Emil fór í 5 mánaða skoðun og sprautu í morgun, við frestuðum því um viku út af hlaupabólunni um daginn. Hann er orðinn rúmir 67cm og 6.8kg. Hann fékk bók um barnatennurnar hjá hjúkkunni og var að skoða hana þegar hann var sprautaður, hún var svo áhugaverð að hann leit ekki einusinni upp þegar hann var stunginn. Algjör hetja.
Hjúkkan sagði að þó hann væri vel haldinn mætti hann alveg fara að fá soðið grænmeti og svoleiðis í bland við grautinn. Við erum aðeins farin að glugga í baby uppskriftabókina sem við keyptum í Danmörku, uppskriftir að allskonar mauki. MMmmmm...


Skilaboð
Sæl Dagný
Ég hafði svo mikinn áhuga fyrir hollum og heimatilbúnum barnamat þegar mínar stelpur voru litlar, en þær fengu aldrei tilbúinn barnamat og einungis graut úr lífrænt ræktuðu mjöli. Mig langaði bara að benda þér á bókina hennar Laufeyjar Steingrímsdóttur sem heitir Södd og sæl á fyrsta ári, ef þú þekkir hana ekki nú þegar. Þar er að finna mörg góð ráð og hugmyndir að góðum mat fyrir ungabörn.
Knúskveðjur,
Guðrún Björk
15.02.09 13:49