Daníel & Emil

Var að lýsa því fyrir Danna að einu sinni voru allir símar með snúrum og ekki tökkum heldur skífum til að snúa.. hans svar var: Já ég veit, ég hef séð það ... í Flintstones..

"Við ætlum að fara og kaupa pening!" sagði Emil eftir að Hanna frænka sagðist ætla að finna hraðbanka.

Emil Ragnar tölvusjúki..
Litli næstum 3 ára gaurinn Emil sagði í dag.. "Mamma, þú átt að spyrja mig núna", ég sagði, nú hvað? Svo hvíslaði hann: "Þú átt að spurja mig: hvort viltu fara í tölvuna eða ipaddinn?"

Lok feb: Við vorum að borða inni í nýju stofunni, buðum Sædísi, Sóllilju og Hauki í lambalæri. Emil var búinn að borða af diskinum sínum og pabbinn spurði Emil hvort hann vildi meira lambakjöt. Emil horfði á hann með undrunarsvip og pabbinn spurði aftur. Þá sneri Emil sér við í stólnum, benti út í horn og sagði: "það er þarna!" Það tók okkur smá stund að fatta að hann var að benda á lampann í horninu,.. hann heyrði semsagt "lampakjöt" :)

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla! :) Byrjum á því að lýsa frati yfir uppfærsluleti móðurinnar, hún er greinilega alveg að missa það. Búin að vera upptekin í nýja fyrirtækinu sínu og flutt út af heimilinu með skrifstofuna.

Jólin voru alveg frábær, góð afslöppun og frábært að sjá framan í alla fjölskylduna. Við fórum á litlu jólin hjá 1. bekk sem voru mjög fín, litlu jólin í leikskólanum voru líka skemmtileg nema að Emil vildi ALLS EKKI dansa í kringum jólatréð, sveinki var bara OF mikið, jafnvel þó hann hafi alveg tekið við epli frá honum. Við héldum okkur bara til hlés.

Við vorum hjá ömmu og afa á Dalvík á aðfangadag í algjörum notalegheitum, borðuðum rjúpu á þrjá vegu og drengirnir skemmtu sér afskaplega vel.

Á annan í jólum fórum við með jólamatinn út á Karlsá eins og alltaf, mikið er alltaf gott að vera þar. Fórum með fullt af útidóti og renndum okkur, Danni á nýja sleðanum sem hann fékk í jólagjöf.

Á gamlársdag vorum við á Hauganesi í miklu sprengjuregni. Þessir drengir okkar eru hreint ekki að æsa sig yfir hlutunum og við forðuðum okkur frá mestu flugeldunum og horfðum á þá úr fjarlægð, með stjörnuljós, það var ágætt. Við fórum svo á nýársdag til Dalvíkur og hittum Húsavíkurfamilíuna við mikinn fögnuð drengjanna.

Danni er óðum að missa allar barnatennurnar, tönn nr 3 var tekin í hádeginu á jóladag, bara sísvona. Önnur framtönnin fór svo núna fyrsta skóladaginn eftir jólafrí. :)

Emil er kominn með Leiftur McQueen alveg á heilann, kemst fátt annað að. Bróðir hans gaf honum disk í jólagjöf með ýkjusögum Króks og það var alveg toppurinn. Danni var hins vegar ástfanginn af Ben 10 gjöfunum sínum og kyssti alla pakka sem Ben10 kom upp úr :)

Næsta mál á dagskrá er að pakka niður dótinu okkar því við fáum nýju íbúðina okkar um næstu mánaðarmót, og öllum hlakkar mikið til :) Sem betur fer er ekki langt að fara en samt ýmislegt sem þarf að huga að.

Hreinlega agalegt þessi skrifleti hérna inni, núna þegar eitthvað nýtt gerist á hverjum degi.

Emil er orðinn 2 ára, átti afmæli 31. ágúst. Hann er algjör hjartaknúsari, bræðir hjörtu með sínum sólargylltu lokkum og prakkaralegu brosi og veit alveg hvað hann vill. Nánast orðinn altalandi og veigrar sér ekkert við að flytja langar ræður. Bróðir hans er algjör hetja í hans augum og helsta fyrirmynd í lífinu, tja fyrir utan íþróttaálfinn. Emil er búinn að vera íþróttaálfs- og latabæjarsjúkur síðan rétt eftir eins árs afmælið eða þegar hann fór að labba.

