Merkisdagur í dag (gær). Emil lá á bakinu og var að leika með eitthvað dót, eða meira svona að glíma við dótið. Svo tók minn sig til og sparkaði upp í loftið af svo miklum krafti að hann rúllaði yfir á magann! Jább, orkuboltinn!
Hann er þessa síðustu daga orðinn mjög mobile á gólfinu, er oftast búinn að snúa sér 180° á teppinu sínu eða kominn út af því. Hann elskar líka lætin í Danna og vill helst bara vera í herberginu hans :) Hann er orðinn duglegur að borða, bæði í hádeginu og á kvöldin, en honum finnst grautar samt ekkert sérstaklega góðir. Ég gaf honum að smakka avocado um daginn og honum fannst það alveg æði, svo vill hann naga og sjúga epli og melónur, eða helst borða bara það sem við erum að borða :) Í morgun þegar ég var að borða cheeriosið mitt og hann hamaðist við hliðina á mér og vildi fá líka, þá braut ég ca 1/3 af cheerios hring og stakk upp í hann og þvílíkar nautnastunur!.. :D Hann tuggði það og velti um í munninum, alveg ótrúlega flinkur. Hugurinn hans er greinilega kominn aðeins lengra í þessum matarpælingum en meltingin enda er hann rétt að skríða í 6 mánaða núna, svo ég vil nú helst fara svolítið hægt í þetta.
Við Danni erum búin að ná okkur af kvefinu sem við náðum í, svona nokkurn veginn. Á morgun er það hefðbundin dagskrá, fimleikar og sund.


Skilaboð
Hæ sætu! Mér heyrist hlutirnir heldur betur vera að gerast! Ég myndi halda að það væri um að gera að láta Emil vera sem mest í Danna herbergi áður en hann fer að tæta að ráði og Danni að læsa að sér ;)
Kveðja frá Guðnýju kvefhaus....
21.02.09 10:08