Emil tekur stór stökk þessa dagana. Hann er loksins farinn að labba meira en aðeins meðfram og milli okkar, búinn að vera mjög varkár og samt ekkert dottið alvarlega. Hann tekur stigann í nefið, eldsnöggur upp, og er orðinn góður í að fara afturábak niður. Þetta labba-á-milli skeið er búið að standa yfir mááánuðum saman og loksins eitthvað nýtt að gerast í því. Sumir verða bara að taka hlutina á sínum hraða.
Emil er líka kominn með fullt af orðum; mamma, Danni, Klængur (duuduu..) -pabbinn er ekki alveg sáttur með að hann neitar að segja Pabbi.. svo er auðvitað Bangsimon (biddi - mikill aðdáandi!) Dudda, nammi, kaka og ís (sem er "sí") Sælkeri hér á ferð :)
Hann er með gríðarlega mikinn áhuga á kaffivélinni og þvottavélinni og segir "tssss" við þær báðar (vatnshljóðið). Það er alveg hægt að fá hann til að taka bæði úr þvottavélinni og þurrkaranum og setja í, hann er mjög liðtækur við húsverkin og vill endilega vera með í öllu ;)
Emil er líka mikill sjónvarpsglápari, bróðir hans horfir reyndar ekki mikið en sá stutti vill alltaf vera með í því og vill stundum helst borða morgunmatinn inni í stofu um helgar eins og sá stóri.
Það eru búnir að vera fallegir vetrardagar undanfarið. Á öskudaginn fór Danni í spiderman búningnum sínum í leikskólann og María dagmamma var í fríi þannig að við Emil vorum heima. Við ákváðum eftir morgunmatinn að rölta út og hitta Danna með leikskólahópnum sínum þegar þau kæmu í bakaríið, svo við fórum í bangsabúninginn og settum upp veiðihárin. Það var mjög gaman að hitta sólarbörnin í fullum skrúða og þau "sungu svo vel að maður fékk tár í augun" -eins og Danni spurði mig um á eftir ;)
Svo fórum við Emil niður í bæ og löbbuðum aðeins um, hann hefur kannski ekki labbað mikið í snjónum og á klaka en þegar hann fékk að prófa það, að labba í svona klakabraki skellti hann algjörlega uppúr, hló svo innilega að hann ætlaði ekki að geta staðið.. það var svo fyndið að heyra brakið í skónum :))
Núna þegar hann nálgast 18 mánuðina er hann kominn með 10 tennur, þar af 3 jaxla. Þær hafa tekið þokkalega vel á og mikill munur fyrir hann (tja já og okkur!) að erfiðasti hjallinn er yfirstiginn.
Við ætlum nú að reyna að vera aðeins duglegri við að skrifa hérna niður, bara út af því hvað það er gaman að fletta í gegnum þetta síðar, en endilega skrifið í gestabókina ef þið eigið leið hingað inn :) -takk :)



Skilaboð
Hæ kæru frændur. Gaman að heyra að þið ætlið að vera öflugri í skrifum hérna, ég og mamma kíkjum reglulega við hérna:) Það er aldeilis snjórinn á ykkur þarna, vonandi verður hann ennþá þarna þegar við komum til ykkar um páskana, þá getum við kannski farið saman á snjóþotu.
Sjáumst fljótlega.
Kveðja úr borginni
Ragnar Númi og fjölskylda
23.02.10 22:17