Hann byrjaði í leikskóla rétt rúmri viku fyrir 2. afmælisdaginn. Aðlögunin gekk alveg frábærlega vel, fannst meiriháttar að vera innan um alla þessa krakka og þetta dót, ekkert mál að taka lúr og gaman að leika úti. Eftir aðlögunina kom smá bakslag sem við erum að vinna úr og er ekkert alvarlegt, bara svolítið erfitt fyrir mömmuhjartað að yfirgefa grát en betra þegar hún heyrir að það er bara rétt á meðan hún segir bless og lokar dyrunum. Það er nú líka ágætt að finna að manns er saknað.

Danni byrjaði í skólanum þann 23. ágúst líka. Eins og sennilega alþjóð veit, en Freyja vinkona okkar sem vinnur hjá RÚV vantaði einhvern til að tala við fyrir frétt sem hún var að gera um fyrsta skóladaginn. Danni var náttúrulega eins og hetja og lét sér fátt um finnast með öll þessi læti. Mamma hans var með aðeins meiri hnút í maganum en bæði sluppu held ég bara ágætlega frá þessari stuttu klippu. Það sem kom meira á óvart voru viðbrögðin frá fólki í kringum okkur en síminn var rauðglóandi, facebook alveg á milljón og fengum póst úr öllum áttum, m.a. frá skólastjóranum í Lundarskóla.

Fyrir þá sem ekki sáu þá er klippan úr fréttunum hérna. (Annaðhvort smella og horfa eða hægrismella og sækja).

Það gengur líka mjög vel í skólanum. Danni er alveg orðinn læs og kláraði fyrstu lestrarbókina á einni viku. Við höfum ekkert verið sérstaklega að æfa lesturinn samt, eftir að hann varð svona flinkur í því legg ég meira upp úr að hann skilji það sem hann er að lesa og spyr hann einfaldra spurninga úr textanum á hverri síðu eftir að hann er búinn að lesa eða ég búin að lesa fyrir hann. Hann á það svolítið til að láta hugann bara reika eitthvert út í buskann, en er orðinn mun betri í því að fylgjast með söguþræðinum. Við höfum líka stundum leikið þann leik að hann les síðuna og spyr mig síðan, það er líka góð æfing að finna og búa til spurningu, og svo svarar mamman á einhvern ferlega vitlausan hátt.. sem sýnir að maður má alveg vera klaufi og maður á að giska þó það sé ekki endilega rétt - hann hefur nefnilega verið svolítið gjarn á að svara öllu með "veit ekki" frekar en að láta bara vaða.

Í mars fór Danni til talþjálfara til að reyna að ná R-hljóðinu upp úr kokinu. Hann var með fullkomið danskt kartöflu-ERR og núna í september útskrifaðist hann, kominn með þetta frábæra íslenska R hljóð og algjörlega meðvitaður um það hvernig á að nota það. Þetta var mikill sigur og mikill lærdómur að fara í tíma til Valdísar bæði uppá hljóðið en ekki síður fyrir samskiptin og sjálfstraustið sem hann öðlaðist þar.

Emil (næstum 2 ára) segir "Gakka góu" þegar hann meinar "Takk fyrir mig (og verði þér að góðu)". Eitt sinn var hann að klára að borða og sagði "Gakka góu" og bjó sig undir að fara niður af stólnum. Mamman spurði hvort hann vildi ekki klára mjólkina úr glasinu fyrst og hann leit á glasið, sagði "Jú, ekki gakka góu" og kláraði mjólkina, sagði svo Gakka góu og fór sína leið. :)

Við skulduðum alveg helling af myndum svo við erum búin að bæta aðeins úr því.  Annars er allt gott að frétta, allir hressir og kátir. Síðasta fimleikaæfingin á þessum vetri var í dag hjá Danna. Hann er búinn að vera tvo vetur í fimleikum og finnst það yfirleitt gaman. Stundum hefur verið svolítið erfitt að hlaupa svona mikið og gera allskonar æfingar og þá hafa sumir freistast til að fara bara í fýlu og ekki viljað meira, en alltaf verið sáttur samt. Hann hefur tekið miklum framförum á þessum tíma, bæði líkamlega og ekki síður félagslega - þarf að hlusta og fylgja fyrirmælum og þannig. Við ætlum að vera áfram næsta vetur en það er viðbúið að fimleikarnir verði svolítið meira krefjandi á næsta ári.

