« | Aftur á forsíðuna | »

30. júní 2009

Sumarið framanaf er nú búið að vera mjög ljúft. Danni hefur aðeins mætt á fótboltaæfingar en honum finnst það ekkert sérstaklega skemmtilegt svo ákefðin er ekki mikil. Hann ætlar hins vegar að fara aftur í fimleikana í haust, alveg ákveðinn á því.
Emil er að fá framtennurnar þessa dagana, sú hægra megin er komin í gegn og örþunnt yfir þeirri vinstra megin. Það eru því miklar breytingar framundan því það er alveg ótrúlegt hvað ásjónan breytist við að fá tennurnar. Hann er líka búinn að skipta yfir í einn lúr yfir daginn, frá ca hálf tólf til tvö. Það virðist duga honum fínt og hann sofnar þreyttur (en ekki útkeyrður) kl átta og vaknar sprækur uppúr sjö. Reyndar vaknar hann svolítið oft á næturna og við þurfum að taka það aðeins í gegn.

Um síðustu helgi fórum við út á Karlsá, sem fyrir þá sem ekki vita er ættaróðal í fjölskyldu mömmunnar. Þeir allra hraustustu slóu lúpínu sem er að vaða yfir allt, aðrir slóu garðinn og gerðu fínan og flottan. Við fórum snemma á laugardaginn og höfðum reyndar ekki planað að gista en gerðum það svo samt, það var ákaflega notalegt. Emil fannst það líka bara allt í lagi, þó svo bandið í mömmuna megi ekki vera mjög langt.

Og talandi um það, um daginn fór ég að kíkja á eina dagmömmu hérna í hverfinu, hún vinnur til tvö. Emil verður ársgamall seinna í sumar og með haustinu er hann alveg tilbúinn til að fara eitthvert út að leika á morgnanna og þá fær mamman líka tíma til að vinna. Við erum hins vegar ekkert að stressa okkur því það vantar börn frekar en dagmömmupláss hérna í bænum og ætlum að sjá til eftir sumafríin.

Danni fer í sumarfrí frá 10. júlí - 10. ágúst. Við erum aðeins búin að plana þann tíma, fáum Bastian og fjölskyldu í heimsókn, sem verður rosalega gaman, og ætlum líka eitthvað austur á Borgarfjörð. Pabbinn fær reyndar ekki langt sumarfrí en við gerum gott úr því sem verður :)

-

Vilt þú segja eitthvað?

(Ef þú hefur ekki sagt neitt áður þarftu kannski að bíða eftir að mamma samþykki þig og það sem þú segir, við viljum náttúrulega bara fá falleg orð hérna inni sko, takk fyrir að bíða :)


© 2008 - Mamma gerði þetta | Knúið af Movable Type 3.34