"Ekki sofa, syngja meira" var það sem Emil sagði í gær þegar hann var orðinn þreyttur. Hann er orðinn ótrúlega skýr og með mikinn orðaforða, er heldur ekkert að veigra sér við að endurtaka orðin sem við segjum og nær þeim mjög vel. Honum finnst fátt skemmtilegra en að leika inni í herberginu hans Danna og getur setið þar og dundað sér heillengi, sérstaklega ef við setjum einhverja tónlist á. Hann biður líka ævinlega um óskalag, segir "ýta á takka" og frussar .. og það þýðir að hann vill hlusta á prumpulagið ;)



Skilaboð
Gaman að lesa fréttir af ykkur. Ég hlakka mikið til að sjá ykkur á morgun, sumardaginn fyrsta, í afmælisveislu sumarbarnsins, hans Danna míns.
21.04.10 11:49