Emil ætlar hins vegar ekki að vera fimleikadrengur, hann ætlar að verða boltastrákur. Hann er heillaður af körfum og körfuboltum. Í fyrrasumar þegar hann var varla orðinn eins árs gat hann tekið upp bolta í öðrum enda garðsins, haldið á honum á meðan við lyftum honum upp að körfunni - og sleppt henni ofan í körfuna. Núna vill hann helst fara út á körfuboltavöllinn við Lundarskóla og það fyrsta sem hann segir þegar hann vaknar úr vagninum, ef hann heyrir í krökkunum í körfu úti á velli, þá er það bara "karfa!!" sem ómar í hlustunargræjunni. Þetta er ekkert eðlilegt. Næsta mál á dagskrá er að lækka körfuna í garðinum þannig að hann nái upp í hana sjálfur, það er flott æfing að rölta í grasinu á eftir boltanum og henda ofaní.

Um daginn eignuðumst við nýjan hamstur. Þessi er loðhamstur sem hefur fengið nafnið Diego. Hann var bara lítill ungi þegar hann kom en hefur stækkað ótrúlega mikið. Hann er mikill gleðigjafi en fer því miður ekki á stjá fyrr en eftir kvöldmat, við þurfum eitthvað að reyna að snúa sólarhringnum við hjá honum.

Sumarið er framundan og Danni útskrifast fljótlega úr leikskólanum og fer í Lundarskóla í haust. Það er alveg merkilegt hvað tíminn líður. Hann er reyndar mjög vel undirbúinn og er orðinn fluglæs, guðmóðir hans og barnakennarinn segir að hann lesi um 120 atkvæði á mínútu sem er á við meðaltal í 2-3. bekk. Hann er líka farinn að lesa dagblöðin með okkur á morgnana.. á hvolfi! Ótrúlega magnað hjá honum.

Emil fer svo í leikskóla í haust, byrjar á Pálmholti eftir miðjan ágúst. Við verðum því í fríi allan júlí og mestallan ágúst, allavega strákarnir og mamman - pabbinn á eftir að raða sínu fríi en ætli hann verði ekki mikið í júlí líka. Við þurfum bara að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera, allavega rúnta svolítið um landið á nýja fína bílnum okkar. Við endurnýjuðum bílaflotann (ef einn bíll getur talist floti..) um páskana, Avensisinn sem hefur þjónað okkur svo vel alveg síðan Danni fæddist og úti í Danmörku líka, fékk að víkja um páskana fyrir fínum Santa Fe, lúxus útgáfunni m.a.s.. rosa flottur.

Biðjum að heilsa, komum fljótt aftur :)

"Ekki sofa, syngja meira" var það sem Emil sagði í gær þegar hann var orðinn þreyttur. Hann er orðinn ótrúlega skýr og með mikinn orðaforða, er heldur ekkert að veigra sér við að endurtaka orðin sem við segjum og nær þeim mjög vel. Honum finnst fátt skemmtilegra en að leika inni í herberginu hans Danna og getur setið þar og dundað sér heillengi, sérstaklega ef við setjum einhverja tónlist á. Hann biður líka ævinlega um óskalag, segir "ýta á takka" og frussar .. og það þýðir að hann vill hlusta á prumpulagið ;)

Gleðilega páska!

Hér hefur ekki mikið verið ritað en margt gerst, Emil er farinn að spretta úr spori. Daginn sem hann ákvað að fara að labba sjálfur gekk hann út á mitt stofugólfið og sneri sér í hringi.. hann var svo glaður að losna undan þessum álögum að þurfa alltaf að biðja um putta til að halda í. Hann er líka farinn að tala ótrúlega mikið, segir auðvitað pabbi og amma og afi, Emil, Tumi (tígur), bað, nemo (segir reyndar: númi), inn (þýðir út), upp (en meinar niður) og svona tínast orðin og merkingarnar inn.

