoða myndir eftir heimsóknina og þá komu fram þessi saknaðarorð.
Miðvikudagur 26. desember 2007
Ég fékk bók um meltinguna frá Baddý og Hönnu í jólagjöf, hún fjallar semsagt um það hvernig maturinn ferðast inn um eitt gat og út um hitt... mér finnst hún algjör snilld og hlæ mig máttlausann þegar henni er flett, sérstaklega síðustu blaðsíðurnar þegar komið er að ferðalokum, þá segi ég alltaf: "Má segja "Kúk"?" - því yfirleitt er það bannað að slengja því svona fram en mér finnst frábært að það sé til bók sem leyfir manni að segja það ;)
Fimmtudagur 29. nóvember 2007
Einhverntíman fyrir löngu var Danni að henda einhverju eða sparka í vegginn og þá sagði ég honum að hann mætti það ekki, því kallinn sem á húsið vildi ekki að það myndi skemmast. Síðan þá hefur hann spurt öðru hverju út í það hver eigi þetta hús...
Danni: Hver á þetta hús?
Mamma: Það er kall niðri í Horsens og hann leyfir okkur að vera hérna eins lengi og við viljum, en svo kaupum við okkur kannski hús þegar við flytjum til Íslands.
Danni: með garði?.. og hliði!..
Mamma: jájá
Danni: Ég ætla að búa í Barcelona!
Alltaf endar þetta á þessu.. hann ætlar að búa í Barcelona, greinilega svona rosalega heillaður ennþá af borginni síðan í sumar!
Laugardagur 24. nóvember 2007
Þegar við vorum í Flensburg um daginn sá ég nokkra pönkara og einn var með rosalega flottan hanakamb, rauðan og grænan og rakað hárið á hliðunum, þegar ég sá hann æpti ég af kátínu: HANI !! Mamma mátti hafa sig alla við að grípa hendurnar mínar áður en ég benti á hann, því það hefði örugglega ekki fallið í góðan jarðveg.
Síðan þá hefur verið mjög vinsælt hjá mér að moka hárinu á mér (eða mömmu) í miðjuna á kollinum og góla; "gguggulugúúú!!"
Fimmtudagur 15. nóvember 2007
Danni vill alltaf hafa einhvern með í leiknum svo oftar en ekki þegar mamma og pabbi eru upptekin annarsstaðar þá þarf að ná í þau:
Danni: "Mamma, þú átt að leika!!"
mamma: "æji, þú átt að biðja fallega.."
Danni: "Elsku mamma, þú átt að leika!"
Miðvikudagur 7. nóvember 2007
í leik inni í herbergi
Danni: (uppúr þurru) elskar þú mig?
mamma: já.. auðvitað..
Danni: ég elska þig líka!
Veit ekki alveg hvaðan umræðuefnið kom, hann var nýkominn heim úr leikskólanum og kannski liggur ástin í loftinu þar...
ísl/danskan hans Danna:
Á ég að vísa þér? = á ég að sýna þér
Eigum við að leika í mitt hús? = í húsinu mínu
Einn annan dag = seinna
Mánudagur 29. október 2007
Danni: sérðu hvað ég er duglegur að fara í kollhnís
Mamma: já, ekkert smá!
Danni: jú víst smá!!
Danni skilur ekki alveg hugtakið "ekkert smá" sem mamman notar oft, hann heldur að það þýði "ekki neitt" eða eitthvað í þá áttina.
Fimmtudagur 18. október 2007
"Þú slökktir mig inni!"
Mamma slökkti ljósið á meðan ég var ennþá inni á baðherberginu, ég móðgaðist sárt við það!
Þriðjudagur 2. október 2007
"Ég elska þennan staf!"
Ég er svo hrifinn af stafnum mínum, við pabbi vorum að púsla stafrófspúsluna mína og þá benti ég á minn staf og sagði þetta..
Föstudagur 28. september 2007
"Þetta er litla barnið mitt!"
Danni sagði þetta þegar hann benti á mynd af sér síðan hann var nýfæddur. Bastian á nefnilega lítinn bróður og svo eru Palli og Lára að fara að eignast "lítið barn". Það er ágætt að hans er bara á mynd :)
Föstudagur 3. ágúst 2007
Det er så meget sjov, at pisse i en sko...
