Jæja kominn desember. Hérna gengur allt sinn vanagang, nema Emil.. honum finnst gangur vera of mikið hættuspil og er mjög varkár við að fara af stað. Við tókum meira að segja jólagjöfina hans upp fyrir tímann, sem er vagn til að ganga með og æfa sig. Hann gengur nokkur skref á milli okkar og finnst það svo gaman að hann vill helst hlaupa og þá fer hugurinn svolítið hraðar en neðri hlutinn ræður við :) Hann er nú að verða 16 mánaða svo þetta er alveg löngu tímabært, en hann er afskaplega varkár, og það er nú kannski ekki hægt að kvarta undan því.
Um daginn, nánar tiltekið 8. desember kom Danni heim úr leikskólanum með eina framtönn í bréfi, hún var búin að vera laus í nokkra daga og hann sagðist bara hafa "tekið hana" :) Sama kvöld kom í ljós að Emil er kominn með fyrsta jaxlinn (þannig að það má segja að tannafjöldinn á heimilinu sé enn sá sami).
Emil líður líka vel hjá dagmömmunni, Maríu. Hún á hund sem er í miklu uppáhaldi hjá Emil og hann hermir iðulega eftir henni Perlu þegar hún tekur á móti okkur á morgnana. Um daginn, 9. des, fórum við á jólaball með dagforeldrafélaginu og þar kom jólasveinninn sem Emil er að kynnast í fyrsta skipti. Honum leist nú ekkert á hann samt og fannst betra að hann væri sem lengst í burtu, það var því svolítið erfitt að taka við pakka úr höndunum á honum en það tókst og enginn skaði skeður, nema pínu á sálinni. Þessir karlar geta nefnilega verið svolítið fyrirferðamiklir.
En það eru frábærir dagar framundan, jólin í næstu viku og allt að verða klárt á þessu heimili. Litli snáði ætlar að vera í fríi frá 18 des og fram á nýár og leikskólastrákurinn sennilega eitthvað svipað.



Skilaboð
Það verður nú gaman fyrir Emil að hitta Samma - Sammi elskar nefninlega börn!! Hann og Eyvör dóttir Ingu og Einars sem er um 1 árs voru bestu vinir. Hún fékk marga kossa frá honum :)
Knús á ykkur bræður og hlakka til að sjá ykkur um jólin!
20.12.09 01:25