Danni er í stöðugri leit að "R"-inu sínu sem hann hefur ekki fundið síðan í Danmörku, fallega danska r-ið hans fellur ekki beint vel í kerfinu svo við förum 1x í viku til Valdísar talkennara, hún og Danni eru orðnir hinir mestu mátar enda á hún svo mikið af flottu og óvenjulegu dóti.

Danni er búinn að uppgötva Playstation II tölvuna á heimilinu eftir að hann fékk leikinn með fiskinum Nemó. Það er margt að varast í sjávardjúpunum og smám saman hugast hann við að berjast við sæskrýmslin.. og reynir að sjá húmorinn í þessu líka. Hann er t.d. búinn að finna krabba með beittar klær og var mjög smeykur við, þar til hann sá að hann var með bleiu! ;) Svo var þar hákarl sem urraði eins og ljón - tilvalið að kalla hann sæljón!

Páskarnir eru búnir að vera mjög ánægjulegir og afslappandi, Emil tók reyndar sérstaklega langa helgi þar sem hann var veikur frá föstudeginum áður. Bæði kvefpest að hrjá hann og fæðuofnæmi. Hann er orðinn góður núna en við eigum tíma á spítalanum á fimmtudaginn þar sem hann fer í allsherjar ofnæmispróf. Hann hefur sýnt viðbrögð sérstaklega við fiski og hugsanlega fleiru, hann er með þrálátt barnaexem sem versnar sérstaklega þegar hann fær fisk og þá er alveg sama hvort það er þorskur, ýsa, lax eða rækjur. Öðrum afanum finnst þetta náttúrulega alveg óskaplega sorglegt en hinn væri sennilega alveg til í að skipta við hann til að hafa afsökun fyrir því að þurfa ekki að borða fisk ;)

En það kemur í ljós í vikunni og það verður langþráð staðfesting, sérstaklega að finna hvaða efni þetta er sem hann er með ofnæmi fyrir, hvar annarsstaðar það er að finna og hvernig má gera það svolítið bærilegra.

En við erum búin að nota páskana til að hitta fjölskylduna, áttum skemmtilegan útivistardag á Karlsá þar sem Danni prófaði bretti nafna síns á Grenó og stóð sig rosalega vel, vorum líka á þotu, skíðum, stiga sleða, snjósleða og fjórhjóli. Rosa gaman. Í dag vorum við svo í afmæli hjá Baddý frænku og ætlum að kíkja í 1 árs afmæli til Hartmanns á morgun. Nóg að gera, þannig á það líka að vera :)

Emil tekur stór stökk þessa dagana. Hann er loksins farinn að labba meira en aðeins meðfram og milli okkar, búinn að vera mjög varkár og samt ekkert dottið alvarlega. Hann tekur stigann í nefið, eldsnöggur upp, og er orðinn góður í að fara afturábak niður. Þetta labba-á-milli skeið er búið að standa yfir mááánuðum saman og loksins eitthvað nýtt að gerast í því. Sumir verða bara að taka hlutina á sínum hraða.

Emil er líka kominn með fullt af orðum; mamma, Danni, Klængur (duuduu..) -pabbinn er ekki alveg sáttur með að hann neitar að segja Pabbi.. svo er auðvitað Bangsimon (biddi - mikill aðdáandi!) Dudda, nammi, kaka og ís (sem er "sí") Sælkeri hér á ferð :)

Hann er með gríðarlega mikinn áhuga á kaffivélinni og þvottavélinni og segir "tssss" við þær báðar (vatnshljóðið). Það er alveg hægt að fá hann til að taka bæði úr þvottavélinni og þurrkaranum og setja í, hann er mjög liðtækur við húsverkin og vill endilega vera með í öllu ;)

Emil er líka mikill sjónvarpsglápari, bróðir hans horfir reyndar ekki mikið en sá stutti vill alltaf vera með í því og vill stundum helst borða morgunmatinn inni í stofu um helgar eins og sá stóri.