Þetta er lag úr einni auglýsingu sem er í gangi í sjónvarpinu en Danni bætti við smá pissubrandara húmor inn í lagið.. upprunalega er það svona: "Det er så fuld af sjov, inde i en skov". Auglýsinguna má sjá hérna
viltu sitja hjá mér lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi lengi og svo fara
á kvöldin eftir að við erum búin að lesa tvær bækur vil ég hafa smá félagsskap þangað til ég sofna
Ég er bara með tvær hendur
Ég var að borða nestið mitt, hélt á samloku og líka á kexi og mamma sagði mér að drekka líka úr glasinu, þá leit ég niður og svo á hana og sagði þetta...
Laugardagur 23. júní 2007
"Undskyld, ég ætlaði ikke gøre den der"
Danni segir alltaf "fyrirgefðu ég ætlaði ekki að gera þetta" þegar honum verður á í messunni, svo þegar hann og Bastian lentu eitthvað saman þá kom þetta frá honum. Bastian náði þessu alveg og það var fyrirgefið ;)
Fimmtudagur 14. júní 2007
Ripp, Rapp og Rupp... eins og prump
Rímarinn enn og aftur
Í einni flugferðinni var mamma að útskýra fyrir mér að við værum að fara að lenda, varð ég svolítið áhyggjufullur, hugsaði smá og spurði svo: Er flugvélin með dekk?
Þegar ég fékk já við þeirri spurningu var mér nokkuð létt.
Laugardagur 14. apríl 2007
"Þetta er morfars bíll"
Þegar við vorum í bílnum um daginn sá Danni sendibíl sem að var alveg eins og vinnubíllinn hans Pers en hann er maðurinn hennar Lissie dagmömmu. Marc barnabarn hennar talar alltaf um morfars bíl þegar hann kemur heim úr vinnunni.
kubba, eins og gubba?
Þetta er eitt dæmið um rím sem að Danni finnur upp þessa dagana.
Föstudagur 30. mars 2007
"mamma, þú getur þetta!"
mamma hans var eitthvað að kvarta yfir mótvindi á hjólinu heim, þá komu hvatningarorð úr aftursætinu.
Föstudagur 23. mars 2007
"Alveg sjálfsagt"
Nú er það ekki lengur "já" þegar ég er beðinn um að gera eitthvað, heldur er það "alveg sjálfsagt".
Fimmtudagur 8. mars 2007
"Má ég fá støvler på ?"
Danskan er svona smám saman að læðast inn hjá drengnum
Fimmtudagur 1. mars 2007
"Danni: Ég vill ekki franskar!
Mamma: viltu papriku?
Danni: já takk"
Við vorum að borða hamborgara og franskar en Danni vildi frekar bara grænmetið sitt, sannur íþróttaálfur.
Mánudagur 12. febrúar 2007
"Ó hve létt er þitt skóhorn.."
Danni að syngja Maístjörnuna
Fimmtudagur 1. febrúar 2007
"Er þetta gott fyrir börn?"
spurði ég pabba þegar ég tók rúsínu úr múslíinu hans einn morguninn, en hann var búinn að segja að múslíið væri ekki gott fyrir börn.
Þriðjudagur 30. janúar 2007
"Er þetta nokkuð selur?"
Danni sagði þetta þegar hann leit á afraksturinn sinn í koppnum. Svo sagði hann aðeins seinna við sjálfan sig: "Danni kúkaði smá selakúk".. mömmu fannst það frekar fyndið,
Sunnudagur 28. janúar 2007
"Þumalputtinn á að fara í húsið sitt"
Þetta segir Danni alltaf þegar hann er klæddur í vettlingana sína :)
Fimmtudagur 25. janúar 2007
"SPIS !"
Hann Bastian vinur minn er alltaf mjög lengi að borða og einhverntíman vorum við að bíða eftir að hann kláraði rúgbrauðið sitt, þá sagði ég þetta við hann.
Miðvikudagur 24. janúar 2007
"Illt í rúminu hans Danna"
Danni fær stundum að lúra í mömmu og pabba rúmi ef hann er lasinn, um daginn vildi hann lúra þar þó hann væri ekkert lasinn en þá var honum bara illt í rúminu.


