Emil (næstum 2 ára) segir "Gakka góu" þegar hann meinar "Takk fyrir mig (og verði þér að góðu)". Eitt sinn var hann að klára að borða og sagði "Gakka góu" og bjó sig undir að fara niður af stólnum. Mamman spurði hvort hann vildi ekki klára mjólkina úr glasinu fyrst og hann leit á glasið, sagði "Jú, ekki gakka góu" og kláraði mjólkina, sagði svo Gakka góu og fór sína leið. :)