Það eru búnir að vera fallegir vetrardagar undanfarið. Á öskudaginn fór Danni í spiderman búningnum sínum í leikskólann og María dagmamma var í fríi þannig að við Emil vorum heima. Við ákváðum eftir morgunmatinn að rölta út og hitta Danna með leikskólahópnum sínum þegar þau kæmu í bakaríið, svo við fórum í bangsabúninginn og settum upp veiðihárin. Það var mjög gaman að hitta sólarbörnin í fullum skrúða og þau "sungu svo vel að maður fékk tár í augun" -eins og Danni spurði mig um á eftir ;)

Svo fórum við Emil niður í bæ og löbbuðum aðeins um, hann hefur kannski ekki labbað mikið í snjónum og á klaka en þegar hann fékk að prófa það, að labba í svona klakabraki skellti hann algjörlega uppúr, hló svo innilega að hann ætlaði ekki að geta staðið.. það var svo fyndið að heyra brakið í skónum :))

Núna þegar hann nálgast 18 mánuðina er hann kominn með 10 tennur, þar af 3 jaxla. Þær hafa tekið þokkalega vel á og mikill munur fyrir hann (tja já og okkur!) að erfiðasti hjallinn er yfirstiginn.

Við ætlum nú að reyna að vera aðeins duglegri við að skrifa hérna niður, bara út af því hvað það er gaman að fletta í gegnum þetta síðar, en endilega skrifið í gestabókina ef þið eigið leið hingað inn :) -takk :)

Gleðilegt nýtt ár :) Hér er allt að verða komið í réttan gír eftir frábær jól og áramót. Drengirnir fengu sæg af fallegum gjöfum sem við þökkum kærlega fyrir. Við vorum hjá ömmu og afa á Hauganesi á aðfangadag. Það var yndislegt, þar voru líka Baddý og Gunnar og litli strákurinn sem hefur fengið nafnið Ragnar Númi, sem og Raggi, Sandra og Embla Lind. Þannig að það var kátt í kotinu en samt alveg yndislega rólegt og notalegt. Á jóladag skruppum við svo til Dalvíkur og vorum fram á annan í jólum þegar við fórum með fullan bíl aftur heim til Akureyrar. Á gamlársdag fórum við svo í rosalegt matarboð hjá ömmu og afa á Dalvík, þar voru um 25 manns í góðum gír, frábært skaup og slatti af flugeldum fengu að fuðra upp. Danni og Lára voru saman úti, í kuldagallanum með lambhúshettu og hlífðargleraugu, passlega smeyk við þetta en fannst þetta samt svo flott. Emil Ragnar og Hildur Gauja fengu líka að vera inni og horfa á herlegheitin út um gluggann. Emil var orðinn frekar þreyttur svona um 11-leytið en svo lifnaði yfir honum og hann entist alveg vel framyfir miðnætti. Við sváfum líka vel á nýársmorgun og yndislegt og afslappað jólafrí var á enda.

Í byrjun janúar fengum við líka góða gesti í heimsókn, Óli og Eva komu í mat og við elduðum handa þeim hreindýr með súkkulaðisósu úr Súkkulaðibókinni góðu frá NS. Frábær matur.

Danni tók upp á því nánast í jólafríinu að byrja að lesa. Hann er núna óstöðvandi lestrarhestur og fer í gegnum nokkrar bækur fyrir svefninn, hann les líka ljóðin á mjólkurfernunum á morgnana og svo rímar hann og stafar orð daginn út og inn. Hann er búinn að ná ótrúlegum lestrarhraða á stuttum tíma. Virkilega duglegur og áhugasamur.

Emil er líka mjög áhugasamur með það að labba út um allt en vill hafa félagsskap á göngunni, treystir sér ekki í að sleppa puttanum. Hann reyndar labbar alveg 10-15 skref á milli manna eða milli veggja en það þarf aðeins að bæta sjálfstraustið og það gengur líka betur þegar hann er í góðum skóm. Núna í fyrradag tók hann svo upp á því að fara að skríða, kannski alveg kominn tími til enda rúmlega 16 mánaða :) Hann hefur farið út um allt skoppandi á rassinum og gengið bara mjög vel með það. Svolítið fyndið þegar hann skríður því hann spólar frekar mikið á hnjánum :)

Um helgina varð svo sorgaratburður í fjölskyldunni þegar Píla, hundurinn þeirra ömmu og afa á Hauganesi, varð fyrir slysi og dó. Hún var orðin 16 ára gömul og því búin að fylgja okkur í langan tíma, yndislegur hundur. Við kvöddum hana í kyrrð og minnumst alveg frábærs félaga sem var alltaf hægt að stóla á.

