Barnamatur

Mér finnst afskaplega gaman að búa til barnamat og kynna nýjar bragðtegundir fyrir óreyndum bragðlaukum. Ég hef verið heppin með hvað Emil tekur vel í allt sem ég hef eldað handa honum, en stundum tekur það á að finna upp á einhverju nýju.
Ég ætla að safna saman helstu uppskriftunum sem ég hef ýmist kokkað saman sjálf eða fundið í bókum eða á netinu. Ég reyni auðvitað að setja inn heimildir og tengla eins og ég get. Ábendingar eru líka vel þegnar :)

--

Epli og perur með rúsínum og kanil

1 sætt epli, skorið í bita
1 vel þroskuð pera, skorin í bita
1 msk rúsínur
1 msk hreinn eplasafi
kanill á hnífsoddi

Setjið hráefnið í pott og sjóðið við vægan hita í ca 5 mín, maukið með sprota og kælið.

- Flokkað sem: 6-9 mánaða (2 færslur) / barnamatur (2 færslur) --

Avocado og bananar

1/2 Avocado, mjúkt
1/2 Banani

Það er mjög gott að mauka saman vel þroskað og mjúkt avocado og góðan banana. Helst bara hálft af hvoru því það geymist ekki vel (dökknar fljótt þegar það kemst í snertingu við súrefni) og er ekki hægt að frysta.
En maukið verður bragðgott og flauelsmjúkt, svolítið létt og loftkennt en alveg ótrúlega hollt.

- Flokkað sem: 6-9 mánaða (2 færslur) / barnamatur (2 færslur)
© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34