Jæja kominn desember. Hérna gengur allt sinn vanagang, nema Emil.. honum finnst gangur vera of mikið hættuspil og er mjög varkár við að fara af stað. Við tókum meira að segja jólagjöfina hans upp fyrir tímann, sem er vagn til að ganga með og æfa sig. Hann gengur nokkur skref á milli okkar og finnst það svo gaman að hann vill helst hlaupa og þá fer hugurinn svolítið hraðar en neðri hlutinn ræður við :) Hann er nú að verða 16 mánaða svo þetta er alveg löngu tímabært, en hann er afskaplega varkár, og það er nú kannski ekki hægt að kvarta undan því.

Um daginn, nánar tiltekið 8. desember kom Danni heim úr leikskólanum með eina framtönn í bréfi, hún var búin að vera laus í nokkra daga og hann sagðist bara hafa "tekið hana" :) Sama kvöld kom í ljós að Emil er kominn með fyrsta jaxlinn (þannig að það má segja að tannafjöldinn á heimilinu sé enn sá sami).

Emil líður líka vel hjá dagmömmunni, Maríu. Hún á hund sem er í miklu uppáhaldi hjá Emil og hann hermir iðulega eftir henni Perlu þegar hún tekur á móti okkur á morgnana. Um daginn, 9. des, fórum við á jólaball með dagforeldrafélaginu og þar kom jólasveinninn sem Emil er að kynnast í fyrsta skipti. Honum leist nú ekkert á hann samt og fannst betra að hann væri sem lengst í burtu, það var því svolítið erfitt að taka við pakka úr höndunum á honum en það tókst og enginn skaði skeður, nema pínu á sálinni. Þessir karlar geta nefnilega verið svolítið fyrirferðamiklir.

En það eru frábærir dagar framundan, jólin í næstu viku og allt að verða klárt á þessu heimili. Litli snáði ætlar að vera í fríi frá 18 des og fram á nýár og leikskólastrákurinn sennilega eitthvað svipað.

Það er nú ekkert allt of oft sem eitthvað er hripað hérna niður, því er nú verr.  Emil tekur hvert þroskastökkið af öðru, orðinn 13 mánaða, er kominn með 5 tennur (þrjár uppi og sú fjórða á leiðinni, og tvær niðri og ekki langt í þær sínuhvoru megin við framtennurnar), hann neitar reyndar alfarið að skríða en hossar sér áfram á rassinum og vill helst af öllu labba með okkur. Hann er orðinn mjög góður í að halda bara með annarri hendi og í uppáhaldi er að skoða þvottavélina ef hún er í gangi, eða espressovélina. Tækjakarl greinilega :)

Ef honum finnst eitthvað mjög merkilegt þá bendir hann og segir: seððu, sem við höldum að sé "sérðu". Allar manneskjur eru ennþá mamma, meira að segja hann sjálfur :)

Í gær fór pabbinn í vinnuferð til Noregs og verður fram á fimmtudag. Það gengur sem betur fer mjög vel að koma þeim bræðrum í bólið, engar mótbárur og eru venjulega sofnaðir báðir fyrir hálf níu. Í gær sofnaði Emil reyndar uppúr sjö, var mjög þreyttur. Hann vaknaði svo um hálf sex í morgun og fékk að koma uppí. Skömmu síðar kom stóri bróðir hans líka og þá var ekki aftur snúið, þeir grínast og hlæja og eru í þvílíku stuði. Við vorum semsagt búin að baða okkur og borða morgunmat klukkan hálf átta, og þá varð sá stutti dauðþreyttur aftur og fékk að leggja sig í vagninum til klukkan átta. Við Danni löbbuðum svo með Emil til dagmömmunnar sem er bara í næstu götu, og fór Danni í leikskólann.

"Þegar ég verð stór þá ætla ég að verða skipstjóri og Tristan ætlar að verða tannbursti!"